Harmonikublaðið - 01.05.2017, Qupperneq 8

Harmonikublaðið - 01.05.2017, Qupperneq 8
Landsmótið á Isafirði dagana 29. júní til 2. júlí 2017 Landsmót S.Í.H.U. verður haldið á Isafirði dagana 29. júní til 2. júlí nk. Það er Harmonikufélag Vestfjarða sem sér um mótið að þessu sinni í samvinnu við S.I.H.U., en landsmót hefúr ekki verið haldið á ísafirði síðan árið 2002. Karitas Pálsdóttir, formaður Harmonikufélags Vestfjarða, segir að undirbúningur hafi gengið vel og vonast sé til að mótið heppnist eins vel og árið 2002, en það mót er mörgum enn í fersku minni. Landsmótið fer að mestu fram í íþróttahúsinu á Torfnesi þar sem spilarar hinna ýmsu harmonikufélaga munu flytja dagskrár sínar á föstudag og laugardag. Þar verða einnig aðaltónleikar gesta mótsins, en þeir eru að þessu sinni íslenskir ungliðar, sem stundað hafa nám í Það var góðþátttaka í dansinum á ísafirði 2002, sœllar minningar Danmörku undanfarið ár. Þeir eru: Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, Jón Þorsteinn Reynisson og Jónas Asgeir Ásgeirsson og kalla þau sig íTríó. A fimmtudag og föstudag verða dansleikir og uppákomur í þremur samkomuhúsum á ísafirði, Edinborgarhúsinu, Krúsinni og Húsinu, þar sem harmonikan verður að sjálfsögðu í aðalhlutverki. A þessum dansleikjum munu hljómsveitir aðildarfélaga S.I.H.U. láta ljós sitt Þekkirðu þessa? Nokkrir lesendur höfðu samband við blaðið vegna myndarinnar, sem birtist í síðasta tölublaði, m.a. Ingimar Einarsson, Gunnar Gauti Gunnarsson og Jón Olafsson. Þessir glaðlegu félagar léku á dansleikjum í Borgarfirði og nágrenni á árunum upp úr 1960 og þóttu afbragðs góðir. Sá sem lék á harmonikuna var Ólafur Guðmundsson (1927-1985) kennari við bændaskólann á Hvanneyri, en auk þess var hann tónlistarkennari um árabil. Af mörgum talinn einn besti harmonikuleikari landsins. Bassaleikarinn hét Haukur Gíslason (1932-2010) og starfaði sem rakari í Borgarnesi, auk þess sinna tónlistarkennslu í Borgarnesi. Trommuleikarinn var Viðar Loftsson (1942-1985) Hann þótti ákaflega fær trommari og er haft fyrir satt að þegar hann var í siglingum á svipuðum tíma og myndin var tekin, hafi hann eitt sinn leyst trommara af í Hamborg. Sá hét Pete Best og aðrir í hljómsveitinni voru þeir John Lennon, Paul McCartney og George Harrison. Síðar tók Ringo Starr við trommunum. Þá þekkja allir. 8 Þröngt máttu sáttir sitja á Isafirði 2002 skína og ókeypis verður á þessa viðburði sem verða á vegum mótshaldara. Harmonikufélag Vestfjarða sendi nýlega frá sér bréf þar sem gerð var grein fyrir gistimöguleikum á svæðinu, en þar fyrir utan verður margvísleg aðstaða fyrir húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og tjöld víðs vegar í kaupstaðnum. I tengslum við landsmótið verður opnuð sýning í Safnahúsinu á Isafirði þar sem sýnt verður úrval harmonika úr safni Asgeirs Sigurðssonar, en hann hefur safnað á þriðja hundrað harmonikum víðs vegar að af landinu og einnig erlendis frá. ísafjarðarbær, sem samanstendur nú af hinum gamla Isafirði og þorpunum fyrir vestan, Þingeyri, Flateyri og Suðureyri og Hornstrandafriðlandinu norðan ísafjarðardjúps, hefur upp á margt að bjóða. Bærinn er rótgróinn menningarbær sem tekur vel á móti gestum sínum, hvort heldur íslenskum sem erlendum og til marks um aðdráttarafl bæjarins má benda á, að í sumar munu á annað hundrað skemmtiferðaskip heimsækja Isafjörð. Aðgangseyrir fyrir alla tónleika mótsins og hátíðardansleik á laugardagskvöld er kr. 10.000, en hægt verður að kaupa miða á einstaka tónleika. Magnús Reynir Guðmundsson. Myndir: Sigurður Harðarson

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.