Læknablaðið - mai 2020, Síða 47
LÆKNAblaðið 2020/106 271
C O V I D - 1 9
„Þetta gerðist allt svo hratt. Allt í einu
var búið að setja á samkomubann og
fella niður hefðbundna kennslu,“ segir
Sólveig Bjarnadóttir, formaður Félags
læknanema og 5. árs nemi í læknisfræði.
„Heill bekkur af læknanemum var
settur í sóttkví og teknir voru upp
rafrænir kennsluhættir á nánast einni
helgi. Við læknanemar höfum lengi
talað fyrir fjölbreyttum kennsluaðferð-
um. Við vissum að það þyrfti átak til en
það er magnað hvað þetta hefur gengið
hratt fyrir sig. Ég tel þó að enginn hafi
óskað þess að vera á Zoom-fyrirlestrum
allan daginn,“ segir Sólveig og hlær.
„Ég get ekki beðið eftir því að mæta
í almenna kennslu. Við höfum lært
að meta upp á nýtt gæði þess að hafa
kennara fyrir framan sig og nemendur
við hliðina á sér.“
Hún segir að gera hafi þurft tölu-
verðar breytingar á verknáminu. Önnur
starfsemi spítalans en sú sem tengist
kórónuveirunni sé minni, göngudeildar-
þjónusta í lágmarki og fáar skurðað-
gerðir.
„Margt annað hefur þó komið í
staðinn. Gerður hefur verið samningur
milli lífeindafræðinga og 4. árs nema
um blóðtökur.“ Nemarnir hafi fengið
kennslu frá lífeindafræðingum og að-
stoði nú við morgunblóðtökur á legu-
deildum. „Mikil ánægja hefur verið með
þetta fyrirkomulag.“ Þá hafi nemendur
sem skráðu sig í bakvarðasveitina verið
kallaðir í gagnaöflun og nemendur á
heilbrigðisvísindasviði starfað í rakn-
ingarteyminu.
„Læknanemar hafa allir lært mik-
ilvægi sóttvarna og hlífðarbúnaðar á
þessum vikum. Það hefur verið mjög
lærdómsríkt að standa í miðjum heims-
faraldri.“
Hún segir könnun sem Stúdentaráð
gerði sýna kvíða hjá háskólanemum.
„Óvissa er mikil og álag vegna nýrra að-
stæðna. Ég myndi segja að allir hafi ver-
ið ótrúlega þolinmóðir og sveigjanlegir
við að leysa hlutina. Við höfum einnig
átt mjög gott samstarf við læknadeild
í að aðlaga námið. Þetta hefur gengið
vel.“ Hún sakni þó bekkjarfélaganna og
félagslífsins sem sé úr skorðum.
„Árshátíðinni hefur verið frestað sem
og öðrum viðburðum. Það er krefjandi
að vera heima allan daginn og vera í
fyrirlestrum á Zoom,“ segir hún og sér
fram á að best verði að blanda raun- og
rafrænum heimum í framtíðinni.
Laga hefur þurft námið við læknadeild Háskóla Íslands
að breyttum veruleika vegna kórónu-faraldursins
COVID-19. Viðtal Læknablaðsins við þau Þórdísi
og Engilbert fór fram í gegnum fundaforritið Zoom.
Mynd/gag
Úr skólastofunum
á netið á einni helgi
Formaður Félags læknanema segir nema lengi hafa barist fyrir
fjölbreyttum kennsluháttum. Eingöngu rafrænt sé þó aðeins of
mikið af því góða.
Sólveig Bjarnadóttir er formaður Félags læknanema.
um háskólum, jafnvel bestu háskólum
í heimi. „Kennarinn væri þá meira í að
leiðbeina í verklegu og taka þátt í um-
ræðutímum.“ Hann segir ljóst að margar
dyr opnist með rafrænni kennslu auk
þess sem kolefnissporið minnki og tíma-
stjórnunin batni.
„Þannig að sveigjanleikinn er kominn
til að vera,“ segir hann en viðurkennir að
rafræna fyrirkomulagið sé þó á köflum
einmanalegt og mikilvægt að blanda
saman því rafræna og hefðbundnum
samskiptum. „Við munum áfram sækjast
eftir því að vera innan um annað fólk,
sérstaklega í litlum hópum. Það getur
ekkert komið fyllilega í staðinn fyrir
það.“
Engilbert segir aðgang læknanema að
klínísku kennsluefni orðinn gríðarlega
mikinn. „Það eru ekki bara bækur sem
lýsa tilfellum heldur er hægt að fá raf-
rænar bækur, hægt að kaupa aðgang að
rafrænum gagnagrunnum. Nemar í dag
hafa ótrúlega fjölbreytt tækifæri til að til-
einka sér þekkingu. En svo er það alltaf
spurning hvernig þeim tekst að yfirfæra
þekkinguna í færni.“