Rit Búvísindadeildar - 20.11.1995, Page 15
Ferilhraði knosara og form og stilling spjaldanna sem stýra heystraumnum frá sláttuvélinni
hafa einkum áhrif á gerð og lögun múgans (sjá nánar kafla 3.1 d). Hollenskar og þýskar
rannsóknir hafa ekki leitt í ljós teljandi mun á áhrifum mismunandi knosaragerða á
þurrkunarhraða heys á velli þótt hann hafi fundist í stofutilraunum (Bosma 1992).
Fyrir öryggi heyöflunarinnar og heyskaparafköstin skiptir þurrktími heysins að
tilteknu þurrkstigi verulegu máli. f síbreytilegu veðurfari getur það skipt miklu máli hvort
heyið nær hirðingarstigi síðdegis eða hvort bíða þurfi frekari þurrkunar að morgni.
Tölumar í 3. töflu má því meta miðað við tvenn hirðingarstig - 40% þe. (R) og 50-55%
þe. (SR). R gæti átt við heymetisgerð og verkun heys í rúlluböggum þar sem mikilla
afkasta er krafist og þar sem miðað er við að geijun í heyinu verði óveruleg. SR gæti
miðast við öfluga súgþurrkun og rúlluheyskap þar sem áhersla er lögð á mikla forþurrkun
og mjög þétta bagga (kg þe. í bagga). í tveimur tilraunum af þremur (II og III) mátti ná R-
stigi samdægurs væri heyið knosað við sláttinn og ekki dregið að snúa því meira en í 3-4
klst frá slætti. Jafnvel mátti einnig ná SR-stigi samdægurs (III og 13). í daufum þerri varð
heldur minna úr mismuninun; hann varð þó 4-9 stundir að R-stigi á öðrum degi (I)
knosaða heyinu í vil og meiri, ætti að þurrka heyið að SR-stigi.
b) Áhrif veðurþátta á heyþurrkunina. Athuguð var fylgni veðurþátta og þunkunar
heysins. Reynd var aðferð sem áður hefur verið lýst en hún byggist á því að skilgreina
heyþurrk sem summu eimhungurs lofts yfir virkan þurrkunartíma, þ.e. á tímabilinu kl. 9-
21 (Bjami Guðmundsson 1972). Gerð er línuleg millijöfnun eimhungurs kl. 9 og kl. 15,
og kl. 15 og kl. 21, og gildi reiknuð eftir meðaltali hvors tímabils. Heyþurrkurinn (AEt)
hefúr því eininguna kPa-klst.
Með þurrkstigi heysins á hverjum tíma (%) og eimhungurssummu frá slætti fékkst
dágóð fylgni. 2. mynd sýnir dæmi um niðurstöður þar sem tekin eru gildi úr I og II
tilraun; liðunum knosað og óknosað hey sem snúið var strax að slætti loknum.
a?
m
>.
O)
‘E
«
a.
Heyþurrkur, kPa klst
■ óknosað
E knosað
2. mynd. Tengsi heyþurrks og þurrkstigs heysins.
10