Rit Búvísindadeildar - 20.11.1995, Blaðsíða 9

Rit Búvísindadeildar - 20.11.1995, Blaðsíða 9
Knosun - leið til að flýta þurrkun heys á velli - samanburður á vélum og vinnubrögðum við vallþurrkun - Bjarni Guðmundsson YFIRLIT Rannsökuð voru áhrif knosunar og snúnings á þurrkunarhraða heys á velli og efnabreyíingar í heyinu íþremur tilraunum og tveimur athugunum sumarið 1993. Mælingar voru gerðar á blönduðum túngróðri og í hreinum grastegundum. Skilyrði til heyþurrkunar voru fremur hagstœð og mcelanleg úrkoma féll ekki í heyið á athugunartímanum. Vinnslubreidd sláttuvélanna, sem reyndar voru með knosurum, var 2,4 m. Helstu niðurstöður mœlinganna má draga saman þannig: • Knosun flýtti þurrkun heysins töluvert. í meðalþurrki reyndist hún stytta virkan þurrkunartíma heyins um 20%. Gat það munað því hvort heyið náði algengum hirðingarstigum deginum fyrr en seinna; • Knosun heysins dró nokkuð úr þörfinni fyrir að snúa heyi strax eftir sláttinn. Hröðust var þurrkunin þó efheyið var knosað við slátt og því síðan snúið þegar í stað; • Áhrif knosunar virtust dvína í mikilli uppskeru (þykkum múga) og í daufum þurrki en þörf á heysnúningi óx að sama skapi. Mikil sláttubreidd í hlutfalli við múgabreiddina virðist því geta eytt áhrifum knosunarinnar; • Knosunarstigið hafði lítil áhrifá þurrkunarhraða heysins; mikilli knosun fylgdi ekki samsvarandi aukning þurrkunarhraða; • í knosaða heyinu bar meira á sködduðum stráum en í því óknosaða. Knosun og harkaleg meðferð knosaðs heys getur því aukið hœttu á molnunartapi úr heyinu; • Knosun hafði óveruleg áhrif á orkugildi heysins og hrápróteinmagn þess; • í einni athugun sem gerð var virtist knosað hey bindast þéttar í rúllubagga með fastkjama bindivél en óknosað hey; • Ekki reyndist marktœkur mismunur á þurrkunaráhrifum þeirra tveggja knosaragerða sem bornar voru saman í einni tilraun - Krone AM 242ÍZ og Deutz- FahrSM 324 SC. 4

x

Rit Búvísindadeildar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.