Harmonikublaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 13

Harmonikublaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 13
LífigleÍi njóttu Kvennasveitin í jrumrauninni trommaði. Sigurður Alfonsson lauk síðan ballinu með glæsibrag. Meðleikarar þetta kvöld voru annars þeir Haukur Ingibergs, Hreinn Vilhjálms og Guðmundur Steingrímsson. Lokaballið var síðan 14. apríl. Aðsókn var svipuð og í mars og ekki viðunandi að mati stjórnarinnar. Hildur Petra og Vigdís hófu leikinn og áttu ekki í vandræðum að fá fólk út á gólfið. Svenni Sigurjóns og Hreinn Vilhjálms tóku síðan við af þeim og héldu mannskapnum á gólfinu til að verða eitt. Meðleikarar í þetta sinn voru þeir Jón Guðmundsson og Jónas Pétur. Trommu- leikararnir voru tveir, þeir Guðmundur Steingrímsson og Arni Askelsson Þessu fertugasta og fyrsta starfsári FHUR er nú að ljúka, en við taka harmonikumót sumarsins. Er það fyrir marga tilhlökkunarefni, enda fátt skemmtilegra en að dvelja í góðra vina hópi við harmonikuspil og dans. Félagið mun eins og í fyrra halda sitt „Nú er lag“ á Borg í Grímsnesi um verslunarmannahelgina og hefur einn besti besti harmonikuklúbbur Noregs boðað komu sína á mótið. Hann kemur frá Bodö og hefur unnið til margra verðlauna fyrir leik sinn. Hljómsveitin mun halda tónleika á mótinu, auk þess að leika fyrir dansi. Núverandi formaður FHUR er Steinþóra Ágústsdóttir, varaformaður Hilmar Hjartarson, Haukur Ingibergsson er gjaldkeri, Gyða Guðmundsdóttir ritari og Asgerður Jónsdóttir meðstjórnandi. Friðjón Hallgrímsson Ljósmyndir: Siggi Harðar Þá var kátt í höllinni! Fyrir nokkrum vikum fæddist sú hugmynd að Harmonikufélag Reykjavíkur tæki sal á leigu og héldi ball. Ljóst var að í því fælist nokkur áskorun, sem félagarnir reyndust svo reiðubúnir að mæta og leystu farsællega. Undirritaðan rekur ekki minni til þess að félagið hafi tekið sal á leigu til dansleikjahalds hin síðari ár nema einu sinni og þá af ærnu tilefni, nefnilega 30 ára afmæli félagsins 2016. En á árum áður ku það hafa verið reglulegur þáttur í starfi félagsins og án efa ástæða þess að fjárfest var í öflugu hljóðkerfi sem nú orðið kemur alltof sjaldan fyrir sjónir fólks. Tja, nema sem efnahagsliður í ársreikningi, en það er önnur saga. Nú brá svo við að salurinn Danshöllin í Drafnarfellinu var laus og dagsetning fannst sem hentaði þorra þeirra sem hlut áttu að máli, fyrsti laugardagur í sumri, 21. apríl sl. Þrjár hljómsveitir buðu sig fram til verksins og skiptu á milli sín tímanum frá 20:15 til miðnættis. Combó Smári byrjaði, þá Vitatorgsbandið og að lokum Léttsveitin. Um 80 manns mættu og aðdáunarvert var að sjá dansfólkið hringsnúast allt kvöldið og vart blása úr nös. Papa Jazz og Siggi trommari börðu húðir, Svanhildur stökk til og leysti af á trommur milli þess sem hún spilaði á harmoniku, Eirný lék á gítar og Léttsveitin í Ijúfum leik Marinó á bassa sem lagði auk þess til hljóðkerfið. Hrynsveitin studdi við stóran hóp harmonikuleikara þetta kvöld og sameiginlega var reynt að halda góðum takti svo danspörin gætu fengið notið sín. Þegar kvöldið var gert upp varð niðurstaðan sú að góður grundvöllur væri til að halda ball einu sinni til tvisvar á vetri og hafist yrði handa strax næsta haust. Olafur Briem form. Ljósmynd: Ólafur Briem 13

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.