Fréttablaðið - 23.10.2020, Side 18
Elvis Presley er
einn af mörgum
heimsþekktum
einstaklingum
sem keyrðu
vörubíl áður
en frægðin
bankaði á
dyrnar. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/GETTY
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Landsbankinn býður fyrirtækjum og einstaklingum
í atvinnurekstri hagstæðar leiðir við fjármögnun á nýjum
og notuðum atvinnutækjum og bifreiðum.
Hagstæð tækjafjármögnun
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Það eru ýmsir kostir sem fylgja starfi vörubílstjórans. Starfið er til að mynda tilvalið fyrir
rólyndisfólk sem kærir sig ekki
um mikil samskipti við annað
fólk. Þá býður starfið einnig upp á
möguleikann á að hlusta á tónlist
eða annað afþreyingarefni að eigin
vali auk þess sem það er hægt að
gleyma sér í djúpum hugsunum í
þögninni á vegum úti.
Það kemur því kannski ekki
á óvart að ýmsir listamenn hafa
reynslu sem vörubílstjórar og hafa
eflaust einhverjir þeirra æft línur
eða tekið lagið við stýrið.
n Á meðan leikarinn Robert Duvall
var í leiklistarnámi í New York,
þar sem samnemendur hans og
herbergisfélagar voru leikarar-
arnir Dustin Hoffman og Gene
Hackman, vann hann meðal
annars sem vörubílstjóri. Líkt og
bekkjarbræður hans átti Duvall
svo heldur betur eftir að slá í
gegn en hann lék í ódauðlegum
myndum á borð við To Kill a
Mockingbird, Apocalypse Now
og Guðföðursmyndunum.
n Viggo Mortensen keyrði vöru-
bíla og vann í slippnum í heima-
landi sínu, Danmörku, áður en
hann sló í gegn á hvíta tjaldinu.
n Leikarinn, uppistandarinn og
handritahöfundurinn Richard
Pryor átti ekki auðvelda æsku.
Hann ólst upp í vændishúsi sem
amma hans rak og móðir hans
vann í. Hann var misnotaður
kynferðislega sjö ára gamall og
móðir hans, sem var áfengis-
sjúklingur, yfirgaf hann þegar
hann var tíu ára. Hann ólst því
upp ásamt þremur systkina-
börnum í umsjá ömmu sinnar
sem beitti hann miklu ofbeldi.
Eftir að hann var rekinn úr skóla
fjórtán ára vann hann meðal
annars sem húsvörður á stripp-
stað, skópússari, kjötvinnslu-
maður, trommari og auðvitað
vörubílstjóri.
n Skoski leikarinn, og sennilega
þekktasti Bond-leikarinn, Sean
Connery er einn þeirra sem
keyrðu vörubíl á sínum yngri
árum en faðir hans var einnig
vörubílstjóri.
n Leikstjórinn James Cameron
keyrði vörubíl á meðan hann
safnaði peningum til þess að
kaupa upptökubúnað og kenndi
sjálfum sér kvikmyndagerð.
Þá nýtti hann tímann á meðan
hann keyrði til þess að brjóta
heilann um hugsanleg handrit
og ef hann fékk góða hugmynd
þá keyrði hann út í vegakant og
skrifaði hana niður. Það virðist
hafa margborgað sig en Camer-
on á heiðurinn af mörgum far-
sælustu stórmyndum allra tíma.
n Írski leikarinn Liam Neeson
keyrði vörubíl fyrir Guinness (en
ekki hvað?) og segir sagan að
það hafi verið samstarfsmaður
hans sem hvatti hann til þess að
prófa sig áfram í leiklistinni.
n Leikarinn Charles Bronson lék í
myndum á borð við Once Upon
a Time in the West eftir Sergio
Leone og Death Wish. Eftir að
faðir hans lést þegar Bronson
var ekki nema tíu ára fór hann að
vinna í kolanámu en sagan segir
að fjölskyldan hafi verið svo
fátæk að hann þurfti einu sinni
að klæðast kjól af systur sinni í
skólanum. Í seinni heimsstyrj-
öldinni byrjaði Bronson að keyra
vörubíla fyrir bandaríska herinn
og varð fljótlega stórskotaliði
og hlaut á endanum Fjólubláa
hjartað, viðurkenningu sem
veitt er þeim sem særast eða
láta lífið við skyldustörf.
n Sjálfur Elvis Presley vann einnig
sem vörubílstjóri um skeið. Talið
er að hárgreiðslan fræga sem
hann skartaði hafi jafnvel átt
upptök sín á þeim tíma þar sem
hún hafi verið í takt við vörubíl-
stjóratísku þess tíma. Gaman
er að geta þess að Presley fór á
þessum tíma í áheyrnarprufu í
þeirri von að verða valinn sem
söngvari fyrir hljómsveit kauða
að nafni Eddie Bond. Að lokinni
áheyrnarprufu ráðlagði Bond
honum að halda sig við vöru-
bílakaakstur vegna þess að hann
„myndi aldrei meika það sem
söngvari“.
4 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
Valinkunnir vörubílstjórar
Flestir leikarar og aðrir þekktir einstaklingar byrjuðu feril sinn annars staðar en fyrir framan mynda-
vélina. Hérna eru nokkur vel þekkt andlit sem störfuðu við vörubílaakstur áður en frægðin skall á.
Richard Pryor keyrði vörubíl.