Fréttablaðið - 23.10.2020, Page 30
Elsku eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Bernhard Reynir Schmidt
lést laugardaginn 17. október.
Útför fer fram fyrir aðstandendur og
vini þriðjudaginn 27. október kl. 13.00.
Athöfninni verður streymt á Facebook
(Útför Bernhards Reynis Schmidt)
Bryndís Gísladóttir
Kristjana Schmidt Birgir Gíslason
Fríða Reynisdóttir Örvar Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Sonur minn, faðir okkar, bróðir og afi,
Gunnar Þorsteinn
Halldórsson
lést mánudaginn 19. október.
Anna Einarsdóttir
Bjarney Gunnarsdóttir Rakel Rán Sigurbjörnsdóttir
Þorsteinn Daði Gunnarsson
Jón Sigurður Gunnarsson
Einar Halldórsson
Fríða Halldórsdóttir Þórður Marelsson
og afabörn.
Innilegar þakkir fyrir veitta samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Helgu Helgadóttur
Álfaskeiði 102,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
HERU heimaþjónustu og líknardeildar
Landspítalans fyrir hlýhug og góða umönnun.
Helgi Freyr Kristinsson Helga Sigurbjörg Árnadóttir
Kristinn Freyr Kristinsson Hildur Ísfold Hilmarsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samhug og
hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Gunnars Þóris Guðjónssonar
bakarameistara frá Sauðárkróki,
Álfaheiði 8b, Kópavogi,
Sólrún J. Steindórsdóttir
Guðbjörg Gunnarsdóttir Sigurjón Sæland
Kristín Gunnarsdóttir Hákon Sigþórsson
Gunnar Andri Gunnarsson Herdís Guðmundsdóttir
Guðjón Baldur Gunnarsson Anna Lára Ármannsdóttir
Guðjón, Þórður, Andrea, Aðalbjörg, Steindór, Sólrún,
Iðunn, Hlín, Eydís, Eva, Bjarni, Hektor, Jóhann Heiðar,
Björn Þórir, Frosti og fjölskyldur.
Kórastarf er eitt af því sem gengið hefur úr skorðum í kófinu. Það liggur meira og minna niðri nú, að sögn Gísla Magna Sigríð-arsonar, söngvara og kór-
stjóra. Hann segir þó alltaf einhverja
mæta til að syngja í messum en þeir séu
færri en venjulega. „Ég var að syngja í
útvarpsmessu síðasta sunnudag og þá
vorum við bara fjögur,“ upplýsir hann.
„Í tilkynningum frá yfirvöldum hefur
bara einu sinni síðan í vor verið minnst
á kóra, ég er svolítið hissa á því þar sem
starfsemi þeirra er venjulega komin vel
í gang um þetta leyti.“
Gísli er stjórnandi Léttsveitar Reykja-
víkur sem er um hundrað kvenna kór.
Hann situr líka í stjórn Félags íslenskra
kórstjóra og fylgist með starfi kollega
um allt land. „Kórar eru í fríi að lang-
stærstum hluta. Einstaka er eitthvað
að reyna. Sjálfur er ég að vinna gegnum
Zoom og streymi á fésbók með Létt-
sveitinni. Tek eina rödd fyrir í einu, tala
við félagana og geri æfingar. Ég veit að
Heiðar Sigurðsson, kórstjóri á Höfn,
er líka með Kvennakór Hornafjarðar
í Zoomi,“ segir hann og heldur áfram.
„Við slíkar aðstæður fer fólk auðvitað
á mis við það yndi sem kórstarfi fylgir,
samveruna og samhljóminn. Sumir
félagar taka þessu létt og segja: „Þetta
gengur yfir og við reynum að læra lögin
á meðan“. Aðrir ná ekki f lugi og ætla að
taka sér frí fram yfir áramót. Enginn
veit hvort það verða aðventu-eða jóla-
tónleikar.“
Kórstarfið krufið
„Undrið að syngja í kór“ nefnist meist-
araverkefni Gísla sem lauk námi við
tónlistardeild LHÍ í fyrrahaust. Það
fjallar um gildi kórastarfs í víðu sam-
hengi. „Sjálfur hef ég starfað í kór frá
ellefu ára aldri og hef alltaf heillast af
því sem kórstarf kallar fram. Það snýst
ekki bara um sönginn sjálfan heldur
samfélagið sem skapast gegnum hann.
Ég var að reyna að kryfja það og tók við-
töl við konur úr Léttsveitinni, hinum 25
ára kór sem ég hef stjórnað síðustu þrjú
ár – og efndi til viðburðar í Háteigs-
kirkju sem var hluti af verkefninu.“
Lögin hans afa
Gísli kveðst einnig kenna söng í tveim-
ur skólum, Listaskóla Mosfellsbæjar
og Tónlistarskóla Kópavogs. „Það eru
einkatímar og vel gætt að fjarlægða-
mörkum. Hóptímar eru í pásu,“ tekur
hann fram. Auk þessa er hann að gefa
út plötu með lögum eftir afa sinn, Stein-
grím M. Sigfússon. „Ég tók fimmtán
f lott lög sem fæst hafa komið út áður
og öll eru í nýjum útsetningum,“ lýsir
hann. „Platan var tekin upp í sumar,
ég var með hljómsveit og náði að halda
tvenna tónleika þegar COVID-fárinu
létti um tíma, aðra í Reykjavík og hina
vestur á Patró, ég er þaðan. Platan ætti
að koma út í nóvember, Nóttin og þú,
heitir hún. Ég er að reyna að selja hana
fyrir fram gegnum Karolina Fund.“
Gísli Magna Sigríðarson er svolítið
spes nafn, segi ég. „Já, upphaf lega var
ég skrifaður Magnason og breytti því
en vildi ekki láta Magnanafnið falla út.
Þar mátti ekki vera bandstrik á eftir,
kannski má það núna!“
gun@frettabladid.is
Enginn veit hvort það
verða aðventutónleikar
Á venjulegu ári hefðu mörg þúsund manns á landinu verið byrjuð í vetrarstarfi með
kórum sínum í október. Gísli Magna Sigríðarson kórstjóri segir allt með öðrum hætti
nú. Fólk fari á mis við það yndi sem kórstarfinu fylgi, samveruna og samhljóminn.
„Sumir vilja taka frí en aðrir reyna að halda áfram gegnum Zoom,“ segir Gísli sem er í síðarnefnda hópnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sjálfur hef ég starfað í kór frá
ellefu ára aldri og hef alltaf
heillast af því sem kórstarf
kallar fram. Það snýst ekki
bara um sönginn sjálfan heldur
samfélagið sem skapast gegn-
um hann.
Pelé er áttræður í dag. Hann
er talinn einn besti knatt-
spyrnumaður sögunnar. Hóf
15 ára að spila með Santos
í heimalandinu, Brasilíu
og hélt sig þar til 1974 en
lék tvö ár með New York
Cosmos. Hann byrjaði 16 ára
í brasilíska landsliðinu og
náði þrisvar heimsmeistara-
titli með því, árin 1958, 1962
og 1970.
Svarta perlan, en það var
Pelé kallaður, lék sinn síð-
asta leik 1. október árið 1977
og notar nú göngugrind.
Þ E T TA G E R Ð I S T 23 . O K T Ó B E R 19 4 0
Pelé (Svarta perlan) fæddist
2 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT