Fréttablaðið - 23.10.2020, Page 34

Fréttablaðið - 23.10.2020, Page 34
Sigmundur Ernir Rúnars-son sendir frá sér ljóða-bók ina Skáldaley f i á þessu hausti en hann á einmitt fjörutíu ára rit-höfundarafmæli í ár. Um efni nýju ljóðabókarinnar segir hann: „Þar er ég að fjalla um núið sem við tökum ekki eftir vegna þess að við erum svo uppfull af hugsunum um morgundaginn og framtíðina. Við stöldrum aldrei við það sem er en erum jafnframt alltof upptekin af því sem var. Þetta er kannski helsti my l lu s t e i n n i n n um háls okkar.“ Þessi orð skálds- ins hljóma eins og ljóðin séu trega- full. „Það verður alltaf að vera tregi í ljóðu m, ein- hver angist og ef til vill sársauki,“ segir Sigmundur Er nir. „Ég hef alltaf reynt að yrkja í samræmi við minn eigin breyskleika og va n mát t . Það sem er nefnilega hvað áhugaverð- ast í öllu sem maður skrifar er hvernig mann- eskjan tekst á við sjálfa sig, umhverfi sitt, sína nánustu og samferðafólkið. Þar er komin ráðgátan eilífa. Þar fyrir utan er söknuðurinn sífellt umfjöllunar- efni, svo og ástin og væntumþykjan, þær óútskýranlegu stöllur.“ Hvers konar söknuð á hann við, spyr blaðamaður, og fær svarið: „Söknuður yfir því liðna. Söknuður yfir að missa sína nánustu. Sökn- uður yfir því að geta ekki upplifað aftur það sem var manni dýrmætt. Ég held að söknuðurinn sé miklu stærri hluti af okkur en við viljum vera láta. Maðurinn er að mörgu leyti búinn til úr söknuði og ef hann getur unnið sæmilega úr honum er hann að mörgu leyti hólpinn.“ Í bókinni er einnig að finna nátt- úruljóð. „Ég er mjög elskur að land- inu mínu, ferðast mikið og yrki um það,“ segir Sigmundur Ernir. Ljóðsýn á lífið Fyrsta ljóðabók hans kom út árið 1980 þegar hann var í menntaskóla. „Hún var myndskreytt af Kristni E. Hrafnssyni samstúdent mínum sem síðar varð landsfrægur mynd- höggvari og myndlistarmaður. Næsta bók var líka myndskreytt af vini mínum úr M A, Þor valdi Þor stei ns sy n i sem síðar varð l a n d s f r æ g u r m y n d l i s t a r - maður, og þriðja bókin var gefin út af enn einum bek k jarbróður m í n u m , Ó l a Birni Kárasyni sem landsmenn þekkja úr þing- mennskunni. Fyrsta bókin var gef in út af Víkurblaðinu á Húsavík haustið 1980 en Jóhannes Sigurjónsson rit- stjóri og Arnar Björnsson, síðar íþróttafréttamað- ur, ætluðu sér með henni að hefja viðamikla bókaútgáfu. En ljóða- bókin Kringumstæður var fyrsta og síðasta bók sem Víkurblaðið gaf út,“ segir skáldið með skelmisglott á vör. Sigmundur Ernir hefur sent frá sér á þriðja tug bóka af margvíslegu tagi, en aldrei sagt skilið við ljóða- gerðina. „Alltaf þegar ég hef gefið út ljóðabók held ég að það sé síðasta ljóðabókin mín, ég sé orðinn upp- urinn en nokkrum vikum seinna er ég byrjaður að yrkja aftur. Þetta er að einhverju leyti æfing, maður hefur ljóðsýn á lífið, gengur fram hjá ljósastaur og það verður ósjálf- rátt efni ljóðs vegna þess að maður er búinn að kenna sjálfum sér að horfa þannig á umhverfið. Þetta er líka að einhverju leyti árátta, mjög sterk hneigð sem lætur mann ekki í friði, blessunarlega.“ Staldrar við hvert orð Sigmundur Ernir er meðal annars höfundur fjölmargra ævisagna. Hann segir ljóðagerð allt annars eðlis en prósagerð. „Ljóðagerð er að því leyti öðruvísi en prósagerð að ég staldra miklu lengur við hvert orð og hverja hugmynd því ég vil hafa ljóðin meitluð. Fæst þeirra ljóða sem ég yrki rata á prent. Það er vegna þess að mér finnst að hvert ljóð þurfi að fanga eitthvert augna- blik og galdur. Ef ljóð nær ekki að fanga eitthvað sem skilur eftir ágenga tilfinningu hjá lesendum, þá er það ekki gott ljóð.“ Hann er hæstánægður með stöðu ljóðsins í nútímanum. „Öll þess fjörutíu ár sem ég hef verið að yrkja og gefa út ljóðabækur hefur ljóðinu alltaf verið spáð dauða og alltaf meiri og hrikalegri örlögum eftir því sem áratugunum hefur f leygt fram. Núna þegar 20 ár eru liðin af nýrri öld hefur ljóðið sjaldan staðið í jafnmiklum blóma. Kröft- ug, metnaðarfull og góð ljóðskáld senda frá sér frumlegar og áleitnar bækur. Og vittu til, unga fólkið sinnir ljóðagerð sem aldrei fyrr. Þetta finnst mér svo gott vegna þess að án lýríkur er lífið lítils virði.“ EF LJÓÐ NÆR EKKI AÐ FANGA EITTHVAÐ SEM SKILUR EFTIR ÁGENGA TILFINN- INGU HJÁ LESENDUM, ÞÁ ER ÞAÐ EKKI GOTT LJÓÐ. BÆKUR Vetrarmein Ragnar Jónasson Útgefandi: Veröld Fjöldi síðna: 240 Ragnar Jónasson er m e ð a l þ e k k t u s t u íslensku rithöfunda samtímans en bækur hans hafa selst í einni og hálfri milljón ein- taka um veröld víða. Hann kvaddi sér hljóðs í íslenskum glæpasögu- heimi árið 2009 með bókinni Fölsk nóta en þar kom lögreglumaðurinn Ari Þór Arason fyrst við sögu. Nú tólf bókum síðar er Ari aðalsöguhetjan í nýjustu bókinni, Vetrarmein, eins og raunar í f lestum þeim sögum sem á heimasíðu Ragnars eru flokk- aðar undir Dark Iceland og eiga það sameiginlegt að gerast á eða í kringum Siglufjörð. Í þe s s a r i bók , Vet r a r mei n, sem gerist um páskana er Siglufjörður troð- fullur af ferðamönn- um í skíðagöllum og minnir einna helst á Ichgl eða Aspen í lýsingum höfundar þótt enginn blási í farsóttarf lautu að þessu sinni. Ari, sem orðinn er varð- stjóri í lögreglunni, á von á syni sínum og móðu r hans í heimsókn y f ir hafið um hátíðina og vonast því eðli- lega eftir tíðinda- litlum páskum en verður ekki að ósk sinni. Ung stúlka finnst látin á gangstétt við Aðalgötuna á aðfara- nótt skírdags og svo virðist við fyrstu sýn sem andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti en málin f lækjast og Ari þarf að hafa sig allan við að sinna syni sínum og rannsókn málsins á sama tíma. Vetrarmein er ágætis glæpa- saga með mannlegum undirtóni. Ari sem fær að hitta þriggja ára son sinn í þrjá daga eftir langan aðskilnað neyðist til að vinna allan tímann og tala við fullt af fólki sem tengist málinu ekki neitt og eyða dýrmætum tíma í ýmsa útúrdúra sem hafa engan tilgang fyrir rann- sóknina. Plottið er þannig stundum sundurlaust og margir lausir þræðir eða öllu heldur svo laustengdir við söguna að stundum má velta fyrir sér tilganginum með því að kynna til sögunnar persónur sem hafa lítið sem ekkert til hennar að leggja. Sagnastíll Ragnars er lágstemmd- ur og einfaldur og tekst honum best upp þegar hann lýsir bæjarbragnum á Siglufirði og í nágrenni, sem fer að slaga hátt upp í Midsomer og önnur þekkt þorp og bæi bókmenntanna þar sem morðtölfræðin er ískyggi- lega há miðað við höfðatölu. Það hvernig Ari missir ítrekað síðasta kanelsnúð dagsins í skolt skíða- ferðamannanna sem hafa lagt undir sig bæinn en flækjast þó furðu lítið fyrir rannsókn málsins er lýsandi fyrir góðlátlegan hversdaginn sem er furðu lítið skekinn af síendur- teknum alvarlegum of beldisglæp- um. Vetrarmein er frekar hefðbundin glæpasaga þar sem höfundarein- kenni Ragnars Jónassonar eru söm við sig og aðdáendur hans munu eflaust fagna þessari bók. Brynhildur Björnsdóttir NIÐURSTAÐA: Nokkuð dæmigerð en ágætlega skrifuð glæpasaga úr Sigl- firskum hversdegi. Kanilsnúðar og kaldrifjuð morð Ragnar Jónasson glæpasagnahöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Það verður alltaf að vera tregi í ljóðum Sigmundur Ernir Rúnarsson er höfundur ljóðabókarinnar Skáldaleyfi. Hann fagnar 40 ára rithöfundar­ afmæli í ár. Í hvert sinn sem hann gefur út ljóðabók er hann sannfærður um að hún sé síðasta ljóðabókin. Sigmundur Ernir fagnar 40 ára rithöfundarafmæli með því að senda frá sér ljóðabók. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.