Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - maj 2020, Qupperneq 4

Læknablaðið - maj 2020, Qupperneq 4
235 Berglind Gunnarsdóttir, Hannes Hrafnkelsson, Erlingur Jóhannsson, Emil L. Sigurðsson D-vítamínbúskapur íslenskra barna og ungmenna: Langtímarannsókn Meirihluti D-vítamíns sprettur af nýmyndun í húðinni eftir útsetningu fyrir UV-B geislum sólarinnar en minni hlutinn kemur frá D-vítamíninntöku í fæðu. Náttúrulegir D-vítamíngjafar eru meðal annars feitur fiskur og eggjarauður. Á norðlægum breiddargráðum er þéttni útfjólublárrar geislunar ekki nægjanleg til nýmyndunar D-vítamíns yfir vetrarmánuðina og íbúar því háðir D-vítamíninntöku í fæðu og fæðubótarefnum til að ná æskilegri blóðþéttni D-vítamíns. Það er vel þekkt að langvarandi skortur D-vítamíns getur leitt til sjúkdóma á borð við beinkröm hjá börnum og beinmeyru hjá fullorðnum. 243 Ólafur Árni Sveinsson, Haukur Hjaltason Nýjungar í MS. Áhættuþættir, greining og meðferð MS (multiple sclerosis) er algengasti bólgusjúkdómurinn í miðtaugakerfi og ein algengasta orsök fötlunar hjá ungu og miðaldra fólki. MS er sjálfsofnæmissjúkdómur sem orsakast af flóknu samspili erfða og umhverfis. Miklar framfarir hafa orðið í greiningu og meðferð sjúkdómsins á síðustu árum og mikilvægt er að læknar séu vel upplýstir um einkenni og meðferðarmöguleika til að tryggja skjóta greiningu og viðeigandi meðferð. 247 Aron Hjalti Björnsson, Þorbjörg Ólafsdóttir, Katrín María Þormar, Már Kristjánsson, Anna Sesselja Þórisdóttir, Björn Rúnar Lúðvíksson, Sigurður Guðmundsson, Magnús Gottfreðsson Fyrsta meðferð með tocilizumab við COVID-19 hérlendis – sjúkratilfelli Rúmlega fimmtugur karlmaður sem hafði verið á ferðalagi erlendis veiktist við komuna til landsins með flensulíkum einkennum og greindist með COVID-19. Nokkrum dögum síðar fékk hann vond öndunarfæraeinkenni og lagðist inn á Landspítala. Eftir innlögn fékk hann versnandi öndunarbilun og var fluttur á gjörgæsludeild og var meðhöndlaður með tocil- izumab (IL-6 hemill). Hann sýndi batamerki í kjölfarið og þurfti ekki að fara í öndunarvél. 228 LÆKNAblaðið 2020/106 F R Æ Ð I G R E I N A R 5. tölublað ● 106. árgangur ● 2020 231 Már Kristjánsson Landspítali á farsóttartímum COVID-19-faraldurinn er ekki búinn! Landspítali þarf að vera tilbúinn til að bregðast ef faraldur eða stök tilfelli koma upp. Margt er á huldu um framvindu faraldursins og fjölmörgum spurning- um ósvarað hvað hana varðar. 233 Steingerður Sigurbjörnsdóttir Börnin okkar Sé vel hlúð að börnum á unga aldri geta þau sýnt ótrúlega seiglu við krefjandi aðstæður. En ef uppeldishlutverkinu er ekki vel sinnt, til dæmis vegna veikinda, óreglu, áfalla, ofbeldis, fjár- hagsvanda eða slakra félagslegra aðstæðna, er staða barna önnur. z L E I Ð A R A R COVID-19 í Bolungarvík Sýnataka í Bolungarvík en sá kaupstaður með um 900 íbúa við ysta haf var hart leikinn í heimsfaraldrinum sem náði alla leið norður undir Bolafjall við Ísafjarðardjúp þegar hópsýk- ing stakk sér þar niður. Á myndinni eru Hallgrímur Kjartansson læknir og Sigríður Sigþórsdóttir sjúkraliði í öll- um COVID-herklæðum. Sýni voru tekin af nær því öllum Bolvíkingum og íbúum á norðanverðum Vestfjörðum (alls 2470), Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Íslensk erfðagreining stóðu þar í ströngu. Bakvarðasveit var send með þyrlu vestur til styrkja heilbrigðisþjónustuna. Alls greindust 57 með vírusinn á Bolungarvík, og tveir eru látnir. Á myndinni er Óshlíðin þar sem lá einn hættulegasti akvegur landsins þar til jarðgöngin yfir í Hnífsdal voru opnuð árið 2010 og þar hefur COVID-19 rennt sér í gegn. – VS M yn d: H af þó r G un na rs so n í B ol un ga rv ík .

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.