Harmonikublaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 6
Fréttir frá Harmonikufélagi Þingeyinga
Vetrarstarfið er með hefðbundnum hætti og
hófst með aðalfundi í byrjun október.
Arshátíð félagsins var haldin í nóvember og
hefur þegar verið fjallað um hana í desember
blaðinu. Haldnir eru félagsfundir á Breiðumýri
fyrsta sunnudag hvers mánaðar yfir veturinn.
Eru þeir jafnan vel sóttir og er fyrst spilað á
harmoniku í um það bil klukkutíma áður en
fundur hefst. Að fundi loknum er svo sest að
veislukaffi, en fundarmenn koma með brauð
og kruðerí. Dansæfingar eru fimm til sex yfir
veturinn. Eru þær haldnar í Ljósvetningabúð
og standa yfir frá hálf níu til hálf ellefu. Þar
leika fyrir dansi þeir félagsmenn, sem tiltækir
eru hverju sinni. Hefur þetta mælst vel fyrir.
Um fjölda ára hefur félagið haldið samkomu
upp úr áramótum á Breiðumýri. Nú í vetur
var samkoman haldin 6. janúar. Hófst hún
klukkan níu með dansi sem stóð í drjúga
stund. Síðan tók við hagyrðingaþáttur undir
stjórn Oskar Þorkelsdóttur og með henni voru
Sigríður Ivarsdóttir, Hólmfríður Bjartmars-
dóttir, Ólína Arnkelsdóttir, Ingibjörg Gísla-
dóttir og Davíð Herbertsson. Flugu þar margar
óborganlegar vísur og var mikið hlegið. Var
nú aftur tekið til við dansinn um stund, en
nú var komið að rúsínunni í pylsuendanum
sem var bögglauppboð. Boðnir voru upp um
45 bögglar. Uppboðshaldari var, sem oft áður,
Friðrik Steingrímsson sem af sinni alkunnu
snilld og gáska fórst það vel úr hendi. Var
boðið í villt og brjálað og fór gjaldkeri heim
með úttroðna tösku sæll í sinni. Samkomunni
lauk svo um klukkan tvö og fóru allir heim
með bros á vör og gleði í hjarta. Fyrir dansi
skiptust á um að spila Ásgeir Stefánsson, Rúnar
Hannesson og Katrín Sigurðardóttir, Sigurður
Tryggvason og svo Strákabandið. Nutu spilarar
dyggrar aðstoðar vina okkar frá Akureyri,
þeirra Pálma Björnssonar, Árna Þorvaldssonar
og Magnúsar Kristinssonar, en þeir léku með
á gítar, bassa og trommur. Hjá félaginu er svo
á döfinni ferðalag um þrjátíu félaga á dansleik
hjá nýendurfæddu Harmonikufélagi Horna-
fjarðar sem er á Smyrlabjörgum í Suðursveit
seint í apríl og í sömu ferð er fyrirhugað að
heimsækja Þórbergssetur að Hala í Suðursveit.
Harmonikudaginn 5. maí höldum við svo
hátíðlegan á Breiðumýri með tónleikum eldri
og yngri og veglegu kaffisamsæti. Loks er svo
Grillhátíð dagsett hjá okkur 8. júní.
Látum gott heita að sinni.
Kveðja,
Jón Helgi
Ljósmyndir: Siggi á Sandi
Sigurður Tryggvason tekur nikkuna til kostanna
Dansinn dunar á Breiðumýri
Strákabandið á heimavellinum á Breiðumýri
6