Fréttablaðið - 23.10.2020, Síða 8
Þetta er náttúrulega
mjög virkt svæði,
Reykjanesið, og það getur í
sjálfu sér hvað sem er gerst.
Rögnvaldur Ólafsson
Maður er nátt-úrulega aldrei hundrað pró-s e n t u n d i r -b ú i n n f y r i r hvað sem er, en
við erum með býsna gott kerfi hér
á höfuðborgarsvæðinu og sterka
innviði og stærstu einingar við-
bragðsaðila landsins á svæðinu,“
segir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn hjá almanna-
varnadeild ríkislögreglustjóra, um
mögulegar stærri náttúruhamfarir
á eða í námunda við stærsta þétt-
býlissvæði landsins.
„Þetta er náttúrulega mjög virkt
svæði, Reykjanesið, og það getur í
sjálfu sér hvað sem er gerst. Það er
eitthvað sem við bara vitum af og
erum búin undir,“ segir Rögnvaldur.
Hann segir almannavarnir ávallt
vera á tánum og ekki síst þegar nátt-
úran geri vart við sig eins og í vik-
unni. Viðbragðsáætlun hafi verið
virkjuð strax þegar skjálftavirknin
hófst undir Þorbirni og síðan hafi
allir viðbragðsaðilar verið að vinna
í sínum ferlum.
„Svo erum við búnir að halda
skrif borðsæf ingar, eins og við
köllum það. Það eru í rauninni
svona stjórnstöðvaræfingar þeirra
sem geta þurft að taka ákvarðanir
og fara með samhæfingarhlutverk
til að æfa viðbrögð og ákvarðanir
í ýmsum aðstæðum,“ segir Rögn-
valdur. Þær séu kallaðar skrifborðs-
æfingar af því fólk sitji í rauninni í
sætum sínum. Um hugarleikfimi sé
að ræða.
Víðtæk rýming ólíkleg
Aðspurður um samgöngukerfið og
mögulegar rýmingaráætlanir fyrir
svæðið segir Rögnvaldur fátt geta
valdið því að rýma þurfi allt höfuð-
borgarsvæðið.
„Það er svo gríðarlega ólíklegt að
til þess þyrfti að koma að það er eig-
inlega ekkert sem kæmi til greina,
nema kjarnorkuárás,“ segir Rögn-
valdur. Vegakerfið myndi ekki anna
heildarrýmingu alls höfuðborgar-
svæðisins. Hins vegar sé kerfið
talið geta annað því að rýma þurfi
einstök hverfi eða hverfishluta en
það myndi auðvitað kalla á stýringu
lögreglu og björgunarsveita á helstu
umferðaræðum.
Gerðar hafi verið rýmingaráætl-
anir fyrir höfuðborgarsvæðið sem
liggi fyrir.
Rög nva ldu r seg ir íslensk a
almannavarnakerfið hafa marga
sérstaka kosti og byggi á allrar
hættu nálgun (e. all hasard app-
roach) eins og það er stundum
kallað. „Það skiptir í rauninni ekki
máli hvaða veseni við lendum í, við
erum alltaf með sama kerfi til að
leysa það. Það er í rauninni alveg
ótrúlega sterkur og góður eigin-
leiki,“ segir Rögnvaldur. Í sumum
löndum þurfi menn að byrja á að
spyrja sig hver eigi fyrst að bregðast
við, hvort hættan sé á sjó, landi eða
lofti og þá getur jafnvel orðið ein-
hver rekistefna um hver eigi að sjá
um samhæfingu í hverju tilteknu
tilviki, hver eigi að taka ákvarðanir
og hver beri ábyrgðina. „Við erum
alveg laus við þetta og getum gengið
beint til verks,“ segir Rögnvaldur.
Smæðin auðveldi líka margt því
boðleiðir hér séu stuttar.
Eiga að passa allt
„Samkvæmt 1. grein almanna-
varnalaga eigum við að passa allt, ef
undir eru líf og limir, umhverfi eða
eignir. Þá skiptir engu máli hvaðan
váin kemur; hvort hún er farsótt,
af mannavöldum, náttúruvá eða
annað,“ segir Rögnvaldur og bætir
við: „Líka ef það er gat í kerfinu ein-
hvers staðar og eitthvað sem þarf að
gera en enginn er að gera, þá eigum
við líka að grípa það, jafnvel bara til
að brúa bilið þar til réttur eða betri
aðili grípur boltann.“
Kvöðin sé hjá almannavörnum,
að passa að innviðirnir séu í lagi ef
um er að ræða líf og limi, umhverfi
og eignir.
Upplýsingagjöf til almennings
skiptir miklu máli í hamförum.
Þegar stór jarðskjálfti reið yfir fyrr
í vikunni lá vefur Veðurstofunnar
niðri í nokkrar mínútur vegna
snögglegs álags þegar tugir þúsunda
reyndu að komast inn á vefinn á
sama tíma.
Reynum að anda rólega
Rögnvaldur fagnar því að Veður-
stofan hafi það á dagskrá sinni
að uppfæra og bæta vefinn hjá
sér. Hins vegar reyni starfsfólk
almannavarnadeildarinnar að
anda rólega þegar til dæmis stórir
skjálftar komi. „Því við vitum að þá
fer allt á fullt uppi á Veðurstofu í að
fara yfir gögn.“ Það sé handavinna
að finna upptök og og stærð skjálfta
því þótt vefurinn sýni niðurstöður
sjálfvirkra mæla taki nokkrar mín-
útur að hreinsa út rétta stærð.
Hlut verk Veðurstof unnar í
almannavarnakerfinu er að vakta
náttúruvá á landinu.
Þótt vefurinn frjósi eða falli niður
verður ekki misbrestur á vöktun.
„Veðurstofan sér um að vakta
fyrir okkur og lætur okkur vita ef
hún verður vör við eitthvað óeðli-
legt. Við tökum þá samtalið og eftir
atvikum virkjum almannavarna-
kerfið ef þörf er á,“ segir Rögnvaldur.
Þótt vefurinn þeirra fari á hliðina,
verði ekki misbrestur á vöktun eða
samskiptum við almannavarnir.
„Við erum með beint númer sem
við getum alltaf hringt í fram hjá
kerfinu. Það var lengi sérstakur vír
– bara bein símalína sem lá á milli,
en það var lagt niður enda svo dýrt.
Þeir eru með tetra-talstöðvarsam-
band við okkur þannig að jafnvel
þótt símkerfið falli niður, þá er
beint samband okkar á milli.“
Um upplýsingagjöf til almenn-
ings segir Rögnvaldur að almanna-
varnir setji ávallt upplýsingar um
hamfarir bæði á vef- og Facebook
síðu almannavarna. „Facebook er
reyndar oftar f ljótvirkari.“
Jafnar sig eftir COVID
Rögnvaldur hefur staðið í ströngu
undanfarna mánuði vegna heims-
faraldursins en var tekinn tíma-
bundið út af þegar hann veiktist
sjálfur af veirunni.
„Það er skrítin tilfinning að hafa
verið með svona stórt verkefni lengi
í höndunum og svo er maður allt í
einu orðinn partur af tölfræðinni og
kominn hinum megin við borðið,“
segir Rögnvaldur. Hann er þó að
verða góður aftur. „Ég er bara orð-
inn nokkuð góður, búinn að vera
einkennalaus síðan um helgina og
verð vonandi útskrifaður bara núna
um þessa helgi,“ segir hann. Það
sama sé að segja um fjölskylduna
sem lagðist öll í pestina.
adalheidur@frettabladid.is
Ágætlega búin undir stórar hamfarir
Rögnvaldur Ólafsson hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir íslenska almannavarnakerfið hafa marga kosti umfram kerfi
annarra ríkja. Í stuttu máli eigi almannavarnir að passa allt, líf, limi, náttúru og eignir. Skrifborðsæfingar eru reglulega haldnar.
Almannavarnir hafa verið á tánum vegna jarðhræringa sem hófust undir Þorbirni síðasta vetur. Jarðskjálfti af
stærðinni 5.6 með upptök út af Krísuvík reið yfir á þriðjudag og fannst víða um land. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Rögnvaldur er yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
2 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð