Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.10.2020, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 23.10.2020, Qupperneq 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Ævar Þór Benediktsson er að reyna að finna nýjar leiðir til að kynna nýju bókina sína, Þín eigin undirdjúp, í þessari óvenjulegu jólabókavertíð. Eitt af því sem honum datt í hug að gera var að stofna hlaðvarp um „Þín eigin“ bækurnar. Þar fyrir utan er hann að leika í sjónvarpi og sífellt að vinna í nýjum bókum og hug- myndum. Hann segir mikilvægt að vera jákvæður og horfa fram á veginn á erfiðum tímum, einblína á það sem gleður, tala um líðan sína og muna að það kemur að því að þetta verður allt afstaðið. „Lífið fer bara vel með mig þessa dagana þrátt fyrir COVID. Ég er að gefa út nýja bók í næstu viku ásamt því náttúrulega að reyna að finna nýjan takt, eins og allir hinir höfundarnir í þessari jólabókaver- tíð,“ segir Ævar. „Eitt af því sem við gerum undir venjulegum kring- umstæðum til að kynna bækurnar okkar er að fara í alls konar heim- sóknir, en það er náttúrulega ekki hægt, þannig að stemningin er öðruvísi. Svo átti leikritið mitt, Þitt eigið leikrit, að vera í sýningu um þessar mundir í Þjóðleikhúsinu, en það er auðvitað allt lok og læs í leikhúsum. Áhrif COVID eru alls staðar í mínu lífi, alveg eins og hjá öllum öðrum.“ Til að kynna nýju bókina sína stofnaði Ævar hlaðvarp. „Ég er nýbyrjaður með hlaðvarp um „Þín eigin“ bækurnar. Þetta er sjöunda bókin í seríunni og þar sem þær eru svona vinsælar fannst mér sniðug hugmynd gera stutta þáttaröð um þær,“ segir Ævar. „Hver bók fær sinn eigin þátt þar sem skyggnst er á bak við tjöldin við gerð bókanna, ásamt því að ég svara spurningum hlustenda og reyni að gefa verðandi rithöf- undum góð ráð. Þegar ég verð búinn með stóru Þín eigin-bæk- urnar fá styttri bækurnar svo líka sérþátt og leikritin tvö sömuleiðis. Þá enda ég hvern þátt á því að lesa kafla úr nýju bókinni. Hlaðvarpið heitir Þitt eigið hlaðvarp og hægt er að nálgast það alls staðar þar sem maður nær í hlaðvörp.“ Forréttindi að búa til bíó „Síðustu vikurnar hef ég líka aðeins verið að leika, en ég er með hlutverk í annarri þáttaröð af Stellu Blómkvist. Að vera á töku- stað á tímum COVID er auðvitað allt öðruvísi en venjulega. Það fara allir í sýnatöku áður en þeir mæta á staðinn og fyllsta öryggis er gætt allan tímann. Allir eru með grímur nema rétt á meðan tekið er upp og allir halda sig þess á milli í þar til gerðum hólfum. Öryggið var upp á tíu,“ segir Ævar. „Við erum auð- vitað í algjörri forréttindastöðu að geta búið til bíó hérna heima, á meðan margt fólk erlendis hefur verið lokað inni síðan í mars. Þannig að þrátt fyrir takmarkanir höfum við það gott miðað við marga.“ Allt í lagi að fá „nei“ Ævar er óvenjulega afkastamikill listamaður og það gætu margir velt fyrir sér hvernig hann fer að því. „Ég er mjög heppinn að fá að vinna við það sem mér finnst gaman að gera,“ segir Ævar. „Það er reyndar alltaf sagt að ef þú finnur vinnu við að gera það sem þú elsk- ar sértu aldrei í vinnunni, en ég hef komist að því að það er í raun akk- úrat öfugt. Ég er alltaf í vinnunni, því hausinn heldur áfram að malla þótt klukkan sé orðin fjögur og ég farinn út af skrifstofunni. Og til að bæta gráu ofan á svart þoli ég ekki að fá hugmynd sem ég get ekki nýtt, þannig að þær geta látið á sér kræla hvenær sem er sólarhrings- ins. En svo spilar heppni auðvitað líka inn í afköstin. Stundum er þetta spurning um að vera réttur maður á réttum stað og tíma. Ég reyni líka að vera duglegur að lesa bækur og horfa á efni frá öðrum. Þannig fyllir maður á tank- inn og fær sínar eigin hugmyndir,“ segir Ævar. „Eitt besta ráðið sem ég get gefið upprennandi rithöfundi er að lesa mikið. Þannig færðu hug- myndir og vald á tungumálinu. Þá er líka mikilvægt að þora að standa með hugmyndunum sínum og bera þær undir aðra. Að ég tali nú ekki um ef þig langar í sam- starf með einhverjum spennandi. Þannig byrjaði til dæmis samstarf mitt með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ég bara spurði. Í versta falli færðu nei og það er allt í lagi. Það hefur svolítið verið mottó hjá mér og gagnast mér vel,“ útskýrir Ævar. Gaman að deila sögum „Bókin Þín eigin undirdjúp kemur út þriðjudaginn 27. október. Hún er eins og hinar Þín eigin-bækurn- ar, þú ert aðalpersónan og ræður hvað gerist. Í bókinni eru meira en 50 mismunandi endar, þannig að ef þetta endar allt saman illa er það þér að kenna, en ekki mér,“ segir Ævar léttur. „Þarna koma fyrir alls konar hlutir eins og sæskrímsli, Bermúdaþríhyrningurinn, faldir fjársjóðir, hungraðir hákarlar og margt f leira. Eitthvað fyrir alla.“ Ævar byrjaði að skrifa bækur því hann hefur gaman af því að deila sögum með öðrum. „Ég hef alltaf haft gaman af því að hlusta á og segja sögur. Þegar ég var yngri mátti ég ekki heyra brandara án þess að þurfa að segja hrein- lega öllum hann, þannig að ég var orðinn sögumaður frekar snemma,“ segir hann. „Þannig byrjaði þetta. Auk þess hafa við- tökurnar á Þín eigin-bókunum verið framar öllum vonum, þannig að maður heldur áfram. Þetta er líka svo gaman.“ Vill ekki festast í því sama Ævar hefur samt ekki látið bóka- formið duga heldur líka nýtt önnur listform, eins og til dæmis leikhús og hlaðvörp. „Það er gott að festast ekki í því sama. Ef maður nær að finna takt í einhverju er svo auð- velt að vera bara þar en mér finnst spennandi að breyta til,“ segir hann. „Það eru til ótal leiðir til þess að segja sögur, hvort sem það eru þættir, bíó, öpp eða tölvuleikir. Ég er með ótal hugmyndir sem bíða misþolinmóðar í röð í höfðinu á mér og ég hlakka til að takast á við.“ Hugsar til framtíðar „Vegna COVID hefur maður mikið verið fastur heima á árinu. Maður fer ekkert út að óþörfu. Og þegar kemur að sóttvarnaráðstöfunum hlýði ég þríeykinu, punktur. Þau vita best og þau eru búin að standa sig vel,“ segir Ævar. „Án þeirra hefðum við þurft að vera inni í allt sumar líka.“ Ævar hefur nýtt netið mikið síðan COVID byrjaði, meðal annars með því að halda stafræn útgáfuboð. Þá tók hann sig til í mars og las á hverjum degi upp úr bókunum sínum í gegnum netið í margar vikur. „Ég vildi leggja mitt af mörkum til að gera sóttkví bæri- legri fyrir fólk. Ég vissi að margir voru fastir heima og þegar allir dagar virðast eins er gott að hafa einhvern fastan punkt í tilver- unni,“ segir hann. „Þetta ástand er auðvitað stórfurðulegt, en maður reynir að vera jákvæður og minna sig á að aðrir hafa það mun verra. Það er líka svolítið fallegt að þegar allir urðu að halda sig heima var listin það sem fólk sótti í; bækurnar, bíómyndirnar, þætt- irnir, tónlistin og svo framvegis. Þannig að ég vona að þeir sem hrista höfuðið yfir listamanna- launum minnki hristinginn aðeins eftir COVID,“ segir Ævar kíminn. „Því er frábært að það hafi verið aukið við listamannalaunin og það sé verið að styðja við bakið á lista- fólki. Það þarf, þetta er risa bransi sem er í rosalega vondum málum.“ Þetta tekur enda Ævar er með einföld ráð fyrir les- endur sína til að komast í gegnum þetta erfiða tímabil. „Þetta tímabil mun taka enda og þá lítum við um öxl og tautum „muniði hvað þetta var fáránlegt?“ á sama tíma og við fögnum því að þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af þessu. Það kemur að því. Við þurfum bara að bíða smá lengur og einblína á það sem gefur gleði þangað til,“ segir Ævar. „Við erum öll saman í þessu og það er allt í lagi að vera pirraður. Það er fullkomlega eðlilegt. En ekki byrgja það inni, talaðu um það. Og reyndu eins og þú getur að finna þér eitthvað skemmtilegt að gera. Og ef þér dettur ekkert skemmtilegt í hug að gera, talaðu þá við mömmu og pabba eða vin til að finna eitthvað. Þetta tekur enda.“ Sjálfur segist Ævar ætla að nýta tímann til að skrifa næstu bækur og vinna að öðrum verkefnum, leika við son sinn og skoða allt góðgætið sem kemur í bóka- flóðinu. Ævar er nýbyrjaður með hlaðvarp um „Þín eigin“-bækurnar þar sem hann fjallar um gerð bókanna, svarar spurningum frá hlustendum og reynir að gefa verðandi rithöfundum góð ráð. Á þessum erfiðu tímum sem við erum öll að ganga í gegnum ráðleggur hann lesendum sínum að muna að þetta tekur enda, einblína á það sem gefur þeim gleði, tala um tilfinningar sínar og finna eitthvað skemmtilegt að gera með öðrum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Nýja bókin hans Ævars, Þín eigin undirdjúp, kemur út núna næsta þriðju- dag, 27. október. Kápan var teiknuð af listakonunni Evana Kisa. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Það er reyndar alltaf sagt að ef þú finnur vinnu við að gera það sem þú elskar sértu aldrei í vinnunni, en ég hef komist að því að það er í raun akkúrat öfugt. Ég er alltaf í vinnunni, því hausinn heldur áfram að malla þótt klukkan sé orðin fjögur og ég farinn út af skrif- stofunni. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.