Feykir


Feykir - 02.10.2019, Qupperneq 12

Feykir - 02.10.2019, Qupperneq 12
Hafist var handa við að koma upp ærslabelg við sundlaugina á Sauðárkróki sl. föstudag þegar drengirnir hjá Þ. Hansen hófu jarðvegsvinnu þá sem þeir ætla að leggja til þessa samfélagsverkefnis. Belgurinn er til en hann verður ekki blásinn upp fyrr en búið er að fjármagna verkefnið. Einar Karlsson, innflytjandi ærslabelgja, segir þennan vera þann 78. sem settur er upp á Íslandi en innflutning hóf hann á þeim árið 2005. Tveir aðrir belgir eru staðsettir í Skagafirði, á Hofsósi og í Varmahlíð. Allir eru þeir fjármagnaðir af almenningi, fyrirtækjum og stofnunum. Þrátt fyrir að vel hafi gengið að fjármagna belginn vantar enn þó nokkuð upp á og er almenningur hvattur til að leggja sitt á vogarskálarnar. „Margt smátt gerir eitt stórt. Hægt er að styrkja verkefnið með því að leggja inn á reikning Local Heart, kt. 561216-0450, rk.nr. 0161-26-005612, Leikum á Króknum,“ segir á FB-síðunni Ærslabelgur á Sauðár- krók en þar er hægt að fylgjast með framvindu mála. /PF Sauðárkrókur Ærslabelgurinn tilbúinn Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 37 TBL 2. október 2019 39. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Margt var um manninn í Hjaltadalnum um síðustu helgi þegar um 500 hrossum var smalað af Kolbeinsdal og til réttar í Laufskálarétt. Talið er að smalamenn hafi verið álíka margir og hrossin, ef ekki fleiri, en auk þess mætti margmenni að réttinni. Réttarstörf gengu mjög vel fyrir sig og að sögn lögreglunnar á Norðurlandi vestra tókst vel til með réttina og viðburði sem henni tengdust. Hrossaréttir voru einnig í Þverárrétt í Vesturhópi sl. laugardag og í Deildardalsrétt og Árhólarétt í Unadal var réttað á föstudag. Meðfylgjandi myndir eru teknar í Árhólarétt og Laufskálarétt á föstudag og laugardag. /FE Góðviðri og gott mannlíf Stóðréttir síðustu helgar Rekið úr Kolbeinsdal yfir í Hjaltadal. MYNDIR: FE Efri myndirnar sex eru úr Laufskálarétt en tvær neðstu úr Árhólarétt. MYNDIR: FE Einar Karlsson, innflytjandi ærslabelgja, og Gunnar Smári Reynaldsson hjá Þ. Hansen, hófu uppsetningu belgsins í síðustu viku. MYND: PF Þeir félagar Hákon Unnar Þórarinsson og Sævar Örn Guðmundsson, sátu í rigningunni utan við skrifstofu Feykis fyrir stuttu og biðu eftir því að tími þeirra hæfist í Þreksport, sem er við hliðina. Þeir voru í góðu skapi enda rigningin góð, sögðu þeir. „Við erum að fara í Þreksport, erum úti í rigningunni núna, erum að bíða. Ætlum að taka á því á eftir,“ sögðu þeir en í ræktina fara þeir tvisvar í viku. Þeir segjast hafa mjög gaman af því að fara í líkams- ræktina og skemmtilegast þykir þeim að hjóla og lyfta. Þeir jánka því að þeir eigi eftir að verða þrususterkir eftir þessar æfingar. Verst þótti þeim að sundlaugin væri ekki opin en þeir stunda sundlaugina á Sauðárkróki mikið en einnig fara þeir bæði í Hofsós og Varmahlíð. /PF Sauðárkrókur Beðið eftir ræktinni Hákon og Sævar láta rigninguna ekki hafa áhrif á sig. MYND: PF

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.