Fréttablaðið - 09.12.2020, Side 38

Fréttablaðið - 09.12.2020, Side 38
Við höldum að við séum svo æðisleg, við erum svo flott, svo jafnréttissinnuð, við erum algjört æði. Samt erum við í rauninni bara hallærisleg, lummó. Brynjar Níelsson, þing- maður Sjálfstæðis- flokksins 07.12.2020 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 9. desember 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | Helgi Vífill Júlíusson SKOÐUN Flugstöð Leifs Eiríkssonar verður dýr á fóðrum á næst-unni. Einungis örfáar hræður koma til landsins og umfangs- mikil stækkun stendur fyrir dyrum. Brýnt er að ríkið leiti leiða til komast hjá þeim miklu fjárútlátum. Annaðhvort með því að selja f lugstöðina – sem væri æskilegt – eða fá einkaaðila, þar með talið fagaðila í f lugrekstri og lífeyrissjóði, til að koma að uppbyggingunni og rekstrinum í meira mæli. Ekkert er unnið við að setja f lugvöllinn á fjárlög en ýmsu fórnað. Talið er að ríkissjóður verði rekinn með tæplega 600 milljarða króna halla í ár og á næsta ári í ljósi aðgerða til að stemma stigu við áföllum tengdum COVID-19. Mikið er rætt um að fjárhagsstaða ríkissjóðs sé góð og því hafi hann burði til að skuldsetja sig veru- lega. Minna er horft til þess að jafnvel þótt skuldsetningin verði í meðallagi árið 2025 í saman- burði við önnur þróuð ríki, verður vaxtabyrðin sú mesta miðað við núverandi vaxtastig. Það verður að horfa til beggja þessara þátta þegar rætt er um skuldsetningu. Eins verður að taka tillit til þess að Ísland er með minnsta gjald- miðil í heimi. Landið verður því að standa betur að vígi en aðrar þjóðir til að laða að erlenda fjár- festa og halda fjármagni innan lands. Til viðbótar eru hagvaxtar- horfur í ár og fyrir næsta ár ekki eins bjartar og í helstu viðskipta- löndum okkar. Mörg rök hníga að því að draga úr skuldsetningu ríkisins ef kostur er. Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) varpaði nýverið ljósi á að Leifsstöð væri einn óhag- kvæmasti og dýrasti f lugvöllur í Evrópu. Jafnvel í samanburði við f lugvelli af sömu stærð sem taka á móti svipuðum fjölda farþega og starfræktir eru við sambærilegar veðurfarsaðstæður. OECD leggur til að leitað verði leiða til að auka samkeppnis- hæfni Leifsstöðvar til dæmis með breyttu eignarhaldi eða að bjóða út tiltekinn rekstur f lugvallarins. Slíkt tíðkast erlendis. Á árunum 2010 til 2016 næstum tvöfaldaðist hlutfall f lugvalla í einkaeigu eða einkarekstri í Evrópu, úr 22 pró- sentum í 41 prósent. Á sama tíma jókst farþegafjöldi þeirra úr 48 prósentum í 74 prósent. Stjórn- völd eru því í vaxandi mæli að treysta markaðnum fyrir rekstri f lugvalla. Óþarfi er að óttast aðkomu fjár- festa að Leifsstöð. Flugvellir eiga í alþjóðlegri samkeppni um hvert f lugfélög f ljúga. Alþjóðlegi f lug- völlur okkar eyjarskeggja starfar ekki í tómarúmi heldur þarf að leita leiða til að þjónusta alþjóðleg f lugfélög og ferðamenn sem best. Dýr Leifsstöð Vantar þig blaðið í dag, í gær eða kannski helgarblað frá því í fyrra? Kíktu á BLÖÐIN á frettabladid.is Á frettabladid.is finnur þú Fréttablaðið í dag og safn eldri blaða undir flipanum Blöðin Lestu Fréttablaðið þegar þér hentar á frettabladid.is Hagnaður Kauphallar Íslands, sem er í eigu Nasdaq-samstæðunnar, jókst um 21 prósent á milli ára og var 70,6 milljónir króna árið 2019. Tekjur jukust um 15 prósent á milli ára og námu 573 milljónum króna. Arð- semi eiginfjár var 20 prósent. Eigið fé Kauphallarinnar var 385 milljónir króna við árslok. Eiginfjárhlutfallið var 57 prósent. Samkvæmt ársreikningi leggur stjórn félagsins til að ekki verði greiddur arður til hluthafa á árinu 2020 vegna ársins 2019. Hugsanlega verði þó boðað til hluthafa- fundar síðar á árinu og lögð fram tillaga um arðgreiðslu. Um 50 prósent af tekjum Kauphallar- innar má rekja til fimm stærstu viðskipta- vina félagsins. Í lok síðasta árs voru 24 félög skráð á hlutabréfamarkað, þar af fjögur á First North. Markaðsvirði skráðra skulda- bréfa jókst um fjögur prósent á milli ára og nam 2.645 milljörðum króna við árslok, þar af voru 708 milljarðar ríkisskuldabréf. – hvj Hagnaður Kauphallarinnar eykst Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.