Læknablaðið - maj 2020, Side 52
276 LÆKNAblaðið 2020/106
„Kynlífsraskanir eru sjúkdómsflokkur en
það að vera án röskunar jafngildir ekki
kynferðislegri ánægju,“ sagði Áslaug
Kristjánsdóttir, kynlífs- og hjúkrunar-
fræðingur, í erindi sínu sem hún hélt á
Læknadögum í janúar. Töluna hélt hún á
málþingi um kynlífsraskarnir sem Magn-
ús Haraldsson geðlæknir og yfirlæknir á
Landspítala stýrði.
Áslaug, sem lærði bæði í Ástralíu og
Bretlandi, fór yfir að kynlífsraskanir væru
huglægt mat. Þær væru flokkaðar eftir því
hvort þær væru áunnar eða algildar, hvort
þær væru staðbundnar, með ákveðnum
eða í ákveðnum athöfnum. Hún fór yfir
skilgreiningar og hvernig kynlífsraskanir
væru flokkaðar eftir kynsvörunarmódeli
sem Masters og Johnson lögðu grunninn
að.
„Þau rannsökuðu hvað gerist í líkam-
anum þegar við stundum kynlíf,“ sagði
Áslaug og benti á þætti um þau á RÚV,
Masters of Sex. Rannsóknir þeirra hafi
staðist tímans tönn og séu enn til grund-
vallar þegar meta eigi kynlífsraskanir.
Hún ræddi staðla og pararáðgjöf og við
einblínum á ráðgjöfina hér.
Sögulegir kynlífstímar
„Ég upplifi að ég búi á sögulegum
spennandi tímum í fræðum mínum,“
sagði Áslaug. Alltaf hafi verið rætt um
minnkandi áhuga kvenna á kynlífi. „En
árið 2013 poppar það upp að karlmenn
geta líka haft minnkandi áhuga á kynlífi.“
Hún sagði frá því að pör leituðu helst til
hennar út af mismunandi áhuga á kynlífi.
„Það er nálægt helmingur karla sem hafa
minni áhuga en konan þeirra í gagnkyn-
hneigðum samböndum eins og að konan
hafi minni áhuga en karlinn.“ Fólk hafi
enga trú á því þegar hún segi þetta.
En af hverju að tala um kynlíf við
lækna á Læknadögum? „Til þess að hafa
fullnægjandi kynlífsgetu þarf heilbrigðar
æðar og taugar til að þjónusta kynfæra-
svæði og önnur örvunarsvæði,“ sagði
Áslaug og benti á að þar kæmu læknar að
málum. Hormónajafnvægið þurfi að vera
viðunandi, ekki fullkomið, þegar komi að
kynlífi. Þá þurfi huga sem hafi getu til að
hugsa kynferðislega.
Hún benti á að kynlífsráðgjöf væri
samtalsmeðferð, þerapía, sem fólk þurfi
að læra sérstaklega. Hún vinni út frá hug-
rænni atferlismeðferð, því kynlífsraskanir
hafi líka með ókynferðislegar athafnir
að gera. Hvernig samskipti parsins séu,
hvernig því líði í vinnunni. Hvernig veðrið
sé úti. Allt hafi það áhrif á langanir fólks.
Búið sé að rannsaka hvað virki í samskipt-
um hjóna og hvað ekki. Miðla þurfi þekk-
ingunni til fólks.
Fólki skorti þekkinguna
„Það er merkilegt hvað fólk er illa kyn-
frætt,“ sagði Áslaug. „Þið trúið því varla
en ég lendi í því í dag að það koma til mín
ungar konur, þær eru kannski 25 ára þegar
ég hitti þær, og þær segja: Þegar ég byrjaði
á blæðingum vissi ég ekkert hvað væri að
gerast. Ég hélt ég væri að deyja af því að
það byrjaði að blæða úr píkunni á mér.“
Hún sagði frá því hvernig fólk væri
hannað til að forðast það sem ylli því
óþægindum. Eitthvað fari svo úrskeiðis
í kynlífinu og fólk reyni því að forða sér
undan því. Hún sagði frá því hvernig
fólk kysi oft frekar að leita til lækna en
kynlífsráðgjafa. Hún beini þeim sem hafi
kynlífsraskanir til læknis, því risvandi af
líffræðilegum toga væri þeirra vandi. „Það
væri ekki faglegt að reyna að kjafta slíkt
úr sjúklingi.“
Áslaug sagði fólk oft tilbúið að trúa því
að eitthvað væri að líkama þess frekar en
að horfast í augu við sálrænan kynlífs-
vanda. Hún fór yfir verklag sitt eins og
það kæmi upp í vinnunni hennar. Hún
spyrji fólk hvernig það hafi byrjað saman.
„Það gefur oft einhverja mynd. Byrji fólk
rólega saman, hægur gangur, hvar var þá
hitinn? Kynlíf snýst um hita. Ást um volt.“
Hún fari í gegnum eðli snertinga. Hún
spyrji: Ertu búinn að missa áhugann á
kynlífi? Eða á því kynlífi sem er í boði?
Það er á ábyrgð parsins að kynlífið sé
skemmtilegt, ekki annars aðilans.
„Fólk er almennt ekki með litla kyn-
löngun. Það nennir bara ekki að stunda
kynlífið sem er í boði,“ sagði hún. Fólk
vilji tilbreytingu. Það vilji ekki alltaf gera
hlutina eins. „Fólk nennir ekki: Kyssast,
káfa, samfarir og svo aftur og aftur.“
Kynlíf kalli á stór orð
„Fólk upplifir kynlífsvanda sem mikið
mál,“ sagði Áslaug og að það kallaði á stór
orð. Fólk fullyrði að það passi ekki saman.
Sambandið gangi vart því það passi ekki
Karlar missa líka áhugann
á kynlífi eins og konur
Hlutfall þeirra karla sem upplifa minni áhuga á kynlífi en makinn
er nánast jafn hátt og hlutfall kvenna sem það gerir. Þetta sagði
Áslaug Kristjánsdóttir kynlífsfræðingur á Læknadögum.
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir