Feykir - 21.08.2019, Síða 3
HÚNAÞING
VESTRA
www.hunathing.is
HVAMMSTANGABRAUT 5 530 HVAMMSTANGI SÍMI 455 2400
ÚTBOÐ
Veitusvið
Húnaþings vestra óskar
eftir tilboðum í verkin:
• „Ljósleiðari Vatnsnes vestur
2020 - VINNUÚTBOГ
• „Ljósleiðari Vatnsnes austur
Vesturhóp 2020 - VINNUÚTBOГ
Ljósleiðari Vatnsnes vestur 2020
- VINNUÚTBOÐ
Veitusvið Húnaþings vestra óskar eftir tilboðum í
lagningu ljósleiðara á Vatnsnesi vestur. Um er að
ræða plægingu á 33,6 km af ljósleiðarastrengjum og
tengingum við um 19 hús.
Ljósleiðari Vatnsnes austur Vesturhóp 2020
- VINNUÚTBOÐ
Veitusvið Húnaþings vestra óskar eftir tilboðum
í lagningu ljósleiðara á Vatnsnesi austur
Vesturhóp. Um er að ræða plægingu á 32,9 km af
ljósleiðarastrengjum og tengingum við um 16 hús.
Verkunum skal að fullu lokið fyrir 10. október 2020.
Útboðsgögn verða seld á kr. 10.000 hjá veitusviði Húnaþings vestra
Hvammstangabraut 5, Hvammstanga frá og með mánudeginum
19. ágúst nk. Sími 455-2400, netfang veitusvid@hunathing.is
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Húnaþings vestra á
Hvammstangabraut 5, Hvammstanga þriðjudaginn
10. september kl. 11:00.
Sveitarstjóri
Sveitarstjóraskipti urðu í Húnaþingi vestra
þann 15. ágúst sl. þegar Ragnheiður Jóna
Ingimarsdóttir tók við starfinu af Guðnýju
Hrund Karlsdóttur sem gegnt hefur starfinu sl.
fimm ár.
Síðastliðin tvö ár hefur Ragnheiður Jóna
starfað sem framkvæmdastjóri afmælisnefndar
aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands.
Áður starfaði hún í tíu ár sem menningarfulltrúi
og verkefnastjóri uppbyggingarsjóðs hjá
Eyþingi, sambandi sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum.
Ragnheiður Jóna lauk MA-prófi í
menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst
og BA-prófi í nútímafræði frá Háskólanum á
Akureyri. Auk þess hefur hún stundað nám í
opinberri stjórnsýslu og lokið námslínunni
Forysta til framþróunar - leið stjórnenda til
aukins árangurs, við Endurmenntun Háskóla
Íslands. /FE
Nýr sveitarstjóri hefur störf
HÚNAÞING VESTRA
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, nýr sveitarstjóri Húnaþings
vestra. Mynd: hunathing.is
Sr. Árni Sigurðsson, börn hans Arnór, Hildur og
afkomendur gáfu Þingeyraklausturskirkju
grænan hökul og stólu að gjöf fyrir nokkru.
Græni liturinn er sá litur er gengur lengst í
kirkjuárinu.
Á Húna.is segir að um sé að ræða
höfðinglega minningargjöf um frú Eyrúnu
Gísladóttur, eiginkonu sr. Árna, sem þakkað er
fyrir og þann hlýhug sem gjöfin ber með sér.
Gjöfinni veittu viðtöku sr. Sveinbjörn Einarsson
sóknarprestur og Björn Magnússon fyrir hönd
sóknarnefndar Þingeyrasóknar.
Sr. Árni Sigurðsson var sóknarprestur í
Þingeyraklaustursprestakalli í um þrjá áratugi
en dvelur nú á Litlu Grund við Hringbraut í
Reykjavík þar sem hann unir sér vel. /Húni.is
Þingeyraklausturskirkju
færðar höfðinglegar gjafir
MINNINGARGJÖF UM FRÚ EYRÚNU GÍSLADÓTTUR
Sumarleikhús æskunnar í Húnaþingi vestra sýnir uppsetningu
sína á Litlu hryllingsbúðinni í Félagsheimili Hvammstanga
laugardaginn 24. ágúst kl 18:00. Um er að ræða fyrstu
uppsetningu sumarleikhússins, sem er sjálft nýtt af nálinni.
Það er Handbendi Brúðuleikhús sem stendur að
sýningunni, með stuðningi Leikflokks Húnaþings vestra,
sveitarfélagsins Húnaþing vestra og Barnamenningarsjóði
Íslands. Í leikhópnum eru tíu ungmenni úr sveitarfélaginu á
aldrinum 8 til 16 ára.
Húsið opnar klukkan 17:30 og miðaverð kr. 1000. Athugið
að enginn posi verður á staðnum. /PF
Litla hryllingsbúðin á fjalirnar
HVAMMSTANGI
Sirrý Sif Sigurlaugardóttir, félagsráðgjafi MA, hefur verið
ráðin til starfa hjá fjölskyldusviði Sveitarfélagsins
Skagafjarðar frá 1. ágúst sl. Sirrý Sif starfaði áður sem
fræðslu- og verkefnastjóri Alzheimersamtakanna á Íslandi og
mun sinna verkefnum er varða faglega og rekstrarlega
stjórnun heimaþjónustu, húsnæðismál, félagslega ráðgjöf,
fjárhagsaðstoð og daggæslu barna á einkaheimilum. Tekur
hún við af Gunnari Sandholt sem látið hefur af störfum.
Sirrý Sif er fædd og uppalin í Skagafirði og segist alltaf hafa
verið á leiðinni heim aftur, en til glöggvunar þeim sem ekki
þekkja er hún frá Flugumýri.
„Við tókum ákvörðun um að flytja í janúar 2019 og
auglýsingin um starfið datt inn á besta mögulega tíma. Ég er
með starfsréttindi sem félagsráðgjafi og er að sérhæfa mig í
öldrunarfræðum, það lá því beint við að sækja um,“ segir
Sirrý Sif sem hefur miklar væntingar til starfsins og hlakkar
verulega til að takast á við þau verkefni sem hennar bíða. „Um þessar mundir er sérstaklega mikið
kallað eftir bættri öldrunarþjónustu og aukinni fagmennsku. Sveitarfélagið Skagafjörður getur þar
verið leiðandi í þróun þjónustu sem hefur það að markmiði að viðhalda sjálfsbjargargetu hvers og
eins. Þannig má lengja tímann sem fólk fær á eigin heimilum og seinka flutningi á
heilbrigðisstofnanir. Sá áfangi að vera orðið heilsueflandi sveitarfélag mun til að mynda ekki síður
hafa áhrif á eldra fólk en aðra. Hreyfing og útivera er t.d. kjörið verkefni fyrir kynslóðasamskipti.
Allir ættu að hafa tíma fyrir einn göngutúr með ömmu eða afa.“ /PF
Sirrý Sif ráðin á fjölskyldusvið
SVEITARFÉLAGIÐ SKAGAFJÖRÐUR
Sirrý Sif Sigurlaugardóttir.
MYND AF SKAGAGFJORDUR.IS
Frá afhendingu hökuls og stóls. Á myndinni eru Hildur
Árnadóttir, Sr. Árni Sigurðsson, Sr. Sveinbjörn R. Einarsson,
Arnór Árnason og Björn Magnússon. Mynd: Húni.is.
31/2019 3