Fréttablaðið - 09.12.2020, Síða 32

Fréttablaðið - 09.12.2020, Síða 32
Skoðaðu bæklinginn á svefnogheilsa.is Ö ll ve rð e ru b irt m eð fy rir va ra u m in ns lá tta rv ill ur . MODULAX HVÍLDARSTÓLAR HÖNNUN OG ÞÆGINDI Á HVERT HEIMILI NÝTT! MODULAX MARGAR GERÐIR Góð hvíld 10 0% SV EFN – 100% HEILSA 100% SVEFN – 100% HE IL SA ZERO GRAVITY ZERO GRAVITY IRIS RAFSTILLANLEGUR Verð 209.900.- POSEIDON RAFSTILLANLEGUR Verð 249.900 kr.- PANDORA RAFSTILLANLEGUR Verð 219.900.- APOLLO RAFSTILLANLEGUR Verð 249.900.- VÆNTANLEGUR Í JANÚAR MODULAX: • 3-mótora hvíldarstóll. • Handvirk og þægileg höfuðpúðastilling 42° • Innbyggð hleðslu- rafhlaða. Endist 250 sinnum fyrir alla mótora. SÆKTU APPIÐ MODULAX OG SKOÐAÐU HVERNIG STÓLLINN LÍTUR ÚT Á ÞÍNU HEIMILI modulax.be STILLINGAR ALLA MODULAX STÓLA ER HÆGT AÐ SÉRPANTA SEM LYFTUSTÓLA JAMES STÓLL MEÐ SKEMLI Verð 149.900.- GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ JÓLABÆKLINGUR OKKAR ER KOMINN ÚT – FRÁBÆR TILBOÐ Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233 BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150 UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK Einn af ástsælustu hæginda-stólum sögunnar er úr sjón-varpsþáttunum Frasier sem sýndir voru á árunum 1993 til 2004. Í þeim bjó sálfræðingurinn Frasier með föður sínum Martin sem kom með hundinn Eddie og lúinn, grænröndóttan hægindastól í búið. Sjálfur átti Frasier heimsfrægan Eames-hægindastól í ægiflottri hönnunaríbúð og var stóll Martins því mikið stílbrot. Hægindastóll Martins hafði stóru hlutverki að gegna. Hann var sérhannaður af leikmunadeild Frasier-þáttanna og bólstraður með gatslitnu áklæði frá því um 1970. Hann var líka myndlíking fyrir fjölskylduerjur sem risið geta vegna lemstraðra en kósí mubla á heimilum, þegar sumir vilja fá allt nýtt. Eða eins og Daphne, vinkona Frasiers, sagði í einum þáttanna, og hún elskaði stól Martins: „Eins og ég hef alltaf sagt, þá byrjar maður með einni góðri mublu og skiptir um rest þegar maður hefur efni á því.“ Stóllinn er því jafnframt prófsteinn á mælikvarðann um það sem þú metur mest: Eru það hag- kvæmni eða útlitið eitt og sér? Kelsey Grammar, sem fór með hlutverk Frasiers, sagði eitt sinn að allir hefðu viljað eignast stól Martins þegar þættirnir hættu en að bannað hefði verið að taka neitt úr settinu. Líklegast færi stóllinn því á Smithsonian-safnið eins og settið úr Staupasteini (e. Cheers). 8 KYNNINGARBLAÐ 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHÆGINDASTÓLAR Stóllinn Lou Speak Driade er falleg hönnun og klæddur lúxusleðri. Einn þekktasti hönnuður nútímans, hinn franski Phil-ippe Starck þykir hafa einstaka framtíðarsýn og sköpun hans þykir einstök. Hann vill að hlutir sem hann hannar séu gagnlegir en óhefðbundnir. Sömuleiðis er hann ákaflega umhverfisvænn í hönnun sinni og er meðvitaður um sjálf- bærni og loftslagsvá. Hönnun hans nær til smávöru á borð við sítrónu- pressu upp í hótel og stórsnekkjur, vindmyllur og rafmagnsbíla. Phil- ippe er hugsjónamaður, skapari, arkitekt, hönnuður og listrænn stjórnandi. Philippe fæddist árið 1949. Faðir hans var verkfræðingur og flugvirki sem hafði mótandi áhrif á soninn í æsku. Philippe hefur hannað mikinn fjölda lúxushótela um allan heim og hlotið margvís- legar viðurkenningar. Þá hefur hann hannað bæði veitingastaði og næturklúbba. Húsgögn hans og smávara til heimilisins hafa verið mjög vinsælar vörur. Stóllinn á myndinni er hæginda- stóll með snúningssetu. Hann þykir svo þægilegur að fólk vill helst sitja sem lengst. Þar fyrir utan er hann glæsilegur í stofunni. Stóllinn nefnist Lou Speak Driade og er hluti af Lou stólasamstæðu eftir Philippe Starck. Glæsilegur frá Starck John Mahoney sem Martin Frasier í stólnum góða. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Prófsteinn á mælikvarða góðra gilda Minningin um þennan sófa á eftir að lifa lengi í hugum þeirra sem ólust upp á 10. áratugnum. Eftir erfiðan dag er gott að hlamma sér í sófann og slaka á. Persónur í frægum sjón- varpsþáttum njóta þess líka og áhorfendur hafa eytt miklum tíma á sófanum með mörgum þeirra. Þegar talað er um fræga sjón- varpssófa hugsa líklega margir um sófann á kaffihúsinu í Friends. Í þáttunum er meira að segja gert grín að því hvað aðalpersónurnar eyða miklum tíma þar. Í einum þætti var hópur sem var mjög líkur þeirra eigin búinn að taka sófann yfir og í öðrum taka hrekkjusvín sófann af Ross og Chandler. En sófinn var yfirleitt frátekinn fyrir vinahópinn, sem má sjá á litlu skilti á borðinu. Þess vegna gátu per- sónur þáttarins alltaf gengið að því vísu að geta hist þar og það skapaði margar eftirminnilegar stundir. Sófinn á heimili Simpson-fjöl- skyldunnar er annar sem er greyptur í minni ófárra Íslendinga. Í byrjuninni á hverjum einasta þætti kemur brandari sem tengist sófanum og misvel heppnuðum til- raunum fjölskyldunnar til að tylla sér þar og ófá ógleymanleg augna- blik hafa átt sér stað á þessum sófa. Frægustu sófar sjónvarpsins

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.