Fréttablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 18
Tjáskipti telj ast til grundvallar­mann réttinda eins og kemur fram í grein 19 í Mannrétt­ indasáttmála Sam einuðu þjóðanna frá 1948. Þessi grein tekur ekki bara til þess að eiga samskipti við aðra og skiptast á skoðunum og hugmynd­ um heldur einnig til þess að búa yfir hæfni og getu til tjáskipta. Ég hef í áratugi rannsakað mál­ töku barna. Leikskólaárin leggja grunn að færni barna í tungumál­ inu. Við tökum því sem gefnu að við upphaf grunnskólagöngu séu öll börn með góðan málþroska. En orðaforði er mismunandi milli barna og einnig leikni við að orða hugsun, þarfir og langanir. Sum fjögurra ára börn geta verið með sambærilegan orðaforða og sex ára börn, meðan önnur eru með orða­ forða á við tveggja ára börn. En af hverju er þessi breytileiki? Rannsóknir síðustu ára hafa leitt í ljós að umhverfi barna hefur mikil áhrif á færni þeirra í tungumálinu. Börn sem er talað mikið við hafa almennt meiri orðaforða og betri tök á tungumálinu en þau sem er minna talað við. Ísland er ekki frábrugðið öðrum löndum í þessu efni og hafa rannsóknir sýnt að félagsleg staða og menntun foreldra hefur mælan­ leg áhrif á færni barna í tungumál­ inu. Börn menntaðra foreldra búa almennt yfir meiri og fjölbreyttari orðaforða. Það sama á við um börn sem eiga foreldra í sambúð en marg­ ar rannsóknir hafa leitt í ljós að börn einstæðra foreldra sýna að meðaltali slakari færni í tungumálinu en börn foreldra sem eru í sambúð. Hins vegar sýna rannsóknir ekki að munur sé á milli kynja á leikskólaárunum. Stúlkur reynast ekki vera með betri málþroska en drengir, ólíkt því sem oft hefur verið haldið fram. Búseta hefur hins vegar áhrif. Í ákveðnum landshlutum sýna börn að meðaltali meiri færni en í öðrum. Innan Reykjavíkur er mikill munur á milli hverfa og jafn­ vel á milli einstakra leikskóla innan sama hverfis. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að með markvissri örvun í leikskóla er hægt að hafa áhrif á færni barnanna í tungumálinu. Mikilvægi málörvunar í leikskóla er óumdeilt og ætti að jafna möguleika barna og gefa öllum tækifæri til að ná góðum tökum á íslenskunni. Fjöltyngdir nemendur Á nýlegri ráðstefnu um menntun f jöltyngdra nemenda var lögð áhersla á að koma til móts við nem­ endur út frá þeirra þörfum, óháð kyni og uppruna, og að allir hafi jöfn tækifæri til menntunar. Það er mikill misskilningur að börn á leikskólaaldri nái tökum á mörgum tungumálum áreynslulaust. Við vitum að til að læra nýtt tungumál þurfa börn að heyra tungumálið í að minnsta kosti einn þriðja af vöku­ tíma þeirra. Þar skiptir ekki máli hvort um er að ræða móðurmálið eða tungumál umhverfisins. Það sem skiptir meginmáli er hversu mikið þau heyra, gæði málörvunar og að þau fái ríkuleg tækifæri til að tjá sig á tungumálinu. Flest börn dvelja í leikskólum á Íslandi átta tíma á dag, fimm daga vikunnar eða megnið af vökutím­ anum. Nú hefur verið sýnt fram á að fjöltyngd börn á Íslandi ná að meðaltali ekki nægilega góðri færni í íslensku, þrátt fyrir að vera fædd á Íslandi og hafa gengið í leikskóla í þrjú til fjögur ár. Orðaforðinn er fábreytilegur og þau gera mun fleiri villur í málfræði en íslenskir jafnaldrar þeirra. Jafnframt sýndi ein rannsókn að leikskólabörn sem höfðu pólsku að móðurmáli voru með sama orðaforða í pólsku og jafnaldrar í Póllandi, en höfðu mun fátæklegri orðaforða á íslensku en íslenskir jafnaldrar. Rannsóknir frá Belgíu og Bretlandi benda til hins gagnstæða. Þar er tungumál umhverfisins ríkjandi mál fjöl­ tyngdra barna. Brottfall úr framhaldsskóla Við sýndum fram á með HLJÓM rannsóknum að færni barna við fimm ára aldur í hljóðkerfisvitund og almennum málþroska spáir sterkt fyrir um námsgengi þeirra í grunnskólanum, bæði í íslensku og í stærðfræði. Lestur byggist á umskráningu á bókstöfum í hljóð og orð og skilningi á þeim orðum sem við erum að lesa. Góð færni í tungumáli skólans er lykillinn að velgengni og líðan í skóla. Öll börn eiga rétt á því að læra íslensku óháð menntun, stöðu foreldra og upp­ runa. Brottfall úr framhaldsskóla byggir á grunnfærni sem er lögð í leikskóla. Ef lum málfærni leik­ skólabarna og stöndum vörð um rétt barna til að læra tungumál skólans, íslenskuna. Réttur barna til að læra íslensku Loftslagsváin er stærsta áskorun samtímans og það hvernig heimsbyggðin tekst á við lofts­ lagsmálin mun skipta sköpum fyrir komandi kynslóðir. Loftslagsmálin snerta líka f lest svið samfélagsins. Þau eru þverlæg í stjórnkerfinu og úrlausnarefnin heyra undir f lest ráðuneyti og fjölda stofnana, svo ekki sé minnst á hlutverk sveitar­ stjórnarstigsins, atvinnulífsins og almennings. Loftslagsmálin eru því ekki eingöngu viðfangsefni umhverfis­ og auðlindaráðuneyt­ isins. Loftslagsmál eru ekki síður efnahagsmál, jafnréttismál, sam­ göngumál eða menntamál. Vegna þess hversu víðfeðmt viðfangsefni loftslagsmálin eru, er mikilvægt að stjórnsýsla loftslagsmála sé skilvirk og samþætt. Ráðherranefnd og samstarfs- nefnd ráðuneytisstjóra Ríkisstjórnin ákvað að koma á fót sérstakri ráðherranefnd til að fjalla um loftslagsmál og kom hún nýlega saman í fyrsta sinn, sem markaði tímamót í eflingu stjórn­ sýslu loftslagsmála. Nefndin er skipuð átta ráðherrum og er henni ætlað að styrkja yfirsýn og sam­ þættingu loftslagsmála og vera vettvangur fyrir pólitíska stefnu­ mótun og umræður um aðgerðir á sviði loftslagsmála. Ríkisstjórnin samþykkti jafnframt í síðustu viku að komið yrði á fót samstarfshópi ráðuneytisstjóra þeirra ráðuneyta sem fara með verkefni á sviði lofts­ lagsmála. Markmiðið er að auka samráð og samþættingu innan Stjórnarráðsins, tryggja sem besta eftirfylgni áætlana stjórnvalda í loftslagsmálum þvert á ráðuneyti og samhæfa vinnu stofnana hins opinbera á sviði loftslagsmála. Loftslagsráð og Loftslagssjóður stofnuð Árið 2018 var Loftslagsráð sett á fót, sem var gríðarlega mikilvægt skref til að ef la aðhald og ráðgjöf til stjórnvalda í loftslagsmálum en Loftslagsráð er sjálfstætt í störfum sínum. Ári síðar var Loftslagssjóður stofnaður og hefur hann nú þegar styrkt tugi verkefna sem snúa að fræðslu og nýsköpun í loftslags­ málum. Úttekt á stjórnsýslu loftslagsmála Eitt af þeim verkefnum sem ég fól Loftslagsráði þegar það var sett á fót árið 2018, var að vinna úttekt á stjórnsýslu loftslagsmála hérlendis. Í sumar kom svo út skýrsla Lofts­ lagsráðs sem unnin var af Capacent, þar sem lagðar voru fram ýmsar góðar ábendingar og tillögur að úrbótum. Unnið hefur verið að fjöl­ mörgum verkefnum allt frá því að ég tók við sem ráðherra umhverfis­ mála, í því skyni að efla starf stjórn­ valda á sviði loftslagsmála. Með breytingum á loftslagslögum árið 2019 var öllum ríkisstofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkisins gert skylt að setja sér loftslagsstefnu og útbúa áætlun um samdrátt í losun. Það er gríðarlega mikilvægt framfaraskref. Á sama tíma var einnig fært í lög að gerðar skyldu vísindaskýrslur um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi með reglulegu millibili. Þá var sú skylda lögð á herðar stjórnvöldum að vinna að áætlun um aðlögun samfélagsins að loftslagsbreyting­ um, en á sama tíma og við róum að því öllum árum að hægja á og draga úr áhrifum loftslagsbreytinga þá þarf líka að undirbúa samfélagið undir þær breytingar sem óhjá­ kvæmilega munu verða á næstu árum og áratugum. Vinna við gerð stefnu um aðlögun íslensks sam­ félags hefst á þessu ári í starfshópi undir forystu umhverfis­ og auð­ lindaráðuneytis. Skipulagsbreytingar og aukinn mannafli Gerðar hafa verið breytingar á skipulagi umhverfis­ og auðlinda­ ráðuneytisins í því skyni að ef la starf ráðuneytisins á sviði loftslags­ og alþjóðamála. Sérstök skrifstofa fer með loftslagsmál og ný skrifstofa fer með alþjóðamál og samþættingu umhverfismála, ekki síst loftslags­ mála, við aðra málaflokka eins og hringrásarhagkerfi, landgræðslu, skógrækt og sjálf bæra nýtingu auðlinda. Starfsfólki sem vinnur að loftslagsmálum í ráðuneytinu hefur því verið fjölgað til að takast á við aukin verkefni og aukna ábyrgð. Stofnanir ráðuneytisins hafa líka fengið aukið fjármagn til þess að sinna verkefnum sínum á sviði lofts­ lagsmála í tíð þessarar ríkisstjórnar. Þannig hafa Umhverfisstofnun, Landgræðslan, Skógræktin, Veður­ stofa Íslands og Hafrannsókna­ stofnunin verið styrktar til þess að takast á við rannsóknir, losunar­ bókhald og beinar aðgerðir í þágu loftslagsmála. Aldrei meiri metnaður – aldrei meira fjármagn Til þess að ná árangri í loftslags­ málum er lykilatriði að aðgerðum og áætlunum fylgi fjármagn, en sú hefur ekki alltaf verið raunin. Núverandi ríkisstjórn hefur hins vegar lagt á þetta áherslu og stað­ reyndin er sú að aldrei hefur meira fjármagn runnið til umhverfismála en í tíð þessarar ríkisstjórnar. Fjár­ heimildir hafa aukist um 47% frá árinu 2017 til 2021. Ef við horfum til loftslagsmálanna einna þá munu fjármunir til þeirra hafa aukist um samtals 13,9 milljarða króna frá 2017 til 2025, að meðtalinni þeirri 3 milljarða króna aukningu sem fram er sett í fjármálaáætlun ríkisstjórn­ arinnar sem nú liggur fyrir Alþingi. Þá eru ekki taldar með aðgerðir sem heyra undir aðra málaf lokka en umhverfisráðuneytið, eins og sam­ göngumál eða fjárhagslega hvata, sem eru á forræði fjármála­ og efna­ hagsráðuneytis. Ríkisstjórn Katrínar Jakobs­ dóttur hefur sýnt meiri metnað í loftslagsmálum en nokkur önnur ríkisstjórn hingað til. Stjórnarsátt­ máli setur skýrar áherslur um lofts­ lagsmál og markið sett á kolefnis­ hlutleysi Íslands fyrir árið 2040. Á fyrsta starfsári ríkisstjórnarinnar var fyrsta fjármagnaða aðgerða­ áætlunin í loftslagsmálum gefin út og nú í sumar var hún uppfærð með fjölda nýrra aðgerða. Saman­ lagt eiga þær að skila okkur meiri samdrætti í losun gróðurhúsaloft­ tegunda en núverandi alþjóðlegar skuldbindingar segja til um og við erum auðvitað hvergi nærri hætt. Stjórnvöld efla stjórnsýslu loftslagsmála Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlinda- ráðherra Á fyrsta starfsári ríkis- stjórnarinnar var fyrsta fjár- magnaða aðgerðaáætlunin í loftslagsmálum gefin út og nú í sumar var hún uppfærð með fjölda nýrra aðgerða. Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs­ og sjúkraflutninga­manna fer fram um allt land um þessar mundir eins og mörg und­ anfarin ár, en nú í skugga tíðra elds­ voða á heimilum og óvenjumargra banaslysa það sem af er ári. Þegar þetta er skrifað hafa sex látið lífið í eldsvoðum á árinu, langt umfram það sem almennt gerist. Það er því brýnt að fólk hugi að nauðsynlegum eldvörnum á heimilinu, ekki síst nú í aðdraganda hátíðanna. Könnun sem Gallup gerði nýverið fyrir Eldvarna­ bandalagið sýnir reyndar að heimil­ in auka eldvarnir sínar jafnt og þétt en betur má ef duga skal. Könnunin sýnir að ákveðnir hópar eru enn allt­ of berskjaldaðir gagnvart eldsvoðum vegna skorts á reykskynjurum og öðrum eldvarnabúnaði. Gallup gerði könnunina fyrir Eld­ varnabandalagið 30. september til 7. október síðastliðinn. Góðu frétt­ irnar eru þær að könnunin sýnir, eins og fyrri kannanir, að heimilin auka eldvarnir sínar jafnt og þétt. Æ færri hafa engan eða bara einn reyk­ skynjara en að sama skapi fjölgar þeim sem hafa þrjá eða fleiri. Mun algengara er nú en fyrir tíu árum að slökkvitæki og eldvarnateppi séu á heimilum. Frávikin frá þessu eru þó óþægi­ lega mikil og mörg. Þannig er fólk á aldrinum 25­34 ára mun ólíklegra en aðrir til að hafa eldvarnateppi og slökkvitæki á heimilinu. Eld­ varnateppi eru að meðaltali á 64,3 prósentum heimila, en aðeins hjá 48 prósentum í umræddum aldurs­ hópi. Þá er áberandi hve heimili í Reykjavík eru að jafnaði mun verr búin eldvarnabúnaði en heimili í nágrannasveitarfélögum og þó sér­ staklega miðað við sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins. Könnunin leiðir í ljós að eld­ varnir í fjölbýlishúsum eru lakari en almennt gerist og þá sérstak­ lega í stærri fjölbýlishúsum. Íbúar í leiguhúsnæði eru sem fyrr mun verr búnir undir eldsvoða en aðrir. Könnun Gallup leiðir í ljós að í 45 prósentum íbúða í leiguhúsnæði er enginn eða aðeins einn reykskynjari. Sambærilegt hlutfall á landsvísu er 28 prósent. Til öryggis Landssambandið hefur um langt árabil lagt áherslu á forvarnarstarf og hefur haldið Eldvarnaátakinu úti með dyggum stuðningi fjölmargra aðila í rúma tvo áratugi. Slökkviliðs­ menn beina fræðslu um eldvarnir að nemendum í 3. bekk grunnskóla og fjölskyldum þeirra. Efling eldvarna er liður í því að auka öryggi jafnt barna sem full­ orðinna á heimilinu. Þegar börnin koma heim úr skólanum eftir að hafa fengið fræðslu um eldvarnir er því upplagt að foreldrar setjist niður með barninu sínu, kynni sér fræðslu­ efnið og fari skipulega yfir eldvarnir heimilisins. Um leið og við hvetjum fólk til að hafa nauðsynlegan eldvarnabúnað á heimilinu leggjum við ekki síður áherslu á mikilvægi þess að fara var­ lega í daglegri umgengni á heimilinu. Á næstu vikum ríður sérstaklega á að fara varlega með opinn eld, kertaljós og þvíumlíkt. Og munið að slaka ekki á klónni þótt jólahátíðinni ljúki og nýtt ár gangi í garð, því reynslan sýnir að eldsvoðar á heimilum eru ekki síður algengir á fyrstu vikum ársins en á aðventu og um jól. Aukum eldvarnir – það er svo mikið í húfi Hermann Sigurðsson framkvæmda- stjóri Lands- sambands slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna Garðar H. Guðjónsson framkvæmda- stjóri Eldvarna- bandalagsins og verkefnastjóri Eldvarnaátaks- ins Dr. Jóhanna Thelma Einarsdóttir talmeina- fræðingur Við vitum að til að læra nýtt tungumál þurfa börn að heyra tungumálið í að minnsta kosti einn þriðja af vökutíma þeirra. Þar skiptir ekki máli hvort um er að ræða móðurmálið eða tungumál umhverfisins. Það sem skiptir meginmáli er hversu mikið þau heyra, gæði málörvunar og að þau fái ríkuleg tækifæri til að tjá sig á tungumálinu. 1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.