Harmonikublaðið - 01.05.2017, Blaðsíða 24

Harmonikublaðið - 01.05.2017, Blaðsíða 24
Eyfirðingar á dansskónum Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð hóf vetrarstarfið með dansleik í Hofi laugardaginn 10. september. Þá léku þeir Fjörkálfar, Valberg Kristjánsson, Árni Þorvaldsson, Magnús Kristinsson og Jóhann Möller, ásamt Steinunni Einarsdóttur sem sá um sönginn. Dansbandið tók síðan við af þeim, með Einari Guðmundssyni, Hauki Ingólfssyni, Árna Katli, Finni Finnssyni, Ingólfi Jóhannssyni og Ragnheiði Júlíusdóttur sem sá um sönginn að vanda. Næst var blásið til dansgleði 1. október. Nú var hljómsveitin Braz mætt, en hana mynda þeir Árni Olafsson, Jóhann og Gunnar Möller og Jón Sigurðsson. Svava Hrund Friðriksdóttir er söngkona Braz. Fyrsti vetrardagur hefur löngum verið nýttur til dansbragða í Félagi harmonikuunnenda við Eyjafjörð og á því varð engin breyting í haust. Að þessu sinni voru Fjörkálfarnir í sínu besta stuði en auk Valbergs voru þeir Pálmi Björnsson, Magnús Kristinsson, Jóhann Möller og Steinunn Einarsdóttir í hljómsveitinni. Hljómsveit Hildar Petru Friðriksdóttur tók síðan við en með henni léku þeir Pálmi Björnsson, Jón Sigurðsson og Jóhann Möller. Árs- hátíðin var haldin 12. nóvember í Hofi, en hennar var getið í síðasta tölublað Harmoniku- blaðsins. Eyfirðingar voru eins og aðrir komnir í jólaskap 10. desember þegar var opið hús í Laxagötunni. Þar áttu félagar ákaflega notalega stund við jólalagaharmonikuspil, piparkökur og súkkulaðidrykkju. Á nýju ári var sett í gang laugardaginn 11. febrúar. Nú voru það þeir félagar í Braz, Árni Olafsson, Jóhann og Gunnar Möller, Jón Sigurðsson auk söngkonunnar Svövu Hrundar Friðriksdóttur, sem settu fjörið í gang. Einar Guðmundsson og félagar í Dansbandinu, þeir Rabbi Sveins, Númi Adólfs, Árni Ketill og Haukur Ingólfsson luku síðan ballinu, Ragnheiður söngkona var í fríi. Eftir aðeins þrjár vikur, þann 4. mars voru Eyfirðingar aftur mætir í Lón. I þetta skipti sáu Fjörkálfarnir, Pálmi Björns, Árni Þorvalds,og Maggi Kristins ásamt Hildi Petru um byrjunina. Dansbandið lauksíðan ballinu, en þar leika Einar Guðmunds, Haukur Ingólfs, Árni Ketill, Finnur Finns og Ingólfur Jóhanns. Næst var blásið til dansleiks 1. apríl. Eins og síðast hófur Fjörkálfarnir leikinn og höfðu áfram Hildi Petru á nikkunni. Ballinu luku svo Þingeyingarnir í Strákabandinu, síungir gleðimenn, sem ekki láta kennitölunrar rugla sig í ríminu. Að sjálfsögðu var þessi heimsókn vel þegin af eyfirskum dönsurum. Samkvæmt hefðinni var dansleikur á síðasta vetrardag, þann 19. apríl en þá var hinn kunni dansspilari til áratuga Pálmi Stefánsson mættur með sína hljómsveit. Félagarnir í Brazi leystu hann síðan af og luku ballinu. Allir dansleikir FHUE í vetur hafa farið fram í Menningarhúsinu Hofi, þar sem þess háttar starfsemi á að sjálfsögðu heima. Lokatónar vetrarins verða slegnir á Harmonikudaginn, 6. maí, en þá verða stórtónleikar í Hofi, þar sem meðal annars koma fram nemendur Roars Kvam í Tónlistarskólanum. Deginum lýkur síðan með dansleik þar sem Dansbandið ásamt Fjörkálfunum mun sjá um fjörið. FH/FS. Myndir: Filippía Sigurjónsdóttir Hljómsveit Einars Guðmundssonar með Rabba Sveins Hljómsveitin Braz á febrúarballinu Ásta Soffía í heimsókn Þingeyingurinn snjalli Ásta Soffía Þorgeirsdóttir, sem stundar við nám við Tónlistarháskólann í Osló er á leið heim til tónleikahalds. Með henni í för verða tveir framúrskarandi samnemendur hennar, þau Kristina Björdal Farstad og Marius Berglund, en þau leika einnig á harmonikur. Þau halda tónleika í Húsavíkurkirkju þann 10. ágúst, í Reykjahlíðarkirkju í Mývatnssveit daginn eftir 24 og í Siglufjarðarkirkju þann 14. ágúst. Stefnt er að tónleikum í Reykjavík fimmtudaginn 17. ágúst, sem harmonikufélögin á svæðinu munu að sjálfsögðu auglýsa innan sinna raða, þegar þar að kemur. Auk þess hafa þremenningarnir áhuga á að líta við á Blönduósi.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.