Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - maj 2020, Side 45

Læknablaðið - maj 2020, Side 45
LÆKNAblaðið 2020/106 269 Ragnar Freyr segir að einn helsti kostur þessarar göngudeildar sé hve auðvelt er að skala hana upp og niður. „Bæði var hún þanin mjög hratt út og hægt er að draga úr starfsemi hennar eftir þörfum. En að sama skapi er hægt að endurræsa hana aftur ef þurfa þykir,“ segir hann. Daði bætir við að það væri einnig hægt að gera í breyttri mynd, eftir þörfum og verkefnum. Göngudeildina megi nýta til annarra verka eftir faraldurinn. „Við erum sannfærð um að þegar heildarmyndin er skoðuð, höfum við sparað spítalanum margar innlagnir með því að bjóða upp á þessa þjónustu, og þar með fé.“ Deildin eigi sér ekki erlenda fyrirmynd svo vitað sé. Hún sé einstök. „Ráðherra sagði í viðtali í Kastljósinu að smæð lands- ins hjálpaði til. En við erum samt með um 1800 sjúklinga. Við höfum sinnt þeim persónulega. Ég veit ekki til þess að önnur þjóð hafi stundað símavöktun á þennan máta,“ segir Ragnar. Þegar Daði er spurður hvað hafi kom- ið honum mest á óvart svarar hann að það hafi verið hve allt gekk snurðulaust fyrir sig. „Ég hef ekki mikla reynslu af skipulagi og stjórnendahlutverki en á flókinni stofnun eins og Landspítala er ákveðin tregða og skrifræði sem getur taf- ið málin en núna hefur allt gengið smurt. Þessi samstarfsvilji og jákvæðni hefur komið á óvart.“ Tækifæri til breyttra vinnubragða Ragnar Freyr nefnir að máttur umhyggj- unnar hafi komið sér á óvart. „Umhyggja. Að stíga skrefinu lengra er manni auðvelt, taka eitt aukaskref og veita fólki um- hyggju og stuðning.“ Það hafi gert meiri gæfumun en hann hafi áður upplifað. „Við þurfum að taka umhyggjuna með okkur inn í önnur verkefni. Það að annast um fólk og láta velferð þess skipta sig máli er meðferð í sjálfu sér.“ Ragnar Freyr segir að í þessum faraldri hafi lausnin á vanda spítalans kristallast: að hlusta á sérfræðingana. Það mættu stjórnmálamenn læra af faraldrinum „Ég er að tala um í víðara samhengi. Ef við sem höfum sérmenntað okkur í því að meðhöndla sjúklinga, vinna með öðrum heilbrigðisstarfsmönnum og reka heil- brigðisþjónustu erum spurð, þá virðast hlutirnir fara vel.“ Hefur það ekki verið gert? „Það mætti augljóslega vera meira af því,“ svarar hann. Þeir telja báðir að faraldurinn auki þekkingu og reynslu þeirra sem að koma. Daði hefur unnið á spítalanum frá kandídatsári 2015. „Reynslan er góð fyrir mig. Sérstaklega að fá tækifæri til að þróa svona verkefni og taka þátt í að skipu- leggja. Ég hef lært heilmikið,“ segir hann. Ragnar segir að sést hafi á þessu verk- efni hve samvinnu margra þurfi svo allt gangi upp. „Rafvirkjar, píparar, smiðir. Tölvunar- fræðingar, hjúkrunarfræðingar, sérhæft starfsfólk, læknar, framkvæmdastjórar, stjórnendur. Maður verður orðlaus yfir því að sjá alla þá sem starfa innan spítalans ganga í takt,“ segir hann. Rafræn sjúkra- skrá, Heilsugátt, hafi verið einn þeirra þátta sem gaf þeim tækifæri til að vera skrefi á undan. Daði tekur undir að þau sem standi að Heilsugáttinni á spítalanum hafi sinnt lykilhlutverki. „Við höfum daglega búið til lausnir með þeim. Viðbrögðin hafa verið frábær. Við rekum okkur á eitthvað sem mætti fara betur og lausnin er komin á stuttum tíma,“ segir hann. „Það er margt sem við munum taka frá þessum faraldri. Ýmsar lausnir í skráningu gagna og gagnaúrvinnslu.“ Þeir eru þakklátir fyrir að hafa fengið tækifæri til að vera með í verkefninu. Ragnar segir einfaldlega róandi að fá að vera partur af lausninni. „Það hefur veitt mér ró að vita af öllu aflinu sem er hér til að leysa vandann. Ég sef vel, steinsef og mig dreymir vel.“ Ragnar og Daði á fjarfundi frá húsnæði COVID-19-göngu- deildarinnar á Landspítala. Nálgun Landspítala í faraldrinum er byggð á íslensku hugviti og samvinnu. Læknarnir telja deildina hafa afstýrt fjölda innlagna fólks með kórónuveiruna á Landspítalann. Mynd/Þorkell Þorkelsson. C O V I D - 1 9

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.