Læknablaðið - maj 2020, Side 19
LÆKNAblaðið 2020/106 243
Y F I R L I T S G R E I N
aðrar skýringar hafi verið útilokaðar. Sú regla gildir áfram en með
tilkomu segulómunar og nýrra greiningarskilmerkja sem fyrst
birtust 2001, en hafa verið endurskoðuð nokkrum sinnum, síðast
2017,27 er nú hægt að greina MS þegar eftir eitt kast. Miðað er við
að kastaeinkennin hafi varað í að minnsta kosti einn sólarhring og
séu dæmigerð fyrir MS.28 Sem dæmi er sjóntap og verkur við augn-
hreyfingar en það eru einkenni um sjóntaugabólgu sem er algeng
í MS. Höfuðverkur og flog myndu hins vegar ekki flokkast undir
dæmigerð einkenni. Einkenni kasts byrja yfirleitt ekki skyndi-
lega og standa í daga eða vikur, jafnvel mánuði. Hafi sjúklingur
fengið í fyrsta sinn dæmigerð einkenni og þar með sitt fyrsta kast
auk þess að segulómun sýni að minnsta kosti eina breytingu á
að minnsta kosti tveimur af fjórum tilgreindum svæðum, eins og
sést á mynd 2 (útbreiðsla í rúmi), er hægt að setja MS-greininguna
að því tilskildu að aðrar skýringar séu útlokaðar. Annað skilyrði
tekur til tímaþáttar (útbreiðsla í tíma) og felst í að við segulómun
sjáist misgamlar breytingar (með og án skuggaefnis), eða nýjar
breytingar frá einni segulómunarmynd til þeirrar næstu, eða þá
að bólgubönd sjáist í mænuvökva sjúklings. Eins og sést á þessu
skiptir segulómun miklu við snemmgreiningu á MS.
Dæmigerð klínísk einkenni eru forsenda MS-greiningar.
Stundum greinast hins vegar MS-líkar breytingar á segulómun
hjá sjúklingum án nokkurra slíkra einkenna (til dæmis sjúklingar
sem hafa farið í segulómun vegna brjóskloss eða höfuðverkja). Í
þessum tilvikum er talað um að sjúklingar hafi Radiological Isolated
Syndrome, RIS. 29 Framskyggnar rannsóknir skortir á þessum hópi
en afturskyggnar athuganir benda til að allt að þriðjungur þessara
einstaklinga fái einkenni og greinist með MS næstu 5 ár eftir RIS-
greiningu.30 Mikilvægt er því að fylgja einstaklingum eftir klínískt
og myndrænt með reglulegu millibili sem ræðst af aldri og hversu
sterkur grunur er um MS út frá myndrannsóknum.30
Meðferð
Meðferð við MS má skipta í þrennt:
• Meðferð við köstum
• Fyrirbyggjandi meðferð
• Meðferð gegn viðvarandi einkennum (svo sem þreytu, verkjum,
aukinni vöðvaspennu og þvagblöðrutruflunum)
Sterameðferð við köstum (í formi inndælingar eða töflumeðferðar)
er einkum beitt þegar kastaeinkenni trufla daglegt líf sjúklings
eða gætu skilið eftir sig fötlun.3 Mikilvægt er að útiloka sýkingar
því að í slíkum tilvikum getur sterameðferð verið hættuleg.
Hafa skal í huga að sýkingar, jafnvel vægar sýkingar eins og
þvagfærasýkingar og ýmsar veirusýkingar, geta kallað fram eða
ýft upp fyrri MS-einkenni. Þótt það sé ekki alltaf auðvelt, er mik-
ilvægt að mistúlka ekki slíkt sem raunveruleg köst eða merki um
aukna sjúkdómsvirkni. Við afar slæmum köstum sem ekki svara
háskammtasterameðferð er hægt að beita blóðvökvaskiptum
(plasma exchange).3
Ekki verður frekar farið út í meðferð gegn viðvarandi einkenn-
um en þó minnst á lyfið famprídín (Fampyra®) sem er tiltölulega
nýlega komið á markað hér. Lyfið virkar hemjandi á flæði kalíum-
jóna yfir frumuhimnur og hafa rannsóknir sýnt að það getur í
sumum tilvikum bætt göngugetu MS-sjúklinga.31 Krafist er lyfja-
skírteinis þar sem koma þarf fram niðurstaða sjúkraþjálfara um
skerta göngugetu sjúklings.
Fyrirbyggjandi meðferð
Tilgangur fyrirbyggjandi meðferðar er að minnka sjúkdómsvirkni:
• Fyrirbyggja köst
• Koma í veg fyrir nýjar breytingar á segulómun
• Fyrirbyggja fötlun og síversnun
Þessa þrjá þætti er oftast miðað við í rannsóknum á gagnsemi lyfja
við MS. Á töflu II má sjá núverandi fyrirbyggjandi meðferð við MS
á Íslandi. Interferón beta (Avonex®, Betaferon®, Rebif®, Plegridy®)
og glatíramerasetat (Copaxone®, Remurel®) eru sprautulyf sem
notuð hafa verið í um tvo áratugi. Þau veita um 30% vörn gegn
köstum en dæmi eru um sjúklinga sem verið hafa á þessum lyf-
jum í mörg ár með góðum árangri.32,33 Góð reynsla er af þessum
lyfjum með tilliti til öryggis. Helsta aukaverkun interferón beta
lyfjanna eru flensulík einkenni.3 Tíðni notkunar er allt frá viku-
legum gjöfum í vöðva upp í að sjúklingar sprauti sig daglega
undir húð þegar um glatírameracetat meðferð er að ræða. Lyf um
Mynd 2.
Mynd 2. Greiningarskilmerki MS frá 2017.
Sjúklingur getur fengið MS-greiningu án annars
kasts sé vissum skilyrðum fullnægt við segulómun
Útbreiðsla í rúmi
Ein breyting í tveimur af eftirfarandi fjórum svæðum:
1. Rétt undir heilaberki
2. Í heilastofni eða litla heila
3. Meðfram vökvahólfum
4. Í mænu
Útbreiðsla í tíma
(nóg að hafa eitt af þremur):
• Ný breyting á segulómmynd í samanburði við
fyrstu/fyrri segulómmyndir
• Ef breytingar sjást samtímis á segulómun sem
hlaða skuggaefni og sem ekki hlaða skuggaefni
• Bólgubönd í mænuvökva