Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - maj 2020, Side 55

Læknablaðið - maj 2020, Side 55
LÆKNAblaðið 2020/106 279 L Y F J A S T O F N U N Í ljósi þess að þau lyf sem verið er að reyna við COVID-19-sjúkdómnum í dag hafa ekki verið nægilega vel rannsökuð hafa lyfjayfirvöld í Evrópu gripið til ýmissa aðgerða til að stuðla að greiðara aðgengi að lyfjum, styðja við lyfjaþróun og þróun bóluefnis gegn COVID-19 sjúkdómnum.1 Hjá Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hef- ur verið sett á fót viðbragðsteymi um COVID-19 með það að markmiði að hraða öllum ferlum og fara yfir fyrirliggjandi gögn og rannsóknaráætlanir um möguleg lyf og lyf í þróun gegn COVID-19. Einnig er stutt við starfsemi vísindanefnda á veg- um EMA og samstarf við hagsmunaaðila og aðrar alþjóðlegar stofnanir aukið eftir þörfum. Markmið stofnunarinnar er að styðja lyfjaframleiðendur í því skyni að meðferð eða forvörn gegn COVID-19 finn- ist sem fyrst.1 Í dag eru yfir 500 rannsóknir skráðar á clinicaltrials.gov sem ná til meðferða við COVID-19. Þessar rannsóknir ná til ýmissa ábendinga tengdum COVID-19, bólu- setninga, lyfja sem eru markaðssett við öðrum ábendingum (veirulyf, malaríulyf, og fleira), einstofna mótefna, interferóna, plasma og fleira. Þá er mikilvægt að notkun lyfja utan ábendinga hindri ekki framboð lyfja hjá einstaklingum sem nota þau samkvæmt ábendingu (til dæmis við gigtsjúkdómum). Í slíkum tilfellum getur Lyfjastofnun gripið til ráðstafana til að koma í veg fyrir skort eins og gert var með Plaquenil®,2 það er að setja reglugerð til að sporna við hamstri lyfja. EMA samþykkti nýverið skilyrði á notkun á lyfinu remdesivir af mannúðar- ástæðum.3 Lyfið er ekki á markaði, en var notað hjá einstaklingum smituðum af Ebólu.3,4 Ályktun um áhrif lyfsins á SARS-CoV-2 og aukaverkanir byggir á forklínískum rannsóknum. Einnig eru upplýsingar um öryggi lyfsins byggðar á rannsóknum á um 500 heilbrigðum einstaklingum og einstaklingum sem sýktust af Ebólu.4 Notkun á remdesivir af mannúðarástæðum nær til veikustu einstaklinganna með COVID-19-sjúk- dóminn sem eru of veikir til að taka þátt í klínískum samanburðarrannsóknum. Samþykki EMA er háð skilyrðum um reglulega eftirfylgni á árangri meðferðar og öryggi lyfsins, ásamt samanburðar- rannsóknum á einstaklingum með vægari einkenni COVID-19.3 Samantekt um notkun remdesivir af mannúðarástæðum var nýlega birt í NEJM.5 Rannsóknin var opin, án við- miðunarhóps og náði til 61 sjúklings sem lögðust inn á sjúkrahús í nokkrum löndum. Þar kom fram að dánarhlutfall í þessum veika hópi var 13%, sem er heldur lægra en í öðrum rannsóknum. Birtingar- mynd COVID-19 er mjög mismunandi, allt frá einkennalausum til fjölkerfabilunar og dauða. Allur samanburður á milli ólíkra rannsókna er því varhugaverður, þar sem ekki er ljóst hvort árangur meðferðar út- skýrist af mismun á vali sjúklinga inn í rannsókn, mismun á stuðningsmeðferð, annarri lyfjameðferð eða vegna áhrifa remdesivirs á veiruna. Skilningur á ár- angri meðferðar og aukaverkunum lyfs er því mjög torveldur án slembiröðunar og samanburðarhóps. Æskilegt er að lyf sem hugsanlega hafa verkun gegn SARS-CoV-2 séu einungis notuð sem hluti af rannsókn eða fyrirfram ákveðnu verklagi þar sem árangur og aukaverkanir lyfjameðferðar eru skoðað- ar. Hafa skal í huga við notkun lyfja utan ábendingar að sjúklingar með COVID hafa hugsanlega aðrar og jafnvel alvarlegri aukaverkanir en kemur fram í upplýs- ingum um eiginleika lyfjanna (SmPC). Ástæða þessa er sú að aukaverkanir lyfja miðast út frá þeim hópi sem hafa tekið lyf- ið í skráðri ábendingu. Grunnsjúkdómar og almennt heilsufar getur verið annað en hjá einstaklingum með COVID-19 sjúkdóm. Nauðsynlegt er að fylgjast með allri slíkri notkun, safna upplýsingum um árangur meðferðar og tilkynna all- ar aukaverkanir til Lyfjastofnunar eða markaðsleyfishafa. Slíkar upplýsingar má einnig senda í gegnum Miðstöð lyfjaupp- lýsinga á Landspítala. Mat á aukaverk- unum vegna lyfja hjá einstaklingum með COVID-19 er í forgangi hjá EMA. Í heimsfaraldri sem COVID er nægt framboð smitaðra einstaklinga og árangur meðferðar er hægt að meta mjög fljótt. Þessar mikilvægu forsendur skjótra og áreiðanlegra niðurstaðna um öryggi og árangur lyfjameðferðar eru því til stað- ar. Hraðan og alvarlegan sjúkdómsgang þessa vágests sem leggst á heimsbyggðina þarf að nýta með samstilltu átaki til að upplýsingar um bestu meðferð liggi fyrir sem fyrst til að ná betri árangri í meðferð COVID-19 til framtíðar. EMA hvetur alla sem vinna að rannsóknum sem tengjast lyfjameðferð við COVID-19 að skrá rann- sóknirnar í EU PAS gagnabanka (encepp. eu/encepp/studiesDatabase.jsp). Sérfræðingar á vegum EMA fylgjast með niðurstöðum þessara rannsókna og rýna í þær við mat á öryggi og virkni lyfj- anna og stuðla þannig að skjótari upplýs- ingaöflun og bættu öryggi sjúklinga. Heimildir 1. ema.europa.eu/en/news/ema-support-development- vaccines-treatments-novel-coronavirus-disease-covid-19 - 16 apríl 2020. 2. lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/plaquenil-radstafanir- til-ad-koma-i-veg-fyrir-skort - apríl 2020. 3. ema.europa.eu/en/news/ema-provides-recommenda- tions-compassionate-use-remdesivir-covid-19 - apríl 2020. 4. Mulangu S, Dodd LE, Davey RT, Mbaya OT, Proschan M, Mukadi D, et al. A Randomized, Controlled Trial of Ebola Viruse Disease Therapeutics. NEJM 2019; 381; 2293-303. 5. Grein J, Ohmagari N, Shin D, Diaz G, Asperges E, Castagna A, et al. Compassionate use of remdesivir for patients with severe covid-19. NEJM 2020; 10. apríl 2020. Lyfjamál á tímum COVID-19 – allt á fullu Guðrún Stefánsdóttir lyfjafræðingur lyfjafaraldsfræðingur Elín Jacobsen lyfjafræðingur Hrefna Guðmundsdóttir lyflæknir

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.