Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.10.2020, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 23.10.2020, Qupperneq 22
Sleggjan býður meðal annars upp á smurþjónustu fyrir vöru- og hópbifreiðar, stórar sem smáar, vélaviðgerðir, viðgerð á bremsu-, stýris- og hjólabúnaði, rafmagns- og ljósaviðgerðir svo eitthvað sé nefnt. Sleggjan er vel tækjum búin og er þekkt fyrir stuttan biðtíma. „Við bjóðum einnig upp á bilana- greiningu og tölvulestur fyrir allar helstu tegundir vörubifreiða sem og bilanagreiningu og tölvu- lestur fyrir ABS/EBS-bremsukerfi í aftaní vögnum. Við erum með mjög gott og samkeppnishæft tölvu- kerfi til bilanagreininga og getum með þeim tengst öllum helstu bíltegundum,“ segir Guðmundur Björnsson framkvæmdastjóri Sleggjunnar. Guðmundur segir markmið Sleggjunnar vera að bjóða við- skiptavinum sínum framúrskar- andi þjónustu hvenær sem þörf er á. Sleggjan er með starfsstöðvar á tveimur stöðum, í Desjamýri 10 í Mosfellsbæ og þann 1. september var ný starfsstöð opnuð í Kletta- görðum 4 í Reykjavík. „Það er liður í að auka þjónust- una til viðskiptavina okkar að vera á tveimur stöðum,“ segir Guð- mundur. „Það eru allir velkomnir á báða staðina okkar. Við tökum vel á móti öllum og viðskiptavinahópurinn er fjölbreyttur; allt frá stórum landflutningafyrirtækjum og hóp- ferða- og verktakafyrirtækjum til einstaklinga með jafnvel bara einn bíl eða tæki sem þarf að þjónusta. Við veitum sömu þjónustu á báðum stöðum fyrir utan smurþjónustu sem eingöngu fer fram í Desjamýri 10.“ Guðmundur segir að við- tökurnar við opnun verkstæðisins í Klettagörðum hafi verið mjög góðar. „Sú aðstaða er mjög góð. Hún er um 600 fermetrar og fimm innkeyrslubil. Þar taka strákarnir okkar vel á móti viðskiptavinum okkar. Það má nefna það að við getum boðið upp á dekkjaskipti fyrir vörubíla og vagna, þó við gerum ekki beint mikið út á það. Þetta er bara einn liður í bættri þjónustu til viðskiptavina okkar. Þó við séum ekki með almenna smurþjónustu í Klettagörðum getum við bætt á rúðuvökva, glussa og höfum einnig til staðar ýmsar olíur til að bæta á vélar og gírkassa.“ Tímapantanir eru í síma 588 4970. Nánari upplýsingar á sleggjan.is. Sleggjan nú á tveimur stöðum Sleggjan Þjónustuverkstæði ehf. er alhliða þjónustuverkstæði fyrir atvinnubifreiðar og aftaní­ vagna. Sleggjan byggir á 30 ára sögu og býr yfir gríðarlegri þekkingu og reynslu á sínu sviði. Guðmundur Björnsson, framkvæmdastjóri Sleggjunnar, við mynd af stofn- andanum Birni Guðmundssyni en hann lést árið 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Á starfsstöð Sleggjunnar í Desjamýri 10 í Mos- fellsbæ er tekið vel á móti öllum. MYND/AÐSEND Sleggjan er nú á tveimur stöðum en í september var ný starfs- stöð opnuð í Klettagörðum 4 með góðri aðstöðu. MYND/AÐSEND Bílaleikir hafa löngum verið vinsæll og stór hluti af tölvu-leikjageiranum en til eru leikir sem skera sig úr í fjöldanum því þeir leggja áherslu á raun- verulega eðlisfræði og virkni bíla, skynsamlega eldsneytisnotkun og vandasaman akstur í erfiðri færð í staðinn fyrir hraða og gla Þetta eru leikirnir MudRunner og SnowRunner og forveri þeirra, Spintires. Leikirnir snúast um að keyra vörubíla, trukka og jeppa á erfiðum vegum og í erfiðri færð þar sem drulla og snjór getur farið illa með leikmenn sem eru ekki á réttu bílunum eða dekkjunum. Leikirnar hafa notið mikilla vinsælda þrátt fyrir einfalda hugmynd og höfða ekki bara til þeirra sem hafa brenn- andi áhuga á vélum, vörubílum og vöruflutningum. Drullugóðir leikir Sá fyrsti hét Spintires og hann kom út á Windows árið 2014. Hann snýst um að líkja eftir því hvernig það er í raun og veru að keyra á erfiðum vegum og leikmenn þurfa að drösla alls kyns þungum förmum í gegnum drulluna í Rússlandi á gömlum sovéskum trukkum, með ekkert nema kort og áttavita sér til aðstoðar. Þar sem leikurinn leggur áherslu á að líkja eftir raun- verulegum torfæruakstri þurfa leikmenn að taka tillit til allra aðstæðna og ástands vegarins í akstri. Það er ekki einfaldlega hægt að ýta á bensíngjöfina og vona það besta. Spintires naut mikilla vin- sælda strax eftir útgáfuna og hefur fengið alls kyns uppfærslur frá því hann kom út. Önnur útgáfa af Spintires kom út árið 2017, sem ber nafnið Mud- Runner. Hann var gefinn út fyrir Windows, Xbox One og PlaySta- tion 4. Hann gengur út á það sama og Spintires en bætir við nýjum svæðum til að kanna og ýmsum nýjum áskorunum. Margir hafa hrósað leiknum mikið fyrir fallegt útlit og raunverulega teiknaða drullu, sem hagar sér og virkar eins og í alvörunni. Fór norður í vor Framhaldið af MudRunner kom svo út núna í vor og ber heitið SnowRunner. Eins og nafnið gefur til kynna er áherslan öðruvísi og í honum eru ný svæði sem eru heldur kaldari svo þar reynir líka á akstur í snjó og hálku, en ekki bara drullu. Svæðin eru líka mun stærri og fleiri bílar eru í boði. Að þessu sinni fer leikmaðurinn líka út fyrir Rúss- land og heimsækir Bandaríkin. Að sjálfsögðu býður leikurinn líka upp á alls kyns ný verkefni og nýjar áskoranir, sem sumar hverjar eru töluvert flóknari en í fyrri leikjum. Með því að klára verkefni afla leikmenn sér tekna sem þeir geta svo notað til að kaupa ný farartæki eða uppfæra þau gömlu, en alls er boðið upp á 40 farartæki. Þetta hljómar einfalt og eins og þetta gæti fljótt orðið leiðinlegt, en margir segjast verða algjörlega háðir því að leysa áskoranirnar sem leikirnir bjóða upp á og að koma sér upp öflugum bílaflota til að geta flutt hvað sem er, hvert sem er. Flytja stafræna farma í drullu og snjó Tölvuleikir sem snúast um bíla hafa lengi notið mikilla vinsælda en á síðustu árum hafa leikir sem snúast um að keyra trukka, jeppa og vörubíla og flytja þunga farma í erfiðri færð slegið í gegn. MudRunner og SnowRunner leikirnir snúast um að líkja eftir því hvernig það er að keyra stóra trukka með þunga farma á erfiðum vegum í slæmri færð. Leikmenn þurfa að taka tillit til allra aðstæðna og ástands vegarins og fara sparlega með eldsneyti. MYNDIR/FOCUS HOME INTERACTIVE Margir hrósa leikjunum fyrir fallegt útlit og raunverulega teiknaða drullu og það er hægt að kanna óbyggðirnar á tugum ólíkra farartækja. 8 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.