Fréttablaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 2
Þetta var alveg smá erfitt, maður dettur fljótt úr æfingu í að koma svona fram. Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona og gítarleikari Veður Austan 10-18 í dag og víða rigning með köflum, talsverð úrkoma um tíma á Suðausturlandi og Aust- fjörðum. Lægir sunnan til í kvöld. Hiti 2 til 7 stig. SJÁ SÍÐU 18 Sigurvegari Íslensku barnabókaverðlaunanna Rut Guðnadóttir, sigurvegari Íslensku barnabókaverðlaunanna, sést hér á milli grímuklæddra foreldra sinna, Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, og Elínar Haraldsdóttur, viðskiptafræðings og listakonu. Verðlaunin fékk Rut fyrir fyrstu skáldsögu sína, Vampírur, vesen og annað til- fallandi. Þótt andlit þeirra séu að hluta til hulin verður ekki betur séð en að Guðni og Elín brosi stolt undir grímunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU – MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! Íslendingar lesa Fréttablaðið daglega að meðaltali.* Kannaðu dreiileiðir og verð í síma 550 5050 eða sendu tölvupóst á orn@frettabladid.is. Útvegum einnig hagstæð verð í prentun. 93.000 *Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019. Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019 MENNING „Þetta var mjög spenn- andi og skemmtilegt verkefni. Það var komið mjög langt síðan við komum fram síðast . Ég held að síð- ustu tónleikarnir hafi verið í Ástr- alíu í janúar rétt áður en það skall allt á,“ segir Nanna Bryndís Hilm- arsdóttir, söngvari og gítarleikari Of Monsters and Men, aðspurð hvernig það hafi verið að koma loksins fram á ný. Of Monsters and Men kom fram í þætti Jimmy Fallon, The Tonight Show, í nótt þar sem bandið f lutti meðal annars nýja lagið sitt, Visitor. „Þetta var alveg smá erfitt, maður dettur f ljótt úr æfingu í að koma svona fram,“ segir Nanna hlæjandi þegar hún var spurð hvort það hefði verið eitthvert ryð í hópnum eftir langa fjarveru. „Þetta var í eitt af fyrstu skipt- unum sem við flytjum Visitor. Yfir- leitt er maður fyrir framan fólk að slípa lagið en þetta var mjög gaman. Svo stóð maður bara fyrir framan myndavélina og þar kom ekkert klapp á milli laga. Það var mjög sér- kennilegt en þetta er ein leið til að koma tónlistinni á framfæri,“ segir Nanna um nýja leið tónlistarmanna til að koma fram. Þau tóku lögin upp í Iðnó. „Við nýttum okkur hið fallega rými í Iðnó og nutum aðstoðar listamannsins Krassasig sem hann- aði leikmynd fyrir okkur og stýrði upptökunni. Við vildum setja púður í þetta og gera þetta öðruvísi en á sama tíma hafa smá sögu í þessu.“ Aðspurð hvernig þau hafi nýtt frítímann það sem af er ári segir Nanna að meðlimir Of Monsters and Men hafi reynt að safna orku en að tónlistin hafi aldrei verið langt undan. „Við höfum reynt að slappa svo- lítið af og safna orku en tónlistin er ekki langt undan. Við erum líka að vinna í tónlistinni með því að að semja og leggja drög að nýjum lögum inni í stúdíói,“ segir Nanna sem segir að von sé á nýrri EP-plötu frá sveitinni á næsta ári. „Markmiðið var að gefa út EP- plötu í tilefni tíu ára afmælisins á þessu ári en hún frestaðist og kemur út á næsta ári. Okkur fannst við komast upp með að gera það á næsta ári í ljósi alls þess sem hefur gengið á á þessu ári.“ Nanna segir hljómsveitarmeð- limina bíða eftir því að faraldurinn verði búinn áður en næsta tónleika- ferð verður skipulögð. „Við áttum að vera á tónleika- ferðalagi út um allan heim á þessu ári en svona fór þetta. Það er ekk- ert hægt að gera við þessu. Í fyrstu reyndum við að endurskipuleggja tónleika en það er erfitt að sjá langt fram í tímann þessa dagana,“ segir Nanna um framhaldið. „Við erum búin að bóka okkur á eitt festival en það verður örugg- lega barist um tónleikastaði þegar það fer að létta til. Það er flesta farið að klæja í fingurna að koma fram á tónleikum.“ Sjálf eiga þau eftir að koma fram á netinu einu sinni til viðbótar, í það minnsta, á þessu ári. Of Mon- sters and Men kemur fram á Iceland Airwaves sem fer fram með breyttu sniði í ár. „Við eigum eftir að koma fram á Iceland Airwaves. Boltinn er aðeins farinn að rúlla en með breyttu sniði.“ kristinnpall@frettabladid.is Spiluðu fyrir Fallon Hljómsveitin Of Monsters and Men kom fram í þætti Jimmy Fallon í nótt þar sem hún frumflutti nýjasta lag sitt. Sveitin hefur nýtt hlé til að safna kröftum. Sveitin nýtti sér rýmið í Iðnó fyrir flutninginn. MYND/AÐSEND FASTEIGNIR Kirkjuráð staðfesti á fundi 3. september sölu á Laugavegi 31 sem í tæp þrjátíu ár hýsti Bisk- upsstofu í svokölluðu Kirkjuhúsi. Viðskiptin voru ekki í höfn fyrr en nú því kaupandinn, Valdimar Kr. Hannesson og fjölskylda, þurfti meðal annars að láta kanna ástand hússins sem komið er til ára sinna. Valdimar og fjölskylda hafa búið í Þýskalandi að sögn Rúnars Ómars- sonar, talsmanns þeirra. „Þau hafa reynslu af því að gera upp slík fjöl- nota rými,“ segir Rúnar. „Það er mikið talað um að minnkandi bíla- umferð sé að skemma Laugaveginn en þau sjá hins vegar tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt og hleypa lífi í þetta glæsilega hús.“ Kaupverðið er trúnaðarmál en Rúnar segir það nú kirkjunnar að gefa það upp kjósi hún svo. Nokkuð er síðan Biskupsstofa f lutti í safnaðarheimili Háteigs- kirkju og síðan í leiguhúsnæði í Kartrínartúni. Er það ekki hugsað sem framtíðarstaður fyrir þessa höfuðskrifstofu Þjóðkirkjunnar. Meðal annars hefur verið og er enn til skoðunar að byggja nýtt hús undir Biskupsstofu norðan við Háteigskirkju. – gar Vill færa líf í Laugaveg 31 Laugavegur 31 er svipmikið og stórt hús. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI SLYS Karlmaður á sextugsaldri fannst látinn í malarnámu suðaust- anvert í Lambafelli við Þrengslaveg í kringum klukkan sjö í gærmorgun. Talið er að slysið hafi átt sér stað einhvern tímann eftir klukkan 23 á miðvikudagskvöldið. Maðurinn var stjórnandi jarðýtu sem verið var að nota til að losa efni og ýta fram af fjallsbrúninni. Jarð- ýtan féll fram af brúninni. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var maðurinn þegar látinn. Málið er nú til rannsóknar hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Veg farendu r sem fór u u m Þrengslaveg á umræddum tíma eru beðnir um að hafa samband við Lögregluna á Suðurlandi í gegnum síma, tölvupóst eða með því að senda skilaboð á Facebook-síðu lögreglunnar. Lögreglan vill ekki veita frek- ari upplýsingar um málið að svo stöddu. – ab Lést í námu við ÞrengslavegLaugavegur 31 er 1.542 fermetrar að stærð. 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.