Læknablaðið - maj 2020, Side 44
268 LÆKNAblaðið 2020/106
„Jú, göngudeildin er afrek,“ segir Daði
Helgason, sérfræðilæknir á COVID-
19-göngudeildinni, sem sett var upp á
örfáum dögum í Birkiborg, húsi á lóð
Landspítala Fossvogi. Hún var opnuð
þann 24. mars og er því komin reynsla
á starfsemina. Ragnar Freyr Ingvarsson,
yfirlæknir á deildinni, segir hana af-
rakstur þess þegar umhyggja og upplýs-
ingatækni mætast.
„Umhyggja er kjarninn í því sem við
gerum og með öflug verkfæri í hendi er
hægt að ná ótrúlegum árangri.“ Ragnar
Freyr segir starfsemina hafa breyst mikið
á um einum mánuði. Hann hefur áður
gagnrýnt starfsaðstæður á spítalanum, þá
sérstaklega neyðarástandið á bráðamót-
tökunni.
„Ég geri mér alveg grein fyrir því að
þessi faraldur er skelfilegt tjón fyrir sam-
félagið allt, en inni á spítalanum hefur átt
sér stað ótrúleg gróska, alveg frá gólfi til
æðstu stjórnenda,“ segir hann. „Það var
hlustað. Stjórnendur hlustuðu á fagmenn
og stjórnvöld hlustuðu á sérfræðinga. Við
það virðast góðir hlutir gerast. Það eru
skilaboðin sem við tökum frá þessu verk-
efni,“ segir hann.
„Hér hafa verið leystar úr læðingi
ótrúlegar hugmyndir. Samvinnuverkefni,
nýsköpun, rannsóknartækifæri. Það hafa
orðið til tengsl á milli fólks sem að öllu
jöfnu hefði aldrei starfað saman. Aldrei
rætt saman nema kannski í lyftunni á
milli hæða,“ segir Ragnar Freyr.
„Nú sjáum við styrkinn í öðru fólki.
Maður getur komið með eitthvað til þeirra
og það gefið á móti. Það hefur sáð hug-
myndum um hvernig við munum vinna
saman í næstu verkefnum og komandi
áskorunum að faraldri loknum.“
Geðheilsan lykilatriði
Daði segir að í upphafi hafi göngudeildin
verið skipulögð af læknum á lyflækn-
ingasviði. „En nánast frá byrjum komu
sérnámslæknar frá öðrum sviðum að
verkefninu, skurðsviði, kvennadeildinni,
augndeildinni og geðdeildinni.“ Far-
sóttarnefnd ýtti fyrstu drögum að hug-
myndinni úr vör og hún óx í samvinnu
þvert á deildir. Ragnar Freyr segir að strax
á fyrstu dögunum hafi starfsmenn geð-
deildar stigið fram og boðið þekkingu sína
að fyrra bragði.
„Við sáum fyrstu dagana að staðan var
ansi dökk,“ segir hann. „Þeir buðu stuðn-
ing við þá sem glíma við geðræn vanda-
mál vegna faraldursins.“ Það hafi beint
kastljósinu að geðheilsu sjúklinganna.
Með því að gefa henni sérstakan gaum
hafi innlögnum verið afstýrt.
„Síðan göngudeildin tók til starfa hef-
ur sjúklingum með COVID-19 fækkað
drastískt á bráðamóttökunni,“ segi Ragnar
Freyr.
Daði segir smitaða áhyggjufulla. „Fólk
horfir á fréttirnar og sér hve margir deyja
af völdum veirunnar. Sjúklingarnir eru
því eðlilega stressaðir,“ segir hann.
„Fyrst vorum við að einblína á líkamleg
einkenni og velta fyrir okkur hver þyrfti
að koma inn á spítalann. Við heyrðum
mjög fljótt að það þyrfti að huga að geð-
heilsu. Við höfum heyrt hjá fólki hve gott
er að heyra í hjúkrunarfræðingi daglega til
að halda geðheilsunni þokkalegri.“
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
C O V I D - 1 9
COVID-19-göngudeildin: íslenskt hugvit
COVID-19-göngudeildin sýnir áhrifamátt þess að vinna saman þvert á fagstéttir. Deildin á sér ekki erlenda
fyrirmynd en hefur að mati læknanna Daða Helgasonar og Ragnars Freys Ingvarssonar afstýrt fjölmörgum
innlögnum á spítalann í þessum heimsfaraldri. Afrek í sögu íslenskrar heilbrigðisþjónustu?