Fjölrit RALA - 15.11.2000, Side 70

Fjölrit RALA - 15.11.2000, Side 70
Fræ/Skaðvaldar 1999 62 Verkun víöifræs (132-9356) Unnið var við rannsóknarverkefni í samvinnu við Rannsóknastöð skógræktar ríkisins að Mógilsá og Landgræðslu ríkisins, þar sem markmiðið er að nýta innlendan víði í landgræðslu. Hlutur RALA er að finna aðferðir til að safna, verka og geyma víðifræ í meira en eitt ár. Víðifræi var saínað af Suðurlandi og nokkrar verkunartilraunir gerðar á því. Frærækt innlendra landbótaplantna (132-9346) Verkefnið hófst með sáningu á belgjurtum í þijár tilraunir á Suðurlandi árið 1997, þar sem ætlunin er að kanna áhrif nokkurra aðgerða svo sem áburðar og útplöntun vorblómstrandi plantna meðíram íræræktarreitum til að draga að frævara. Fylgst verður með affáni skordýra á fræi og smáplöntum. Þeir frævarar, sem heirnsótm belgjurtímar, voru greindir til tegunda. Fræuppskera er mæld árlega. Fyrir utan íslensku belgjurtimar em einnig til samanburðar nokkrar erlendar tegundir, sem álitlegar þykja, svo sem fjallalykkja og blámjalta. Fræuppskera innlendra belgjurta, kg/ha Hvítsmári Giljaflækja Umfeðmingur Baunagras 1998 1999 1998 1999 1998 1999 1998 1999 Ágúst 5 5 40 5 - - 40 20 September 20 5 40 20 10 5 60 30 Október 45 30 50 5 30 10 10 30 Nóvember 5 - 5 - 50 . 25 - 10 Frærækt fyrir Norræna genbankann (132-9907) Á undanfömum ámm hefur jarðræktardeild séð um endumýjun á nokkxum grasstofnum sem em í vörslu Norræna genbankans (NGB). Tekið var fræ af þeim 25 sveifgrasstofnum (Poa pratensis), sem settir vom í ffætökureiti vorið 1998. Uppskera var misjöfn og þarf að taka aftur ffæ af um 15 stofhum árið 2000. Plantað var í einn reit af sveifgrasi til viðbótar vorið 1999. Safhað var fræi af túnvingulsstofnum á Geitasandi sem plantað var út árin 1995 til 1997. Heldur illa hefur gengið að fá ffæ og var þetta síðasta árið sem reynt var. Allt fræ var hreinsað og sent genbankanum til geymslu. Svepprót og ranabjöllur (132-9311) Tilraun þessi er unnin í samvinnu við Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá. Lerki var plantað í lyngmóa á Haukadalsheiði, þar sem ranabjöllulirfur valda miklum afföllum á lerkiplöntum. Plantað var lerkiplöntum sem smitaðar vora á mismunandi hátt með svepp- rótarsveppum og plöntum sem voru án svepprótar. Mældur er vöxtur og metin affoll af plöntunum og þær síðan teknar upp og rótarskaði metinn og lirfur taldar og vigtaðar.

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.