Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - maí 2020, Blaðsíða 38

Læknablaðið - maí 2020, Blaðsíða 38
262 LÆKNAblaðið 2020/106 Hvernig líður þér á þessum tímum kórónu- veirunnar Covid-19? “Líðan eftir atvikum góð”. Við eigum þrjú börn undir sex ára aldri og hefur COVID-19 faraldurinn haft talsverð áhrif á heimilislífið vegna lokana í skólakerfinu. Við erum einnig vön að vera mikið með börnin úti t.d í almenningsgörðum, á leik- völlum og fara með þau í Barnasafnið en það er allt saman einnig lokað núna. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott og hefur upptaka fjarlækninga gert það að verkum að ég hef getað unnið að heiman og eytt meiri tíma með fjöl- skyldunni sem ég er þakklátur fyrir. Finnst þér þú nægilega varin/n hlífðarfatn- aði við störf þín? Já ég myndi segja það. Allir starfsmenn hér fengu endurnýtanlega andlitshlífar til notkunar á öllum tímum í vinnunni auk þess sem við fengum endurnýtanlegar andlitsgrímur til almennrar notkunar þegar ekki er grunur um COVID-19 sjúk- dóminn. Til að bregðast við aukinni þörf á hlífðarbúnaði hefur mörgum verkferlum verið breytt tímabundið t.a.m. er hlífðar- búnaður eingöngu notaður núna fyrir COVID-19 sjúklinga og reynt að takmarka fjölda starfsmanna sem þurfa sinna sjúk- lingum. Líkt og á mörgum aðrir stöðum hafa verið teknir upp staðlaðir verkferlar varðandi endurnýtingu N95 gríma af illri nauðsyn. Vinnuherbergi og vinnustöðvar eru almennt stærri en ég vandist heima og eru allir starfsmenn skimaðir fyrir ein- kennum og hitamældir við innganga til að reyna stemma við smiti milli starfsmanna. Hefur tilkoma COVID breytt miklu í þinni daglegu vinnu? Já, mesta breytingin hefur orðið á göngudeildarstarfseminni. Námslækn- ar vinna tímabundið ekki lengur á með sérfræðingum á göngudeildum undir- sérgreina í lyflækningum. Á almennri göngudeild námslækna hefur starfsemin einnig breyst mikið með tilkomu fjarlækn- inga og myndbandsheimsóknum, þegar þess er kostur, til þess að reyna að minnka útsetningu sjúklinga og starfsmanna fyrir COVID-19. Á spítalanum er mest áberandi að námslæknar sinna nú ekki ráðgjöf undir- sérgreina og eru í staðinn á bakvakt heima til að geta leyst af ef veikindi koma upp. Á almennu lyflæknadeildunum hefur ekki orðið mikil breyting á starfseminni, utan þess að læknanemar eru tímabundið ekki á kennsluteymum, enda hefur það verið yfirlýst stefna spítalans að sjúklingar sem leggjast inn með staðfest eða sterkan grun um SARS-CoV-2 smit leggjast ekki inn á kennsluteymi í almennum lyflækn- ingum bæði til að spara hlífðarbúnað og takmarka útsetningu nema á meðan aðstæður leyfa. Námslæknar í almennum lyflækningum sinna þó SARS-CoV2 sjúk- lingum á sérhæfðari kennsluteymum og á gjörgæslu. Hefur þinn vinnustaður og stjórnendur hans brugðist rétt við farsóttinni að þínu mati? En heilbrigðisyfirvöld og stjórnvöld? Já, mér finnst að stjórnendur spítalans og yfirmenn lyflæknaprógramsins hafi brugðist eins vel við og hægt var að búast við þær kringumstæður og þeim skorð- um sem þeim voru settar vegna aðgerða og viðbragða stjórnvalda. Stjórnendur spítalans og yfirmenn lyflæknaprógrams- ins hafa haft reglulega fræðslufundi og upplýsingaflæði til starfsmanna varðandi faraldurinn hefur verið gott. Starfseminni hefur verið breytt, sbr svör að ofan, til að reyna að takmarka útsetningu starfs- manna og sjúklinga og hámarka nýtingu hlífðarbúnaðar. Það er samt ljóst að við- brögð stjórnvalda hér í Bandaríkjunum hafa haft áhrif á getu heilbrigðiskerfisins til að hefja skimanir fyrir sjúkdómnum. Telur þú að þessi faraldur breyti störfum þínum til framtíðar og þá hverju? Ég gæti vel trúað því að þetta gæti leitt til frekari innleiðingar fjarlækn- inga við hefðbundna göngudeildar- og heilsugæsluþjónustu. Mun heimurinn verða mikið breyttur eftir COVID? Allir eldar brenna út um síðir. Mér skilst að einhver mesta samfélagsþróun- in eftir heimsfaraldurinn 1918 hafi verið styrking og samhæfing heilbrigðiskerfa og stofnana milli landa þar með talið stofnun forvera Alþjóðaheilbrigðisstofnuninar, en miðað við digurbarkalegar yfirlýsingar undanfarið vona ég bara við tökum ekki of mörg skref aftur á bak. Davíð Ólafsson í lyflækningum og stefnir á smitsjúkdómasérhæfingu í Iowa City C O V I D - 1 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.