Fréttablaðið - 23.10.2020, Side 20

Fréttablaðið - 23.10.2020, Side 20
Gæti gagnast hernum Mögulega verða einnig leigubílar og fólksflutningabílar fjarstýrðir frá skrifstofum í framtíðinni. Eina raunverulega hættan, segja framleiðendur, er að hryðjuverka- menn brjótist inn í hugbúnaðinn og taki stjórnina yfir. Allt hefur því verið gert til að dulkóða fjar- skiptin og loka sjálfkrafa búnaði ökutækjanna ef starfsmaður missir aðgang að þeim. „Enginn getur ábyrgst að aldrei verði brotist inn í svona kerfi,“ segir Christian Facchi, háskólaprófessor í hagnýtum vísindum. Hann telur að opinber yfirvöld ættu að setja strangar reglur um öryggi fjarstýrðra öku- tækja. Á hinn bóginn telur hann að fjarstýrðir bílar geti reynst mun gagnlegri en sjálfkeyrandi. Bandaríkjaher hefur sýnt mikinn áhuga á þessu verkefni. Rann- sóknarstofa hersins hefur verið að þróa fjarstýrð könnunarvélmenni á hjólum sem gætu nýst í hernaði. Slík tæki gætu farið yfir erfið land- svæði, jafnvel kannað byggingar og náð í gögn og upplýsingar. Heimsending á hjólum Á vef tímaritsins Forbes, forbes. com, er fjallað um fjar- stýrðan lítinn vörubíl frá Phantom Auto. Slík tæki yrðu notuð til að sækja varning á vörulager og flytja til dæmis í skip. Bíllinn er sjálf- virkur og mannshöndin kæmi hvergi nærri. Þannig verður allur akstur leystur með skynjurum og gervigreind en „ökumaðurinn“ situr á skrifstofu með fjarskipta- búnað sem hjálpar til við starfið ef á þarf að halda. Phanton Auto tæknin felur í sér að sá sem stýrir búnaðinum getur þess vegna verið í þúsunda kílómetra fjarlægð. Bílarnir eru mannlausir en Phantom Auto gerir ráð fyrir að fjarstýringarbúnaðurinn geri alla vinnu nákvæmari og hentugri. Þannig hefur fyrirtækið framleitt sjálfkeyrandi vagn sem flytur mat í heimsendingarþjónustu upp að dyrum. Vagnarnir hafa þegar verið teknir í notkun í Kaliforníu. Heimsendingarþjónusta hefur stóraukist á COVID-tímum. Vegna hræðslu fólks um að smit berist með vörunum hafa stærstu vöruhúsin verið að breyta verkferlum sínum. Stærsta áskorunin er að mannshöndin komi ekki nálægt pökkunum. Það er tæknifyrirtækið Phantom Auto sem hefur skapað framúr- stefnulega lausn. Hún er fólgin í því að fjarstýringarbúnaður sem stjórnað er inni á skrifstofu getur ekið lyftaranum um allt vöruplássið og stýrt hreyfingum hans. Sá sem stýrir getur unnið fjarri vöruhúsinu og hægt er að fækka starfsfólki mikið sem er á staðnum. Lyftarinn ekur vörunum beint inn í f lutningavagn sem fer með vöruna á pósthús. „Við höfum verið að afgreiða þessi tæki til fjölda viðskipta- vina okkar í Bandaríkjunum og í Evrópu,“ segir Elliot Katz, annar stofnanda Phanton Auto, í frétt sem birtist á bbc.com. „Mikil eftir- spurn er eftir þessum búnaði og margir viðskiptavinir okkar hafa áhuga á þessu kerfi,“ bætir hann við. Ökumaður á skrifstofu Líklega halda margir að einhver standi með fjarstýringu í hendi og stýri lyfturunum. Þannig er þetta ekki. Starfsmaður situr inni á skrifstofu með sérútbúna fjar- stýringu og fjölda skjáa þar sem hann getur séð allt umhverfið þar sem lyftarinn er og séð þegar hann keyrir um vörulagerinn. Sá sem stýrir fjarstýringunni heyrir sömuleiðis öll umhverfishljóð þar sem lyftarinn ekur. Í rauninni er starfsmaðurinn eins og öku- maður með stýri og pedala í gólfi. Ökumaðurinn getur alltaf séð ef eitthvað fer úrskeiðis. Ef ein- hver gengur í veg fyrir lyftarann stöðvar ökumaðurinn tækið. Mikið hefur verið rætt um sjálf- keyrandi bíla. Fjarstýrðir bílar eru á margan hátt hagkvæmari því þeir hafa í raun „ökumann“. Þann- ig hefur þessi tækni verið að þróast í önnur akandi tæki. Sjálfkeyrandi vöruflutningar Meðal þeirra fyrirtækja sem starfa í fjarskiptabúnaði er bandaríska sprotafyrirtækið Teleo. Það hefur verið að sérhæfa sig og þróa lausnir á tækjum fyrir byggingariðnaðinn. Fyrirtækið er að byrja prófun hjá einum viðskiptavini en það er fjar- stýrt tæki á hjólum sem getur flutt búnað á milli staða. Í framtíðinni munu starfsmenn sitja inni á skrif- stofum og fjarstýra ýmsum farar- tækjum í nálægum byggingafram- kvæmdum. Teleo trúir því að þetta muni auka öryggi á vinnusvæðinu. Vinay Shet, framkvæmdastjóri Teleo, segir að erfitt sé að anna eftirspurn eftir meiraprófsbílstjór- um um þessar mundir. „Með því að breyta starfi þessara ökumanna í skrifstofustarf fáum við breiðari hóp fólks í vinnu.“ Fjarstýrðir lyftarar í vöruhúsum Heimsfaraldurinn hefur flýtt fyrir á mörgum sviðum tækninýjunga. Meðal þeirra eru fjarstýrðir bílar og lyftarar. Mörg vöruhús í Evrópu og Bandaríkjunum hafa tekið þessa tækni í notkun. Hér situr starfsmaður og stýrir fjarstýrðu farartæki sem er búið nýjustu tækni frá Phantom Auto. MYNDIR/AÐSENDAR Vörubíll sem er sjálfkeyrður og gegnir margvíslegu hlutverki. Þessi kemur heim til þín með heitan mat beint frá því veitingahúsi sem þú velur að skipta við. Sjálfkeyrandi heimsending. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Smiðjuvegur 30, 200 Kópavogur BÍLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Mest lesna bílablað landsins kemur út þriðjudaginn 3. nóvember næstkomandi. Ritstjóri blaðsins er Njáll Gunnlaugsson. Tryggðu þér pláss í mest lesna blaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir: Atli Bergmann, markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5657 / atli@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.