Læknablaðið - May 2020, Page 38
262 LÆKNAblaðið 2020/106
Hvernig líður þér á þessum tímum kórónu-
veirunnar Covid-19?
“Líðan eftir atvikum góð”. Við eigum
þrjú börn undir sex ára aldri og hefur
COVID-19 faraldurinn haft talsverð áhrif á
heimilislífið vegna lokana í skólakerfinu.
Við erum einnig vön að vera mikið með
börnin úti t.d í almenningsgörðum, á leik-
völlum og fara með þau í Barnasafnið en
það er allt saman einnig lokað núna. Fátt
er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð
gott og hefur upptaka fjarlækninga gert
það að verkum að ég hef getað unnið
að heiman og eytt meiri tíma með fjöl-
skyldunni sem ég er þakklátur fyrir.
Finnst þér þú nægilega varin/n hlífðarfatn-
aði við störf þín?
Já ég myndi segja það. Allir starfsmenn
hér fengu endurnýtanlega andlitshlífar til
notkunar á öllum tímum í vinnunni auk
þess sem við fengum endurnýtanlegar
andlitsgrímur til almennrar notkunar
þegar ekki er grunur um COVID-19 sjúk-
dóminn. Til að bregðast við aukinni þörf
á hlífðarbúnaði hefur mörgum verkferlum
verið breytt tímabundið t.a.m. er hlífðar-
búnaður eingöngu notaður núna fyrir
COVID-19 sjúklinga og reynt að takmarka
fjölda starfsmanna sem þurfa sinna sjúk-
lingum. Líkt og á mörgum aðrir stöðum
hafa verið teknir upp staðlaðir verkferlar
varðandi endurnýtingu N95 gríma af illri
nauðsyn. Vinnuherbergi og vinnustöðvar
eru almennt stærri en ég vandist heima
og eru allir starfsmenn skimaðir fyrir ein-
kennum og hitamældir við innganga til að
reyna stemma við smiti milli starfsmanna.
Hefur tilkoma COVID breytt miklu í þinni
daglegu vinnu?
Já, mesta breytingin hefur orðið á
göngudeildarstarfseminni. Námslækn-
ar vinna tímabundið ekki lengur á með
sérfræðingum á göngudeildum undir-
sérgreina í lyflækningum. Á almennri
göngudeild námslækna hefur starfsemin
einnig breyst mikið með tilkomu fjarlækn-
inga og myndbandsheimsóknum, þegar
þess er kostur, til þess að reyna að minnka
útsetningu sjúklinga og starfsmanna fyrir
COVID-19.
Á spítalanum er mest áberandi að
námslæknar sinna nú ekki ráðgjöf undir-
sérgreina og eru í staðinn á bakvakt heima
til að geta leyst af ef veikindi koma upp.
Á almennu lyflæknadeildunum hefur
ekki orðið mikil breyting á starfseminni,
utan þess að læknanemar eru tímabundið
ekki á kennsluteymum, enda hefur það
verið yfirlýst stefna spítalans að sjúklingar
sem leggjast inn með staðfest eða sterkan
grun um SARS-CoV-2 smit leggjast ekki
inn á kennsluteymi í almennum lyflækn-
ingum bæði til að spara hlífðarbúnað
og takmarka útsetningu nema á meðan
aðstæður leyfa. Námslæknar í almennum
lyflækningum sinna þó SARS-CoV2 sjúk-
lingum á sérhæfðari kennsluteymum og á
gjörgæslu.
Hefur þinn vinnustaður og stjórnendur
hans brugðist rétt við farsóttinni að þínu mati?
En heilbrigðisyfirvöld og stjórnvöld?
Já, mér finnst að stjórnendur spítalans
og yfirmenn lyflæknaprógramsins hafi
brugðist eins vel við og hægt var að búast
við þær kringumstæður og þeim skorð-
um sem þeim voru settar vegna aðgerða
og viðbragða stjórnvalda. Stjórnendur
spítalans og yfirmenn lyflæknaprógrams-
ins hafa haft reglulega fræðslufundi og
upplýsingaflæði til starfsmanna varðandi
faraldurinn hefur verið gott. Starfseminni
hefur verið breytt, sbr svör að ofan, til
að reyna að takmarka útsetningu starfs-
manna og sjúklinga og hámarka nýtingu
hlífðarbúnaðar. Það er samt ljóst að við-
brögð stjórnvalda hér í Bandaríkjunum
hafa haft áhrif á getu heilbrigðiskerfisins
til að hefja skimanir fyrir sjúkdómnum.
Telur þú að þessi faraldur breyti störfum
þínum til framtíðar og þá hverju?
Ég gæti vel trúað því að þetta gæti
leitt til frekari innleiðingar fjarlækn-
inga við hefðbundna göngudeildar- og
heilsugæsluþjónustu.
Mun heimurinn verða mikið breyttur eftir
COVID?
Allir eldar brenna út um síðir. Mér
skilst að einhver mesta samfélagsþróun-
in eftir heimsfaraldurinn 1918 hafi verið
styrking og samhæfing heilbrigðiskerfa og
stofnana milli landa þar með talið stofnun
forvera Alþjóðaheilbrigðisstofnuninar, en
miðað við digurbarkalegar yfirlýsingar
undanfarið vona ég bara við tökum ekki of
mörg skref aftur á bak.
Davíð Ólafsson í lyflækningum og
stefnir á smitsjúkdómasérhæfingu í Iowa City
C O V I D - 1 9