Fréttablaðið - 06.10.2020, Qupperneq 41
BÆKUR
Harry Potter og leyniklefinn
J.K. Rowling
Myndskreyting: Jim Kay
Þýðandi: Helga Haraldsdóttir
Fjöldi síðna: 264
Útgefandi: Bjartur
Bókaforlagið Bjartur endurútgefur
bækurnar um Harry Potter í sér-
stakri hátíðarútgáfu sem er ríkulega
myndskreytt af Jim Kay. Á síðasta
ári kom út í þessari viðhafnarútgáfu
fyrsta bókin í seríunni, Harry Potter
og viskusteinninn, en þá voru 20
ár liðin frá því hún kom fyrst út á
íslensku. Nú kemur bók númer tvö,
Harry Potter og leyniklefinn.
Myndirnar í Harry Potter og leyni-
klefanum eru listaverk út af fyrir sig
og einkennast af mikilli hugmynda-
auðgi Jim Kay ásamt ríkum skiln-
ingi hans á söguheimi J. K. Rowling.
Töfraheimur hennar endurspeglast á
sterkan hátt í myndunum
og persónurnar birtast
þar ljóslifandi.
Sagan hefst á tólf ára
a f m æ l i s d e g i H a r r y
Potter sem bíður þess
óþreyjufullur að komast
aftur í Hogwartskól-
ann. Það gengur ekki
áfallalaust fyrir sig og
þegar þangað er komið
taka æsilegir atburðir
að gerast. Dramatísk-
ir atburðir tengjast
síðan leyniklefanum,
sem á árum áður
hafði verið opnaður
með þeim af leið-
ingum að skrímsli
braust út og drap nemanda. Nú
nemur ófreskja nemanda á brott og
tekur með sér í leyniklefann. Harry
Potter og félagar geta ekki látið eins
og það komi þeim ekki við því hinn
brottnumdi nemandi er þeim afar
kær. Í ljós kemur að hinn illi Volde-
mort ber sína ábyrgð og lesandinn
fær að kynnast fortíð hans þegar
hann var nemandi í Hogwartskóla.
Það er enginn vandi að heillast af
söguheimi Rowling þar sem allt er
mögulegt, eins og það að fara í f lug-
ferð í bíl, verða fangi
risakóngu-
lóar, geta
g e r t s i g
ósýnilegan
o g b e i t t
a l l s k y n s
t ö f r u m .
Börn heillast
a f s l í k u m
sögum, máta
sig við aðal-
per sónu r na r
og hætturnar
sem þær lenda
í og gleðjast yfir
verðskulduðum
sigrum.
Rowl i ng e r
ekki f linkur stílisti en hún býr yfir
ótvíræðri sagnagáfu og fær lesand-
ann til að lesa áfram þótt bækur
hennar séu oft æði langar. Hún er
skemmtilegur barnabókahöfundur
með góðan húmor. Börn um allan
heim spændu þessa bók í sig, eins og
hinar Potter-bækurnar, og þau skildu
það sem þau voru að lesa og gátu
þulið upp alls kyns fróðleik úr henni.
Harry Potter er einstaklega vel
sköpuð persóna og hið sama má segja
um félaga hans. Fjöldi minnisstæðra
aukapersóna kemur við sögu. Þar á
meðal má nefna klósettdrauginn
Völu væluskjóðu og hinn sjálfhverfa
kennara Lockhart prófessor sem
einbeitir sér að því að segja sögur
um sjálfan sig um leið og hann gerir
kennslubækur sínar að skyldulesn-
ingu fyrir nemendur.
Harry Potter og leyniklefinn er
einmitt bók sem upplagt er að gefa
börnum á tímum sem þurfa sárlega á
skemmtilegum töfraljóma að halda.
Kolbrún Bergþórsdóttir
NIÐURSTAÐA: Frábærar myndir
Jim Kay gleðja augað og frásögn
Rowling af ævintýri Harry Potter
og félaga er frábær skemmtun.
Ómótstæðilegir töfrar
Fáir barnabókahöfundar hafa glatt jafnmörg börn og J. K. Rowling.
Á tónleikum í tónleikaröðinni Beethoven í 250 ár í kvöld (þriðjudagskvöld) í Salnum
verða fluttar fimm af píanósónötum
hans.
Thomas Higgerson flytur píanó-
sónötu nr. 7 í D-dúr op. 10 nr. 3,
Peter Máté f lytur píanósónötu nr.
11 í B-dúr op. 22, Mathias Halvorsen
f lytur píanósónötu nr. 19 í g-moll
op. 49 nr. 1 og nr. 20 í G-dúr op. 49 nr.
2 auk þess sem Aladár Rácz f lytur
píanósónötur nr. 13 í Es-dúr op. 27.
Arnar Jónsson leikari mun lesa
valda kafla á undan hverri sónötu
úr bókinni Beethoven – í bréfum og
brotum sem Árni Kristjánsson tók
saman.
Beethoven í 250 ár er röð níu tón-
leika þar sem þrjátíu píanóleikarar
f lytja allar 32 píanósónötur Beet-
hovens.
Beethoven í salnum
Snillingurinn Beethoven.
Laufey Johansen opnar mynd-listarsýninguna Undur hafsins í Grafíksalnum, Hafnarhús-
inu, Tryggvagötu 17 næstkomandi
sunnudag 11. október klukkan
16.00. Á sýningunni er að finna 12
olíumálverk, f lest unnin árið 2018
en nokkur verkanna voru til sýnis á
einkasýningu Laufeyjar í New York
sama ár.
Sýningin stendur til 26. október.
Opið er fimmtudag til sunnudags
frá klukkan 14.00 – 18.00.
Myndlistarsýning í Grafíksalnum
Ein mynda Laufeyjar á sýningunni.
Double accounting, sýning á verkum Geirþrúðar Finn-bogadóttur Hjörvar stendur
yfir í Gallerí Úthverfu / Outvert
Art Space á Ísafirði. Þar eru kynnt
prentverk byggð á tvöföldu kerfi til
að f lokka alheiminn með tveimur
aðskildum aðferðum. Úrval af átta
prentum úr seríunni verður til sýnis
í formi innsetningar við hlið högg-
myndar sem fjallar um hugtakið
„lausafjárstaða“ eða „seljanleiki“.
Geirþrúður á Ísafirði
匀琀愀爀琀愀甀 戀攀琀甀爀 瘀攀琀甀爀
䔀欀欀椀 氀琀愀 欀愀氀搀愀爀 昀爀漀猀琀渀琀甀爀 欀漀洀愀 ︀爀 瘀愀爀琀
吀爀攀礀猀琀甀 爀愀昀最攀礀洀愀 瘀攀琀甀爀
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13Þ R I Ð J U D A G U R 6 . O K T Ó B E R 2 0 2 0