Fjölrit RALA - 15.08.1993, Page 11
9
Rflcjandi í gróðurfari eru kvistlendi. iaðar. graslendi og starmóar og slæðingur er á svæðinu
af sefmóum og mosabembu. Önnur gróðurlendi eru þar ekki og verður gróðurinn þvx að teljast
fábreytilegur. Gróðurfélög kvistlendisins eru grávíðir-krækilyng (Salix callicarpea-Empetrum
hermafroditum - Dl), loðvíðir-grávíðir (Salix lanata-S. callicarpea - D3), gulvíðir-grös (Salix
phylicifolia-Gramineae - D5) og grasvíðir (Salix herbacea - D6). Gróðurfélög graslendisins
eru tvö: hreint graslendi (Gramineae - Hl) og graslendi með smárunnum (H3). Starmóa-
gróðurfélagið er aðeins eitt, þ.e. stinnastör-smárunnar (G2). Gróðurfélög mosaþembunnar eru
mosaþemba með smárunnum (A4) og mosaþemba með grösum (Rhacomitrium-Gramineae -
A5) og sefmóamir eru þursaskegg-smárunnar (E2).
Jaðar er eina votlendisgróðurlendi svæðisins en þekxxr umtalsvert land þar sem jarðraki er
nægur meðfram ám, lækjum og vötnum. Þar er nær eingöngu um eitt gróðiufélag að ræða -
hálmgresi (Calamagrostis neglecta - T3).