Morgunblaðið - 19.05.2020, Page 1

Morgunblaðið - 19.05.2020, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 9. M A Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  117. tölublað  108. árgangur  SÖFNIN NÆRA, FRÆÐA, SKEMMTA OG AUÐGA FUNDU Á FJÓRÐA TUG FORNGRIPA PRAKTÍSKIR SMÁJEPPAR Í PRUFUAKSTRI Í ÞJÓRSÁRDAL 10 BÍLAR 16 SÍÐURSAFNAVERÐLAUN 29  Minnisvarði um Stjörnu-Odda Helgason verður afhjúpaður á Grenjaðarstað á sólstöðum, 20. júní næstkomandi. Er tíminn viðeigandi því Oddi var talinn merkur vísinda- maður miðalda og reiknaði meðal annars út hvenær sólstöður yrðu á sumri og vetri. Eitt merkasta framlag Íslend- inga á miðöldum til viðfangsefna raunvísinda er svokölluð Odda tala sem er eignuð norðlenska vinnu- manninum Stjörnu-Odda, skrifar Þorsteinn Vilhjálmsson, fyrrver- andi prófessor í eðlisfræði og vís- indasögu, í svari á Vísindavefnum. Þorsteinn segir við Morgunblaðið að merkur boðskapur sé í þessu riti sem er frá miðri tólftu öld, og allt það sem þar komi fram sé í aðal- atriðum rétt, miðað við aðstæður á þeim tíma. »4 Morgunblaðið/Ómar Víkingaskipasafn Þekkingin sem Oddi aflaði og skráði nýttist við siglingar. Minnisvarði um höfund Odda tölu reistur í Aðaldal Netsala hjá Hagkaupum hefur dreg- ist saman eftir að takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins var aflétt. Sigurður Reynaldsson, fram- kvæmdastjóri Hagkaupa, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að netsala fyrirtækisins hafi náð há- marki um páskana en dalað talsvert eftir þá. Segir Sigurður ljóst að landinn vilji frekar fara út í búð en fá vörur sendar heim. Engu að síður hlaupi heimsendingar enn á tugum viku- lega. Þá geri félagið ráð fyrir að net- verslun Hagkaupa verði stærri og öflugri í framtíðinni og bjóði þá með- al annars upp á fatnað og snyrtivör- ur. Uppgjör Haga hf., sem á Hagkaup m.a., fyrir nýliðið rekstrarár var birt í gær. Hagnaðist félagið um ríflega þrjá milljarða króna á milli mars 2019 og febrúar 2020, eða um 700 milljónum króna meira en á rekstar- árinu þar á undan. Í ársreikningnum kemur einnig fram að starfslok forstjóra og fram- kvæmdastjóra félagsins muni kosta það um 314,5 milljónir kr. »4 og 12 Netsala náði hámarki fyrir páska  Vilja frekar út í búð en fá sent heim  3 milljarða kr. hagnaður hjá Högum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hagkaup Dregið hefur úr netsölu. Álftin Svanhildur og maki hennar létu fara vel um sig í Hólmanum við Elliðaárnar í gær, en hjónin eru með fimm egg í hreiðri sínu. Svanhildur hefur verið dugleg að halda hita á eggjum sínum, en gera má ráð fyrir að ung- arnir klekist á næstu vikum. Eflaust verður þá glatt á hjalla hjá hinum nýbökuðu for- eldrum, þegar ungarnir fara að hlaupa um. Morgunblaðið/Eggert Álftaparið bíður þess að ungarnir klekist úr eggi Baldur Arnarson baldura@mbl.is Útlit er fyrir að fólki á hlutabótum muni fækka hraðar en áætlað var. Þetta segir Karl Sigurðsson, sér- fræðingur hjá Vinnumálastofnun. Stofnunin birti síðastliðinn föstu- dag spá um atvinnuleysið. Sam- kvæmt henni mun atvinnuleysi sem tengist hlutabótaleiðinni minnka úr 10,3% í apríl í 7,6% í maí. Út frá nýrri áætlun Karls má ætla að síðari talan muni reynast lægri. Rúmur fimmtungur þeirra sem fóru á hlutabætur starfaði í verslun. Það gæti því vegið þungt að versl- unin hefur komið vel undan vetri, að sögn Samtaka verslunar og þjón- ustu. Hins vegar liggur ekki fyrir hversu margir fara aftur í fullt starf. Þá störfuðu um 18% þeirra sem fóru á hlutabætur í iðnaði, sjávarút- vegi og skyldum greinum. Það gæti haft áhrif á atvinnustigið í þessum greinum ef erlendir markaðir opnast á ný, ekki síst markaðir í Evrópu, en þar er veirufaraldurinn víða í rénun. Um 11% þeirra sem fengu hluta- bætur í apríl voru starfandi í opin- berri þjónustu, hjá félögum og í menningu. Undir hópinn heyra m.a. hárgreiðslufólk, sjúkraþjálfarar og starfsfólk íþróttafélaga og leikhúsa sem var tímabundið án vinnu. Að sögn Karls má ætla að 30-40% þeirra fari af hlutabótum í maí, flest- ir í fullt starf. Batinn verði hægari hjá þeim sem séu í hinu hefðbundna kerfi atvinnuleysistrygginga. Spá fækkun bótaþega  Þróun síðustu daga bendir til meiri fækkunar á hlutabótaskrá en áður var spáð  Spáð er 30-40% fækkun í opinberri þjónustu, hjá íþróttafélögum og í menningu MFækkun á hlutabótaskrá … »12 Atvinnuleysi í apríl Skipting eftir greinum Ýmis þjónusta Verslun Opinber þjónusta Iðnaður Ferða- þjónusta 24% 17% 26% 14% 19% Heimild: VMST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.