Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - maj 2020, Qupperneq 52

Læknablaðið - maj 2020, Qupperneq 52
276 LÆKNAblaðið 2020/106 „Kynlífsraskanir eru sjúkdómsflokkur en það að vera án röskunar jafngildir ekki kynferðislegri ánægju,“ sagði Áslaug Kristjánsdóttir, kynlífs- og hjúkrunar- fræðingur, í erindi sínu sem hún hélt á Læknadögum í janúar. Töluna hélt hún á málþingi um kynlífsraskarnir sem Magn- ús Haraldsson geðlæknir og yfirlæknir á Landspítala stýrði. Áslaug, sem lærði bæði í Ástralíu og Bretlandi, fór yfir að kynlífsraskanir væru huglægt mat. Þær væru flokkaðar eftir því hvort þær væru áunnar eða algildar, hvort þær væru staðbundnar, með ákveðnum eða í ákveðnum athöfnum. Hún fór yfir skilgreiningar og hvernig kynlífsraskanir væru flokkaðar eftir kynsvörunarmódeli sem Masters og Johnson lögðu grunninn að. „Þau rannsökuðu hvað gerist í líkam- anum þegar við stundum kynlíf,“ sagði Áslaug og benti á þætti um þau á RÚV, Masters of Sex. Rannsóknir þeirra hafi staðist tímans tönn og séu enn til grund- vallar þegar meta eigi kynlífsraskanir. Hún ræddi staðla og pararáðgjöf og við einblínum á ráðgjöfina hér. Sögulegir kynlífstímar „Ég upplifi að ég búi á sögulegum spennandi tímum í fræðum mínum,“ sagði Áslaug. Alltaf hafi verið rætt um minnkandi áhuga kvenna á kynlífi. „En árið 2013 poppar það upp að karlmenn geta líka haft minnkandi áhuga á kynlífi.“ Hún sagði frá því að pör leituðu helst til hennar út af mismunandi áhuga á kynlífi. „Það er nálægt helmingur karla sem hafa minni áhuga en konan þeirra í gagnkyn- hneigðum samböndum eins og að konan hafi minni áhuga en karlinn.“ Fólk hafi enga trú á því þegar hún segi þetta. En af hverju að tala um kynlíf við lækna á Læknadögum? „Til þess að hafa fullnægjandi kynlífsgetu þarf heilbrigðar æðar og taugar til að þjónusta kynfæra- svæði og önnur örvunarsvæði,“ sagði Áslaug og benti á að þar kæmu læknar að málum. Hormónajafnvægið þurfi að vera viðunandi, ekki fullkomið, þegar komi að kynlífi. Þá þurfi huga sem hafi getu til að hugsa kynferðislega. Hún benti á að kynlífsráðgjöf væri samtalsmeðferð, þerapía, sem fólk þurfi að læra sérstaklega. Hún vinni út frá hug- rænni atferlismeðferð, því kynlífsraskanir hafi líka með ókynferðislegar athafnir að gera. Hvernig samskipti parsins séu, hvernig því líði í vinnunni. Hvernig veðrið sé úti. Allt hafi það áhrif á langanir fólks. Búið sé að rannsaka hvað virki í samskipt- um hjóna og hvað ekki. Miðla þurfi þekk- ingunni til fólks. Fólki skorti þekkinguna „Það er merkilegt hvað fólk er illa kyn- frætt,“ sagði Áslaug. „Þið trúið því varla en ég lendi í því í dag að það koma til mín ungar konur, þær eru kannski 25 ára þegar ég hitti þær, og þær segja: Þegar ég byrjaði á blæðingum vissi ég ekkert hvað væri að gerast. Ég hélt ég væri að deyja af því að það byrjaði að blæða úr píkunni á mér.“ Hún sagði frá því hvernig fólk væri hannað til að forðast það sem ylli því óþægindum. Eitthvað fari svo úrskeiðis í kynlífinu og fólk reyni því að forða sér undan því. Hún sagði frá því hvernig fólk kysi oft frekar að leita til lækna en kynlífsráðgjafa. Hún beini þeim sem hafi kynlífsraskanir til læknis, því risvandi af líffræðilegum toga væri þeirra vandi. „Það væri ekki faglegt að reyna að kjafta slíkt úr sjúklingi.“ Áslaug sagði fólk oft tilbúið að trúa því að eitthvað væri að líkama þess frekar en að horfast í augu við sálrænan kynlífs- vanda. Hún fór yfir verklag sitt eins og það kæmi upp í vinnunni hennar. Hún spyrji fólk hvernig það hafi byrjað saman. „Það gefur oft einhverja mynd. Byrji fólk rólega saman, hægur gangur, hvar var þá hitinn? Kynlíf snýst um hita. Ást um volt.“ Hún fari í gegnum eðli snertinga. Hún spyrji: Ertu búinn að missa áhugann á kynlífi? Eða á því kynlífi sem er í boði? Það er á ábyrgð parsins að kynlífið sé skemmtilegt, ekki annars aðilans. „Fólk er almennt ekki með litla kyn- löngun. Það nennir bara ekki að stunda kynlífið sem er í boði,“ sagði hún. Fólk vilji tilbreytingu. Það vilji ekki alltaf gera hlutina eins. „Fólk nennir ekki: Kyssast, káfa, samfarir og svo aftur og aftur.“ Kynlíf kalli á stór orð „Fólk upplifir kynlífsvanda sem mikið mál,“ sagði Áslaug og að það kallaði á stór orð. Fólk fullyrði að það passi ekki saman. Sambandið gangi vart því það passi ekki Karlar missa líka áhugann á kynlífi eins og konur Hlutfall þeirra karla sem upplifa minni áhuga á kynlífi en makinn er nánast jafn hátt og hlutfall kvenna sem það gerir. Þetta sagði Áslaug Kristjánsdóttir kynlífsfræðingur á Læknadögum. ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.