Læknablaðið - mai 2020, Síða 3
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
1850
Prentun og bókband
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo
sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í
eftirtalda gagnagrunna: Medline (National
Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og
Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index (SciSe-
arch), Journal Citation Reports/Science
Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2020/106 227
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Tryggvi Þorgeirsson, forstjóri SidekickHealth, segir fjarheilbrigð-
iskerfið geta flýtt því að gripið sé inn í þegar sjúklingum versnar.
Mynd/gag
Nýta gagnabanka
Sidekick til að meta
þróun veikinda
COVID-19-sjúkra
Starfsfólk Landspítala og heilbrigðistæknifyrirtækið
SidekickHealth ætla að rannsaka einkenni sjúklinga
með COVID-19 til að auka þekkingu um framgang
sjúkdómsins. Fjarheilbrigðisþjónusta fyrirtækisins
nýtist ekki aðeins þar heldur ætlar spítalinn einnig
að fylgjast rafrænt með hjartabiluðum.
Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir
í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspít-
ala, hefur fengið leyfi vísindasiðanefndar til að
rannsaka gögnin sem safnast hafa í gegnum
fjarheilbrigðiskerfi SidekickHealth. Safnað hefur
verið gögnum um einkenni yfir 1000 sjúklinga
með COVID-19. Þetta segir Tryggvi Þorgeirsson,
læknir og forstjóri fyrirtækisins.
„Skoða á þróun einkenna hjá þessum hópi og
hver þeirra hafa forspárgildi um slæman gang
sjúkdómsins. Þannig getum við betur áhættu-
metið sjúklingahópinn út frá einkennamyndinni,“
segir hann. Martin Ingi er ábyrgðarmaður rann-
sóknarinnar, en auk hans koma ýmsir sérfræði-
læknar á Landspítala að rannsókninni, svo sem
Lovísa Björk Ólafsdóttir, Magnús Gottfreðsson og
Ragnar Freyr Ingvarsson.
Athygli vakti þegar tókst að aðlaga fjarheil-
brigðiskerfi Sidekick, sem er CE-merkt lækn-
ingatæki og hefur verið í notkun síðustu 6 ár,
á stuttum tíma fyrir COVID-19 faraldurinn.
Tryggvi segir að fjöldi sérfræðinga á Landspítala
hafi komið að þróuninni. „Einnig barst aðstoð
frá tölvuleikjafyrirtækinu CCP sem lagði til þró-
unarteymi til að styðja við og flýta aðlögun.“
Sjúklingar tilgreina daglega einkenni sín með
matslistum í gegnum smáforrit. „Þar er einnig
að finna fræðslu og góð ráð frá læknum, sjúkra-
þjálfurum og sálfræðingum á Landspítala.“
Hjúkrunarfræðingar og læknar fylgjast síðan með
þróun einkenna í gegnum vefgátt, eiga samskipti
við sjúklinga og meta hvenær kalla þurfi þá inn
til nánari skoðunar.
„Stuðst er við algóritma og gervigreind við
matið sem auðveldar heilbrigðisstarfsfólki að sjá
hvort inngrips er þörf,“ segir Tryggvi.
Fjarheilbrigðiskerfi Sidekick hefur hingað
til nýst öðrum sjúklingahópum en þeim með
COVID-19, svo sem sjúklingum með hjarta- og
æðasjúkdóma og ýmsa bólgusjúkdóma. Flest
verkefni fyrirtækisins hafi verið erlendis en þeim
fjölgi hér innanlands.
„Auk COVID-19 verkefnisins erum við núna
að þróa samstarf við hjartadeild Landspítala sem
er afar spennandi,“ segir hann. Verkefnið er leitt
af Davíð O. Arnar, yfirlækni hjartalækninga á
Landspítala. „Það hefur verið í undirbúningi í
rúmlega hálft ár og hefur alla möguleika á að
verða víðtækt. Við erum núna að hefja þann hluta
sem snýr að fjarvöktun einstaklinga með hjarta-
bilun.“
Hann segir að erfiðara hafi verið að veita fólki
með hjartabilun fulla þjónustu út af COVID-19.
„Ekki hefur verið hægt að fá sjúklinga í sama
mæli inn á göngudeildina og því ætti fjarheil-
brigðisþjónustan að nýtast afar vel á tímum sem
þessum,“ segir hann og tekur fram að fleiri deild-
ir séu að skoða möguleika á samstarfi.
„Þörfin er um margt lík og hjá COVID-19 sjúk-
lingum. Fólk er veikt og skilar sér of seint inn á
bráðamóttökur. Það munar svo miklu í meðferð
viðkvæmra sjúklingahópa utan stofnana, svo sem
hjartasjúklinga eða krabbameinssjúklinga, að geta
gripið inn í sem allra fyrst ef einkennin versna. Ef
það er gert snemma er auðveldara að snúa vand-
anum við,“ segir hann.
Fjarheilbrigðiskerfi Sidekick hefur víða haslað
sér völl og fjöldi verkefna í höfn. „Við bætum í
næsta mánuði Finnlandi og Sviss í hópinn og
erum á þessu ári að fara í verkefni í 10 löndum
í Evrópu þar sem verið er að veita fjareftirlit og
meðferð fyrir ólíka sjúklingahópa.“
Tryggvi segir að fjarheilbrigðiskerfið hafi nýst
vel hjá fjölbreyttum sjúklingahópum og samstarf-
ið við Landspítala í þessum heimsfaraldri sé kær-
komið. „Við erum virkilega ánægð með að vera
komin á skrið hér heima. Þar byrjaði verkefnið
fyrir 6 árum síðan og markmiðið var að sjálf-
sögðu að geta notað kerfið hér á landi þar sem
það var þróað.“