Fréttablaðið - 23.10.2020, Page 20
Gæti gagnast hernum
Mögulega verða einnig leigubílar
og fólksflutningabílar fjarstýrðir
frá skrifstofum í framtíðinni.
Eina raunverulega hættan, segja
framleiðendur, er að hryðjuverka-
menn brjótist inn í hugbúnaðinn
og taki stjórnina yfir. Allt hefur
því verið gert til að dulkóða fjar-
skiptin og loka sjálfkrafa búnaði
ökutækjanna ef starfsmaður missir
aðgang að þeim. „Enginn getur
ábyrgst að aldrei verði brotist inn í
svona kerfi,“ segir Christian Facchi,
háskólaprófessor í hagnýtum
vísindum. Hann telur að opinber
yfirvöld ættu að setja strangar
reglur um öryggi fjarstýrðra öku-
tækja. Á hinn bóginn telur hann
að fjarstýrðir bílar geti reynst mun
gagnlegri en sjálfkeyrandi.
Bandaríkjaher hefur sýnt mikinn
áhuga á þessu verkefni. Rann-
sóknarstofa hersins hefur verið að
þróa fjarstýrð könnunarvélmenni
á hjólum sem gætu nýst í hernaði.
Slík tæki gætu farið yfir erfið land-
svæði, jafnvel kannað byggingar og
náð í gögn og upplýsingar.
Heimsending á hjólum
Á vef tímaritsins Forbes,
forbes. com, er fjallað um fjar-
stýrðan lítinn vörubíl frá Phantom
Auto. Slík tæki yrðu notuð til að
sækja varning á vörulager og flytja
til dæmis í skip. Bíllinn er sjálf-
virkur og mannshöndin kæmi
hvergi nærri. Þannig verður allur
akstur leystur með skynjurum og
gervigreind en „ökumaðurinn“
situr á skrifstofu með fjarskipta-
búnað sem hjálpar til við starfið
ef á þarf að halda. Phanton Auto
tæknin felur í sér að sá sem stýrir
búnaðinum getur þess vegna verið
í þúsunda kílómetra fjarlægð.
Bílarnir eru mannlausir en
Phantom Auto gerir ráð fyrir að
fjarstýringarbúnaðurinn geri alla
vinnu nákvæmari og hentugri.
Þannig hefur fyrirtækið framleitt
sjálfkeyrandi vagn sem flytur mat
í heimsendingarþjónustu upp að
dyrum. Vagnarnir hafa þegar verið
teknir í notkun í Kaliforníu.
Heimsendingarþjónusta hefur stóraukist á COVID-tímum. Vegna hræðslu fólks
um að smit berist með vörunum
hafa stærstu vöruhúsin verið að
breyta verkferlum sínum. Stærsta
áskorunin er að mannshöndin
komi ekki nálægt pökkunum.
Það er tæknifyrirtækið Phantom
Auto sem hefur skapað framúr-
stefnulega lausn. Hún er fólgin
í því að fjarstýringarbúnaður
sem stjórnað er inni á skrifstofu
getur ekið lyftaranum um allt
vöruplássið og stýrt hreyfingum
hans. Sá sem stýrir getur unnið
fjarri vöruhúsinu og hægt er að
fækka starfsfólki mikið sem er á
staðnum. Lyftarinn ekur vörunum
beint inn í f lutningavagn sem fer
með vöruna á pósthús.
„Við höfum verið að afgreiða
þessi tæki til fjölda viðskipta-
vina okkar í Bandaríkjunum og í
Evrópu,“ segir Elliot Katz, annar
stofnanda Phanton Auto, í frétt
sem birtist á bbc.com. „Mikil eftir-
spurn er eftir þessum búnaði og
margir viðskiptavinir okkar hafa
áhuga á þessu kerfi,“ bætir hann
við.
Ökumaður á skrifstofu
Líklega halda margir að einhver
standi með fjarstýringu í hendi
og stýri lyfturunum. Þannig er
þetta ekki. Starfsmaður situr inni
á skrifstofu með sérútbúna fjar-
stýringu og fjölda skjáa þar sem
hann getur séð allt umhverfið
þar sem lyftarinn er og séð þegar
hann keyrir um vörulagerinn. Sá
sem stýrir fjarstýringunni heyrir
sömuleiðis öll umhverfishljóð
þar sem lyftarinn ekur. Í rauninni
er starfsmaðurinn eins og öku-
maður með stýri og pedala í gólfi.
Ökumaðurinn getur alltaf séð ef
eitthvað fer úrskeiðis. Ef ein-
hver gengur í veg fyrir lyftarann
stöðvar ökumaðurinn tækið.
Mikið hefur verið rætt um sjálf-
keyrandi bíla. Fjarstýrðir bílar eru
á margan hátt hagkvæmari því
þeir hafa í raun „ökumann“. Þann-
ig hefur þessi tækni verið að þróast
í önnur akandi tæki.
Sjálfkeyrandi vöruflutningar
Meðal þeirra fyrirtækja sem starfa
í fjarskiptabúnaði er bandaríska
sprotafyrirtækið Teleo. Það hefur
verið að sérhæfa sig og þróa lausnir
á tækjum fyrir byggingariðnaðinn.
Fyrirtækið er að byrja prófun hjá
einum viðskiptavini en það er fjar-
stýrt tæki á hjólum sem getur flutt
búnað á milli staða. Í framtíðinni
munu starfsmenn sitja inni á skrif-
stofum og fjarstýra ýmsum farar-
tækjum í nálægum byggingafram-
kvæmdum. Teleo trúir því að þetta
muni auka öryggi á vinnusvæðinu.
Vinay Shet, framkvæmdastjóri
Teleo, segir að erfitt sé að anna
eftirspurn eftir meiraprófsbílstjór-
um um þessar mundir. „Með því
að breyta starfi þessara ökumanna
í skrifstofustarf fáum við breiðari
hóp fólks í vinnu.“
Fjarstýrðir lyftarar í vöruhúsum
Heimsfaraldurinn hefur flýtt fyrir á mörgum sviðum tækninýjunga. Meðal þeirra eru fjarstýrðir
bílar og lyftarar. Mörg vöruhús í Evrópu og Bandaríkjunum hafa tekið þessa tækni í notkun.
Hér situr starfsmaður og stýrir fjarstýrðu farartæki sem er búið nýjustu tækni frá Phantom Auto. MYNDIR/AÐSENDAR
Vörubíll sem er sjálfkeyrður og
gegnir margvíslegu hlutverki.
Þessi kemur
heim til þín
með heitan mat
beint frá því
veitingahúsi
sem þú velur
að skipta við.
Sjálfkeyrandi
heimsending.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Smiðjuvegur 30, 200 Kópavogur
BÍLABLAÐ
FRÉTTABLAÐSINS
Mest lesna bílablað landsins kemur út þriðjudaginn 3. nóvember næstkomandi.
Ritstjóri blaðsins er Njáll Gunnlaugsson.
Tryggðu þér pláss í mest lesna blaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Atli Bergmann, markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5657 / atli@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR