Harmonikublaðið - 01.05.2018, Qupperneq 19
Fréttir frá Harmonikufélagi Vestfirðinga
Baldur, Villi Valli ogMagnús Reynir hafa löngum glatt Vestfirðinga með leik sínum Aðalfundargestir við veisluborðið
Júlíus Hafsteinn Vilhjálmsson nýkjörinn formaður ásamt eiginkonunni Höllu
Sigurðardóttur
Starfsemi Harmonikufélags Vestfjarða hefur
verið með rólegra móti í vetur eftir annasamt
starf við undirbúning og framkvæmd 13.
landsmóts SIHU sem fram fór á Isaftrði s.l.
sumar. Mikill fjöldi harmonikuunnenda tók
þátt í mótinu sem við í félaginu erum stolt og
glöð með hvernig til tókst. I tengslum við
landsmótið var opnuð sýning á harmonikum
úr Harmonikusafni Asgeirs S Sigurðssonar í
Safnahúsinu á ísafirði sem stóð yfir allt
sumarið. Safnið fékk 5 nikkur landsmótsdagana
til viðbótar í safnið og eru því yfir 230
harmonikur komnar í þetta frábæra safn sem
Ásgeir hefur haft veg og vanda af. Lagfært
lasnar harmonikur, skráð sögu þeirra og
varðveitt og þar með komið í veg íyrir að
margar af gömlu harmonikunum hafi glatast.
Þetta framtak Ásgeirs er ómetanlegt til sögu
harmonikunnar og á hann miklar þakkir fyrir,
en safnið er það eina þeirrar gerðar í landinu.
Diskana frá Landsmótinu á Isafirði, sem eru
fimm af öllum viðburðum mótsins, er hægt
að panta hjá Frummynd í tölvupósti. Netfang:
frummynd@gmail.com
A aðalfundi SlHU í september s.l. afhenti
undirrituð f.h. Harmonikufélags Vestfjarða
ýmislegt sem gefið var út í sambandi við
landsmótið á Isafirði, eins og fána, dagskrá,
auglýsingar og fleira til varðveislu í von um
að stjórnin haldi til haga munum sem tengjast
sögu sambandsins og
landsmóta sem er stór
þáttur í sögu SIHU.
Það er orðið tímbært að
huga að þessum munum
svo þeir glatist ekki.
Harmonikuleikarar
félagsins hafa haft mikið
að gera við að spila á
ýmsum uppákomum á
félagssvæðinu t.d. á
Hjúkrunarheimilinu
Eyri, á Hlíf íbúðum
aldraðra á ísafirði,
áramótagleði sem félagar
í Kiwanisklúbbnum
Básum halda fyrir eldri
borgara, dansleikjum sem Rauði Krossinn
stendur fyrir á sunnudögum einu sinni í
mánuði að vetri. Aðalfundur félagsins vegna
2017 fór fram sunnudaginn 8. apríl s.l. í húsi
Kiwanisklúbbsins Bása, fundurinn var vel
sóttur. Við stjórnarkjör var nýr formaður Júlíus
Hafsteinn Vilhjálmsson kosinn í stað Karitasar
Pálsdóttur sem ekki gaf kost á sér áfram. Aðrir
í stjórn eru Magnús Reynir Guðmundsson,
Hólmgeir Pálmason, Sigríður Gunnarsdóttir,
Messíana Marselíusdóttir, í varastjórn Sigrún
Sigurðardóttir og Elínbjörg Snorradóttir. Eftir
hefðbundin aðalfundarstörf var boðið upp á
kaffihlaðborð með ýmsu góðgæti sem
fundarmenn gerðu góð skil. Að síðustu var
slegið upp balli þar sem þeir spiluðu af sinni
alkunnu snilld Baldur Geirmundsson, Vilberg
Vilbergsson (Villi Valli) og Magnús Reynir.
Veturinn hefur verið okkur Vestfirðingum
hagsæll og vorveðrið í mars og apríl brætt
þann litla snjó sem hér var.
Bestu sumarkveðjur,
Karitas M Pálsdóttir
Hinn árlegi harmonikudansleikur Harmonikufélags
Héraðsbúa verður íValaskjálf á Egilsstöðum
laugardaginn 25. ágúst.
Allir velkomnir.
Stjórnin
T
X
<y
CD
HERAÐSBUA
19