Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - May 2020, Page 3

Læknablaðið - May 2020, Page 3
Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Ritstjórn Magnús Gottfreðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Elsa B. Valsdóttir Gerður Gröndal Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir Margrét Ólafía Tómasdóttir Magnús Haraldsson Sigurbergur Kárason Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Esther Ingólfsdóttir esther@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Prófarkalestur Aðalsteinn Eyþórsson Upplag 1850 Prentun og bókband Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi Áskrift 21.900,- m. vsk. Lausasala 2190,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSe- arch), Journal Citation Reports/Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 LÆKNAblaðið 2020/106 227 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Tryggvi Þorgeirsson, forstjóri SidekickHealth, segir fjarheilbrigð- iskerfið geta flýtt því að gripið sé inn í þegar sjúklingum versnar. Mynd/gag Nýta gagnabanka Sidekick til að meta þróun veikinda COVID-19-sjúkra Starfsfólk Landspítala og heilbrigðistæknifyrirtækið SidekickHealth ætla að rannsaka einkenni sjúklinga með COVID-19 til að auka þekkingu um framgang sjúkdómsins. Fjarheilbrigðisþjónusta fyrirtækisins nýtist ekki aðeins þar heldur ætlar spítalinn einnig að fylgjast rafrænt með hjartabiluðum. Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspít- ala, hefur fengið leyfi vísindasiðanefndar til að rannsaka gögnin sem safnast hafa í gegnum fjarheilbrigðiskerfi SidekickHealth. Safnað hefur verið gögnum um einkenni yfir 1000 sjúklinga með COVID-19. Þetta segir Tryggvi Þorgeirsson, læknir og forstjóri fyrirtækisins. „Skoða á þróun einkenna hjá þessum hópi og hver þeirra hafa forspárgildi um slæman gang sjúkdómsins. Þannig getum við betur áhættu- metið sjúklingahópinn út frá einkennamyndinni,“ segir hann. Martin Ingi er ábyrgðarmaður rann- sóknarinnar, en auk hans koma ýmsir sérfræði- læknar á Landspítala að rannsókninni, svo sem Lovísa Björk Ólafsdóttir, Magnús Gottfreðsson og Ragnar Freyr Ingvarsson. Athygli vakti þegar tókst að aðlaga fjarheil- brigðiskerfi Sidekick, sem er CE-merkt lækn- ingatæki og hefur verið í notkun síðustu 6 ár, á stuttum tíma fyrir COVID-19 faraldurinn. Tryggvi segir að fjöldi sérfræðinga á Landspítala hafi komið að þróuninni. „Einnig barst aðstoð frá tölvuleikjafyrirtækinu CCP sem lagði til þró- unarteymi til að styðja við og flýta aðlögun.“ Sjúklingar tilgreina daglega einkenni sín með matslistum í gegnum smáforrit. „Þar er einnig að finna fræðslu og góð ráð frá læknum, sjúkra- þjálfurum og sálfræðingum á Landspítala.“ Hjúkrunarfræðingar og læknar fylgjast síðan með þróun einkenna í gegnum vefgátt, eiga samskipti við sjúklinga og meta hvenær kalla þurfi þá inn til nánari skoðunar. „Stuðst er við algóritma og gervigreind við matið sem auðveldar heilbrigðisstarfsfólki að sjá hvort inngrips er þörf,“ segir Tryggvi. Fjarheilbrigðiskerfi Sidekick hefur hingað til nýst öðrum sjúklingahópum en þeim með COVID-19, svo sem sjúklingum með hjarta- og æðasjúkdóma og ýmsa bólgusjúkdóma. Flest verkefni fyrirtækisins hafi verið erlendis en þeim fjölgi hér innanlands. „Auk COVID-19 verkefnisins erum við núna að þróa samstarf við hjartadeild Landspítala sem er afar spennandi,“ segir hann. Verkefnið er leitt af Davíð O. Arnar, yfirlækni hjartalækninga á Landspítala. „Það hefur verið í undirbúningi í rúmlega hálft ár og hefur alla möguleika á að verða víðtækt. Við erum núna að hefja þann hluta sem snýr að fjarvöktun einstaklinga með hjarta- bilun.“ Hann segir að erfiðara hafi verið að veita fólki með hjartabilun fulla þjónustu út af COVID-19. „Ekki hefur verið hægt að fá sjúklinga í sama mæli inn á göngudeildina og því ætti fjarheil- brigðisþjónustan að nýtast afar vel á tímum sem þessum,“ segir hann og tekur fram að fleiri deild- ir séu að skoða möguleika á samstarfi. „Þörfin er um margt lík og hjá COVID-19 sjúk- lingum. Fólk er veikt og skilar sér of seint inn á bráðamóttökur. Það munar svo miklu í meðferð viðkvæmra sjúklingahópa utan stofnana, svo sem hjartasjúklinga eða krabbameinssjúklinga, að geta gripið inn í sem allra fyrst ef einkennin versna. Ef það er gert snemma er auðveldara að snúa vand- anum við,“ segir hann. Fjarheilbrigðiskerfi Sidekick hefur víða haslað sér völl og fjöldi verkefna í höfn. „Við bætum í næsta mánuði Finnlandi og Sviss í hópinn og erum á þessu ári að fara í verkefni í 10 löndum í Evrópu þar sem verið er að veita fjareftirlit og meðferð fyrir ólíka sjúklingahópa.“ Tryggvi segir að fjarheilbrigðiskerfið hafi nýst vel hjá fjölbreyttum sjúklingahópum og samstarf- ið við Landspítala í þessum heimsfaraldri sé kær- komið. „Við erum virkilega ánægð með að vera komin á skrið hér heima. Þar byrjaði verkefnið fyrir 6 árum síðan og markmiðið var að sjálf- sögðu að geta notað kerfið hér á landi þar sem það var þróað.“

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.