Harmonikublaðið - 01.05.2017, Blaðsíða 12

Harmonikublaðið - 01.05.2017, Blaðsíða 12
Stœrsta harmonikusamkoma heims. Þœr gœtu verið eittþúsund samkvœmt bráðabirgðatalningu. Hér er nú ekki verið að metast á um tegundir Fréttir frá Harmonikufélagi Þingeyinga Það er helst í fréttum að við héldum dansleik, kryddaðan með Kveðandaþætti og bögglauppboði þann 7. janúar á Breiðamýri. Fékk þetta ágætis undirtektir og var góð mæting og mikið dansað, kveðið og bruðlað með peninga. Kveðandafélagar voru þau Davíð Herbertsson, Sigríður ívarsdóttir, Olína Arnkelsdóttir, Ingibjörg Gísladóttir, Osk Þorkelsdóttir, Björgvin Leifsson og Hólmfríður Bjartmarsdóttir. Uppboðshaldari var Friðrik Steingrímsson eins og undanfarin ár og Haukur Ingólfsson, Sigurður Tryggvason, Arni Ketill og Snorri Guðvarðar taka lagið á Breiðumýri stóð sig frábærlega að vanda. Strákabandið, þ.e. Jóel Friðbjarnarson, Kristján Kárason og Rúnar Hannesson spiluðu fyrstir fyrir dansi. SigurðurTryggvason leysti þá síðan af, en Vigdís Jónsdóttir og Hildur Petra Friðriksdóttir enduðu ballið. Undirleikarar voru á bassa Haukur Ingólfsson, Árni Ketill Friðriksson á trommur og Snorri Guðvarðarson á gítar. Tókst þetta allt mjög vel, sérstaklega bögglauppboðið. Þá höfum við verið með tvær dansæfmgar í Ljósvetningabúð og var ágætis mæting þar og eitt myndakvöld var að Ydölum og voru skoðaðar myndir úr Færeyjaferðinni og gamlar ferðamyndir frá Stefáni okkar heitnum í Hólkoti. Texti og myndir: Sigurður Olafison Hinar sívinsœlu Hildur Petra og Vigdís luku svo ballinu á Breiðumýri Félagar i Kveðanda Itfguðu svo sannarlega upp á samkvamið Samband íslenskra harmonikunnenda gaf út geisladisk í september sl. Diskurinn inniheldur upptöku frá fjáröflunartónleikum SIHU sem haldnir voru í Salnum í Kópavogi 5. mars í fyrra. Þeir sem leika á diskinum eru Flemming Viðar Valmundsson, Einar Friðgeir Björnsson, Einar Guðmundsson, Sigurður Alfonsson, Agnes Löve, Guðmundur Samúelsson, Grétar Geirsson, Reynir Jónasson og Bragi Hlíðberg. Aðildarfélög SIHU sjá um dreifingu disksins sem kostar aðeins kr. 2500.-. Þetta eru að sjálfsögðu kjarakjör fyrir disk með fallegri tónlist fluttri af okkar bestu harmonikuleikurum við bestu aðstæður. Omissandi diskur í stofuna, hjólhýsið, húsbílinn, frúarbílinn, fellihýsið og sumarbústaðinn. Þá eru ennþá til nokkur eintök af leikskóladiskinum sem Baldur Geirmundsson lék inn fyrir nokkrum árum og slegið hefur heldur betur í gegn. SIHU 12

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.