Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - May 2020, Page 39

Læknablaðið - May 2020, Page 39
LÆKNAblaðið 2020/106 263 C O V I D - 1 9 Það tekur klukkustund að hjóla frá heimili mínu til Ballerup þar sem ég vinn á geð- spítala. Venjulega hlusta ég á tónlist eða hljóðbók á leiðinni, en undanfarið hef ég haft kveikt á DR radio-appinu til að heyra útvarpsfréttir. Ég hef aldrei fylgst jafn vel með fréttum og nú. Sem Íslendingur í Danmörku, uppalin í Svíþjóð, hefur verið áhugavert að fylgj- ast með hvernig þessi keimlíku lönd hafa brugðist mismunandi við heimsfaraldrin- um. Danmörk er eitt af þeim löndum sem brugðust hart og hratt við, gripu til að- gerða eins og að loka landamærum, skól- um, stofnunum og sendu meirihluta rík- isstarfsmanna heim. Áhersla er á stöðuga fræðslu og upplýsingagjöf til almennings. Samkomubönn og félagsforðun hafa skilað árangri og farið er að slaka á hömlum. Fyrirmæli heilbrigðisyfirvalda virka svo vel að læknar auglýsa nú eftir sjúk- lingum, jafnvel í fjölmiðlum. Tölur sýna færri innlagnir í ár heldur en í fyrra og hjartalæknar hafa skoðað 35% færri sjúk- linga. Tilvísunum á krabbameinsdeildir og geðsvið hefur fækkað um 50-60% síðan fyrir faraldur. Talið er að veikir einstak- lingar einangri sig heima hjá sér og þori ekki að leita læknis, vilji ekki „trufla“. Búist er við auknu álagi á kerfið á næstu mánuðum vegna annarra sjúkdóma. Ró ríkir á geðspítalanum í Ballerup, enda hvorki sjúklingar né starfsmenn með staðfest smit. Færri koma á bráðamóttök- una og margir göngudeildarsjúklingar kjósa símafundi sem eru styttri en venju- leg viðtöl. Sem læknir á göngudeild fyrir flóttafólk og innflytjendur með geðræn vandamál hef ég eftirfylgd með 40 sjúk- lingum. Í teyminu er hjúkrunarfræðingur, félagsráðgjafi og sálfræðingur. Sjúklingar mínir eru flestir með áfallastreituröskun eftir áföll í heimalandi sínu. Ég er fegin að göngudeildin lokaði ekki eins og fyrst var spáð. Flóttafólk hefur átt sérlega bágt á þessum tímum. Lokun sam- félagsins hefur minnt á stríðsástandið sem það flúði og í upphafi vantaði upplýsingar á þeirra tungumáli. Á tímabili ríkti óvissa og ringulreið meðal unglækna spítalans. Margir áhyggjufullir um að verða sendir í framvarðasveit fyrirvaralaust. Sem trúnaðarmaður fyrir unglækna á spítalanum hef ég setið á reglulegum fundum með stjórnendum og fengið upp- færslur daglega. Enn hefur ekki verið þörf á okkar mannskap annars staðar. Líklega vegna þess að tugþúsundir heilbrigðis- starfsmanna (meðal annars fjöldi nema og starfsfólk sem var komið á eftirlaun) skráðu sig sem sjálfboðaliða til að hjálpa til þar sem álagið var mest. Ég hef aldrei upplifað viðlíka samstöðu, velvilja og samkennd meðal heilbrigðis- starfsfólks og er afar stolt af minni fagstétt. Vinnubrögð okkar hafa mikið breyst og ég er sannfærð um að margt mun varanlega breytast eftir Covid-fárið sem ríkir enn. Guðrún Ágústa Sigurðardóttir Rödd unglæknis í Köben á tímum COVID-19

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.