Harmonikublaðið - 01.05.2017, Síða 4

Harmonikublaðið - 01.05.2017, Síða 4
AfVestfirðingum Starfið hjá Harmonikufélagi Vestfjarða hefur verið með hefðbundnum hætti að viðbættum undirbúningi fyrir landsmótið í sumar. Það hefur verið spilað fyrir eldri borgara á Hlíf og Eyri og eins á ýmsum samkomum og viðburðum á félagssvæðinu eins og t.d. Rauða Kross dansleikjum á sunnudögum. Félag eldri borgara á Isafirði og nágrenni hélt árshátíð sína, sem þeir nefna Töðugjöld, í október sl. A dansleiknum léku félagar í Harmonikufélagi Vestfjarða. Æfingar voru haldnar einu sinni í mánuði í haust en í janúarlok hófust æfingar að nýju og æft vikulega til undirbúnings fyrir landsmótið. Félagið náði þeim merka áfanga að verða 30 ára 16. nóvember sl. Ekki vannst tími til að fagna þá, en ákveðið að minnast afmælisins á Þrír góSir að vestan aðalfundinum sem fram fór 26. febrúar sl. með veglegu kaffisamsæti og spilamennsku. Magnús Reynir las upp úr fundagerð stofnfundar og gat um tilurð þess að 19 einstaklingar stofnuðu félagið að frumkvæði ogeftir sameiginlegan kvöldverð var haldinn dansleikur fyrir fullu húsi, Sigvaldi Jónsson skrifaði þessa vísu í gestabókina af þessu tilefni: Öll ég virði viðmót hlý vinahót og kæti, er þó vanur veislum í að vera með drykkjulœti. Félagið fékk Guðríði Guðmundsdóttur skáldkonu á Isafirði til að gera vísur í tilefni 30 ára afmælis félagsins og voru þær fluttar á aðalfundinum. I gegnum árin hefur félagið staðið fyrir mörgum skemmtunum, kynningu og dansleikjum í þessi 30 ár og spilað á ótal samkomum fyrir unga og aldna á félagssvæðinu, verið með kynningar í leikskólum og fært tónlistarskólunum kennsluharmonikur fyrir börn. Allt starf félagsins hefur byggst á samstöðu og öflugum félagsmönnum sem unnið hafa að vexti félagsins og miklu harmonikustarfi í gleði og sorg. Stór partur af starfinu hefur verið að standa fyrir skemmtiferðum félaganna. Minnisstæðar eru t.d. ferðir sem félagið hefur farið til Borgarfjarðar, Reykhóla, Stykkishólms og Húsavíkur til að hitta félaga í öðrum harmonikufélögum, kynnast og efla tengslin, en ekki síður að eiga með þeim gleðistundir við harmonikuspil. HV hefur tekið þátt í öllum landsmótum sem haldin hafa verið frá Frá afmœlisfundinum. Guðmundur Ingvarsson les fólki pistilinn Ásgeirs S. Sigurðssonar sem kosinn var formaður og gegndi hann því í 21 ár enda aðal kjölfesta félagsins í þessi 30 ár. Gripið var niður í ýmsum gömlum fundagerðum sem gaman var að heyra um, meðal annars heimsóttu Þingeyingar okkur heim árið 1995 4 stofnun félagsins bæði verið með á tónleikum og leikið fyrir dansi. Félagsmenn okkar hafa verið duglegir að mæta á landsmót, en þar hafa oft verið 40-70 manns frá HV. Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir sem HV er mjög stolt af, hefur iðulega komið fram fyrir hönd félagsins bæði á tónleikum og ýmsum uppákomum, haldið einkatónleika og með öðrum á Isafirði og víðar um land. Hún hóf ung að læra á harmoniku í Tónlistarskóla Isafjarðar og er búin að ljúka námi í Listaháskóla íslands þar sem hún var fyrsti harmonikunemandinn. Vorið 2016 lauk Helga mastersnámi í Kaupmannahöfn þar sem hún býr nú og spilar auk þess að leika víða á meginlandinu. Helga er frábær harmo- nikuleikari sem hefur náð langt með sínum áhuga, dugnaði og frábærri spilamennsku. Magnús Reynir rýnir ígamlar jundargerðir Félagið hefur tekið á móti og staðið fyrir tónleikum bæði með íslenskum og erlendum harmonikuspilurum í gegn um tíðina. Ekki er hægt að telja upp alla þá sem komið hafa í heimsókn en t.d. komu 2. júní árið 2009 harmonikuhljómsveitin Ljao Landesjugend- akkordeonorchester frá Bayern í Bæjaralandi í Þýskalandi og hélt frábæra tónleika í Hömrum á Isafirði, en Guðmundur Samúelsson hafði veg og vanda af komu þeirra til Islands. Hljómsveitina skipuðu 30 ungir harmonikuleikarar, einleikari var Konstantin Ischenko, stjórnandi var Stefan Hippe. Þessir tónleikar vöktu mikla og verðskuldaða hrifningu tónleikagesta sem höfðu fyllt salinn og ætlaði fagnaðarlátum aldrei að linna. Harmonikukvintettinn í Reykjavík, undir stjórn Guðmundar Samúelssonar, sem skipaður var frábærum ungum harmonikuleikurum, þeim Álfheiði Gló Einarsdóttur, Hauki Hlíðberg, Halldóri Pétri Davíðssyni, Flemming Viðari Valmundssyni og Jónasi Ásgeiri Ásgeirssyni, hélt tónleika í Hömrum á Isafirði 1. október 2011. Var gaman að heyra unga og efnilega harmonikuleikara spila og var þeim vel fagnað. Kveðja, Karitas Pálsdóttir Myndir Marzelltus Sveinbjörnsson

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.