Harmonikublaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 2
Ávarp formanns
Ágæti harmonikuunnandi
Eg vona að vetrarstarf aðildarféiaganna hafi
verið gott og gefandi öllum þeim er tóku þátt
í því og að aiiir séu glaðir og sælir eftir
veturinn. Ég hef fylgst með nokkrum félögum
sem haldið hafa úti dansleikjahaldi og öðrum
viðburðum, sem er gott til að vita. Það hefur
verið hefð í gegn um árin að sambandið standi
fyrir æfingabúðum að Reykjum í Hrútafirði
fyrir ungmennin okkar og var farið í þetta
verkefni upp úr áramótum og var haft
samband við flestalla harmonikukennara og
tónlistarskóla vegna þessa verkefnis. Það er
skemmst frá því að segja að ekki fékkst næg
þátttaka til þess að halda þessar æfingabúðir
og er það miður. Þetta hefur verið reynt núna
í þrjú skipti, án þess að þátttaka hafi verið
nóg og er það spurning hvort eigi að reyna
halda þessu verkefni áfram eða hætta hreinlega
við. Ég hef aila tíð verið talsmaður þess að
eitthvað sé gert til þess að laða unga fólkið
að aðildarféiögunum og fá þau til að verða
virkir félagar innan þeirra. Það er nú einu
sinni svo að í gegnum árin hefur verið mikil
umræða um það hvernig við fengjum unga
fólkið til að samlagast og vera virkt innan
félaganna og var þetta verkefni liður í því af
hálfu stjórnar sambandsins.
Starf stjórnar SIHU hefur verið með
hefðbundnum hætti þennan veturinn og
símafundir haldnir reglulega þar sem hin
ýmsu mál hafa verið rædd, svo sem lokun
sjónvarpsstöðvarinnar INN, en við lokun
stöðvarinnar hættu útsendingar á
harmonikuþættinum „HARMONIKAN
HEIÉÉAR“ sem þar var sýndur. Það er
nokkuð ljóst að ekki verða harmonikuþættir
á dagskrá í sumar, en hvað verður í haust er
til skoðunar og þá í samvinnu við aðra
sjónvarpsstöð. Einnig hefur stjórn rætt mikið
um næsta landsmót árið 2020, hvar það skuli
haldið. Ekki hafa borist neinar umsóknir frá
aðildarfélögunum um að taka að sér næsta
landsmót. Komið hefur tillaga til stjórnar um
að halda harmonikutónleika í haust í tilefni
af fullveldisafmælisári og er lagt til að bestu
harmonikuleikarar landsins komi fram á
þessum tónleikum. Stjórn sambandsins er
með þessa tillögu til skoðunar og vonandi
getur orðið af þessum tónleikum.
Sumarið er alitaf tilhlökkunarefni harmo-
nikuunnenda. Harmonikumótin fara af stað
hvert á fætur öðru og þetta sumarið verður
engin breyting á því. Þessi mót eru eintóm
skemmtun þar sem tónleikahald og dansleikir
eru í forgrunni. Þarna hittist fólk með sama
áhugamál og tónar
harmonikunnar
hljóma um móts-
svæðin. Vonandi
verða þessi harmo-
nikumót vel sótt og
veðurguðirnir
mótshöldurum
hagstæðir. Harmo-
nikumótin eru aug-
lýst í þessu blaði, þannig að allir geta byrjað
að skipuleggja sig fyrir átökin. Þessi pistill
verður sá næst síðasti sem ég skrifa í
Harmonikublaðið sem formaður sambands-
ins. Eg hef komið þeim skilaboðum til
stjórnar og annarra að ég gef ekki kost á mér
til formennsku á næsta aðalfundi sam-
bandsins sem haldinn verður í boði Félags
harmonikuunnenda við Eyjafjörð í byrjun
október 2018. Það er von mín að sumarið
verði okkur öllum gjöfult og gott og að
Harmonikudagurinn, laugardagurinn 5. maí
gefi tóninn fyrir það sem koma skal í sumar.
Ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegs
sumars.
Gunnar Kvaran, formaður
Heiðursborgari ísafjarðar
Villi Valli hefur verið gerður að heiðursborgara
Isafjarðarbæjar. Þetta er mikill heiður fyrir
listamanninn, sem orðinn er hálfgerð
þjóðsagnapersóna í lifanda lífi. Þetta mun
vera fyrsti íslenski harmonikuleikarinn sem
hlýtur þennan heiður. Villi Valli fæddist á
Flateyri við Önundarfjörð 26. maí 1930.
Strax á barnsaldri var ljóst að Villi Valli bjó
yfir óvenjulegum tónlistarhæfileikum og lék
td. í fyrsta sinn á harmoniku fyrir dansi á
Flateyri aðeins tólf ára gamall.
Harmonikuunnendur þekkja best til Villa
Valla með nikkuna, en hann er einnig
prýðilegur saxófónleikari. Árið 1950 flutti
Villi Valli til Isafjarðar og nam hárskera- og
rakaraiðn og varð það hans aðalstarf í ríflega
sextíu ár. Hann hefur starfað með
Harmonikufélagi Vestfjarða frá upphafi þess
félags og verið einn af burðarásum þess. Alla
tíð hefur jazz verið í uppáhaldi hjá Villa Valla
og fáir sem snarstefja betur, eins og Jón Múli
hefði orðað það. Hann hefur komið að
stofnun fjölmargra hljómsveita af ýmsum
stærðum og gerðum í gegn um tíðina. Villi
Valli er ágætis lagasmiður og tveir diskar hafa
komið út með tónlist hans. Guðný
Magnúsdótdr eiginkona Villa Valla lést á
síðasta ári en þau eignuðust fjögur börn. Villi
Valli hefur alla tíð verið í miklum metum
meðal harmonikuunnenda.
Friðjón Hallgrímsson
Harmonikusafn
Ásgeirs S. Sigurðssonar
býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á
Byggöasafni Vestfjarða.
Sími: 456 3485 qg 844 0172.
Netfang: assigu@intcrnct.is Vcffang: www.ncdsti.is
BvsgiWiaín
2