Fréttablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 44
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Það vantar kannski ekki viðtöl. Það eru viðtöl bókstaflega úti um allt og við erum að sligast af viðtölum en það er hins vegar hægt að
finna viðmælendur sem hafa frá
einhverju að segja,“ segir Þorsteinn
J. um þætti sína Sögur sem breyta
heiminum.
„Þættirnir sem heita þessu hóg-
væra nafni eru sex og eru svona
portrett af sex einstaklingum, með
alls konar vídeómyndefni og ljós-
myndum, sem eiga það sameigin-
legt kannski að einn atburður eða
einhver ákvörðun breytti lífi þeirra
varanlega,“ segir Þorsteinn og
bendir á að í fólki leynist blessunar-
lega oft sögur sem vísi út fyrir sig.
„Og hafa einhverja tengingu við
áhorfendur sem þeir mögulega geta
þá haft ánægju af eða nýtt sér eða
hvað sem fólk vill gera þegar það
horfir á svona efni.“
Hraður taktur
Hver þáttur er tólf mínútna langur
og á meðan smellir Þorsteinn
nokkrum skyndimyndum af við-
mælendum sínum sem hann síðan
raðar saman, eins og honum einum
er lagið, í einhvers konar f ljótandi
heildarmynd.
„Þannig að þetta er mjög þéttur
frásagnarháttur og að mér fannst
mjög spennandi leið til þess að
kynnast einum einstaklingi og
einum atburði í lífi hans nákvæm-
lega,“ segir Þorsteinn en sögurnar
sex, sem breyttu viðmælendum
hans og heimi þeirra, verða allar
aðgengilegar í Sjónvarpi Símans
Premium í dag.
„Það var áhugavert að blanda
svona saman viðtölum og ljós-
myndum þannig að til varð ein-
hvers konar frásagnaraðferð sem
mér fannst vera mjög spennandi
og ganga alveg upp í þessu tilviki.“
Skyndimyndamósaík
Þorsteinn segir alla þættina hefj-
ast á sömu spurningunni. „Ég spyr
í byrjun: Hvað var það sem gerðist?
og sú spurning kemur bara eftir
fáeinar sekúndur og svo fer frá-
sögnin af stað.“
Frásögnina keyrir hann síðan
áfram með tónlist, myndböndum,
jafnvel gömlu myndefni þegar við á
og síðast en alls ekki síst, ljósmynd-
um sem hann smellir af fólkinu og
fangar þannig augnablikið og sögu
þess.
„Ljósmyndirnar gefa þessa port-
rett-áferð þar sem þú í raun og veru
horfir á andlit og einhvern veginn
í lokin hefurðu kannski náð að
kynnast manneskjunni í gegnum
þáttinn.
Þetta var allavegana eitthvað
sem gaf mér mikla ánægju og gleði
að skrásetja, klippa og setja saman
ólíkar sögur þriggja kvenna og
þriggja karlmanna á ólíkum aldri
og með ólíkan bakgrunn.“
Lifandi ljósmyndir
Þorsteinn segir að með þessum
takti við gerð þáttanna hafi honum
ekki síst þótt spennandi að nota
ljósmyndir sem frásagnarefni í sjón-
varpi. „Það er stórlega vanmetið í
raun og veru.
Vegna þess að þegar ljósmyndin
kemur þá myndast einhvers konar
kyrrð sem vídeóið hefur ekki því
vídeóið öskrar á að vera klippt
mjög hratt. Þannig að eftir þrjár
sekúndur er öllum farið að leiðast
en með því að blanda þessu saman
fannst mér koma einhver svona
annar taktur sem kom mér á óvart
og er eitthvað sem ég hef verið að
uppgötva og ætla vonandi bara að
vinna meira með í næstu seríu.“
Þannig að þú ert þegar byrjaður
að undirbúa framhald?
„Ja, að minnsta kosti í huganum.
Algjörlega,“ svarar Þorsteinn og
segist eins og venjulega vera kom-
inn langt fram úr sjálfum sér í hug-
anum. Hann bætir við að langur
fjölmiðlaferill einkennist oft af
ákveðinni leit.
„Maður er oft að leita að ein-
hverju,“ segir hann og hugsar sig um
í augnablik. „Einhverjum ákveðn-
um útvarpsþætti eða einhverjum
sjónvarpsþætti sem er spennandi
að þróa áfram og stækka. Og mér
finnst þetta vera þannig hugmynd
og þessir viðmælendur og fólkið
sem tók þátt í þessu með mér var
algerlega frábært og á stóran þátt
í að þetta varð bara að einhverju.“
toti@frettabladid.is
Hvað var það sem
gerðist, Þorsteinn?
Þorsteinn J. hefur komið víða við á löngum ferli í fjölmiðlum og
veit að þar verður hjólið ekki fundið upp framar. Hann fann hins
vegar nýjan takt í þáttunum Sögur sem breyta heiminum og
hefjast þeir allir á sömu spurningunni: Hvað var það sem gerðist?
Þorsteinn J. veit ósköp vel að þótt búið sé að segja allar sögur vantar samt alltaf sögur og hefur mögulega fundið
lausn á þessari þversögn með samspili ljósmyndarinnar og sjónvarpsviðtalsins. MYND/ATLI MÁR HAFSTEINSSON
Eyþór Bjarnason, Kristín Gunn-
arsdóttir, Rut Sigurðardóttir, Þóra
Björg Sigurðardóttir, Björn Hall-
dórsson og Magnús Ásgeirsson
svara spurningu Þorsteins J.
LJÓSMYNDIRNAR
GEFA ÞESSA PORT-
RETT-ÁFERÐ ÞAR SEM ÞÚ Í RAUN
OG VERU HORFIR Á ANDLIT OG
EINHVERN VEGINN Í LOKIN
HEFURÐU KANNSKI NÁÐ AÐ
KYNNAST MANNESKJUNNI.
1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
DÁSAMLEGA
FYNDIN
1
UNGMENNABÆKUR
11.–17. nóvember
Skemmtileg og spennandi
bók skrifuð af mikilli virðingu
og næmi fyrir flóknum
tilfinningum sem fylgja
unglingsárunum – og í þokka-
bót er hún dásamlega fyndin.
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is