Morgunblaðið - 19.05.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.05.2020, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 2020 ✝ Kristín ÓlöfBjörgvins- dóttir fæddist 5. nóvember 1938 á Gufuskálum í Leiru. Hún lést á heimili sínu 5. maí 2020. Foreldrar Kristínar voru Magnús Björgvin Magnússon, f. 1909, d. 1958, og Jóhanna Sigríður Jónsdóttir, f. 1906, d. 1981. Bræður Kristínar sammæðra voru Magnús Snjólfsson, f. 1925, d. 1929, og Jóhann Snjólfsson, f. 1927, d. 1985. Alsystur Krist- ínar voru: Ólafía Katrín, f. 1932, d. 2011, Björg, f. 1935, d. 2012, Theodóra, f. 1937, d. 2019, Jónína Valgerður, f. 1943, d. 2019. Kristín giftist árið 1960 Tryggva Þórhallssyni raf- verktaka, f. 1936, d. 2015. Börn þeirra eru: a) Helga Lilja, f. 1957, gift Sigurjóni Magnússyni. Börn þeirra eru: 1) Kristín, f. 1984, í sambúð með Oleg Grytsynevych. Son- ur þeirra er Helgi. 2) Magnús Jökull, f. 1989. b) Magnús Björgvin, f. 1958, kvæntur Elsu Maríu Alexandre. Sonur arbarna sem síðan fóstruðu hana. Þau brugðu búi árið 1947 og fluttust til Reykjavík- ur þar sem Kristín gekk í skóla. Árið 1956 lauk hún prófi frá Verzlunarskólanum, og um svipað leyti hóf hún sambúð með manni sínum Tryggva Þórhallssyni sem þá var að ljúka rafvirkjanámi. Þau fluttu til Reyðarfjarðar árið 1960 þegar Tryggvi var ráðinn þangað sem rafveitu- stjóri og bjuggu þar í sex ár. Eftir Reyðarfjarðardvölina starfaði Kristín við bókhald hjá ýmsum fyrirtækjum, en árið 1971, þegar eigin- maðurinn hóf sjálfstæðan rekstur sem rafverktaki, var í auknum mæli kallað eftir kröftum hennar á þeim vett- vangi. Á endanum fór það svo að Kristín var í fullu starfi við að halda utan um fyrirtækja- rekstur Tryggva. Kristínu var margt til lista lagt, hún átti það sameig- inlegt með systrum sínum að vera bráðmúsíkölsk og kenndi sér meðal annars sjálf að spila á gítar. Fyrir fáeinum árum fékk hún áhuga á íslenska þjóðbúningnum og hafði saumað búning á sjálfa sig og eitt barnabarnanna þegar hún lést. Útför Kristínar verður gerð í dag, 19. maí 2020, kl. 13. Henni verður streymt á fa- cebook-síðu hennar. Stytt slóð á streymi: https://n9.cl/t3va. Slóðina má einnig nálgast á www.mbl.is/andlat. þeirra er Magnús Alexandre, f. 1996. Dóttir Elsu Maríu og fóst- urdóttir Magn- úsar er Ana Van- essa, f. 1981, gift Sveini Steinssyni. Dóttir þeirra er Marta María. Fyr- ir átti Sveinn dótt- urina Alexöndru Ósk. c) Þórhallur, f. 1960, kvæntur Þórhöllu Guðmundsdóttur. Börn þeirra eru: 1) Tryggvi, f. 1982, var í sambúð með Ellen Dögg Sig- urjónsdóttur. Börn þeirra eru Þórhallur og Heiða Mjöll. 2) Ásdís, f. 1984, var í sambúð með Stefáni Ragnarssyni. Sonur þeirra er Stefán Sölvi. 3) Ísak, f. 1990, í sambúð með Hrafnhildi Snæbjörnsdóttur. Sonur þeirra er Jökull Hrafn. d) Hanna, f. 1974, gift Torfa Ragnari Vestmann. Börn þeirra eru: 1) Kristín Lára, f. 2003. 2) Tryggvi Þór, f. 2006. 3) Hildur María, f. 2009. Fyrir átti Torfi dótturina Guð- björgu Rún, f. 1999. Kristín fór ung að árum í sveit að Minna-Hofi í Gnúp- verjahreppi, til systkinanna Jóns og Guðrúnar Andrés- Elsku mamma, það er komið að kveðjustund þó svo ég hafi ekki verið alveg undirbúin fyrir að hún kæmi svona snögglega. Kallið er komið og eftir standa minningar sem gott er að ylja sér við. Á kveðjustund er mér efst í huga þakklæti. Fyrir vin- áttu þína, öll ferðalögin og að fá að hafa þig svo lengi hjá mér. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og fjölskyldu mína. Kærast er mér þó hversu mikið þú hjálpaðir til þegar börnin okkar Torfa voru lítil. Alltaf varst þú tilbúin að líta eftir barnabörnunum þegar á þurfti að halda. Þú varst ekki bara umhyggjusöm mamma heldur líka yndisleg amma. Þú varst mikil hannyrðakona og allt lék í höndum þínum enda ein- staklega dugleg að prjóna falleg- ar peysur á alla í stórfjölskyld- unni. Þér leið best þegar þú hafðir eitthvað milli handanna eins og þú sagðir svo oft við mig. Á tímabili saumaðir þú enda- laust mikið af bútasaumsteppum og púðum sem nú prýða heimili okkar. Síðustu árin tókstu þér svo fyrir hendur að sauma þjóð- búninga. Þið Hildur María ætl- uðuð að klæðast þessum fallegu búningum í fermingu Tryggva Þórs. Þegar ég lít yfir farinn veg koma upp myndir af öllum góðu samverustundunum okkar. Minningar með þér og pabba í sumarbústaðnum eru mér og fjölskyldu minni afar dýrmætar og mun ég ætíð minnast þeirra af mikilli væntumþykju. Við vorum einnig svo lánsöm fjölskyldan að fá að fara með þér í þrjár utan- landsferðir eftir að pabbi var bú- inn að kveðja okkur. Pabbi kvaddi okkur í ársbyrjun 2015, á nýársdag þegar nýtt ár markar nýtt upphaf. Nú hefur þú kvatt þegar vorið er á næsta leiti. Ég veit að þú saknaðir pabba mikið þar sem þið voruð samrýnd og miklir vinir í leik og starfi. Þú saknaðir líka systra þinna og alls samferðafólks sem nú þegar er búið að kveðja. Í fyrrasumar fórum við í eft- irminnilega ferð til Almería á Spáni. Þar sagðir þú mér frá draumi sem þig dreymdi. Þú sagðir mér að pabbi hefði komið og sagt við þig: Já, ertu hérna Stína mín. Hann var alltaf hjá þér og ég veit að hann vakti yfir þér þar til þinn tími var kominn. Þú hefur verið stoð og stytta, ekki bara fyrir mig heldur alla mína fjölskyldu. Við minnumst reglulega skemmtilegra stunda úr t.d. Dvergahrauni þar sem við dvöldum mikið. Ég hugsa um öll jólin sem við áttum saman og þær hátíðarstundir sem við deildum ásamt öllum fríunum. Kristínu Láru langaði alltaf í Verzlunarskólann til að feta í fótspor þín og stundar nú nám þar af miklum metnaði. Þú lagðir einnig metnað í að hvetja börnin okkar áfram í námi og til þess að skapa og vinna eitthvað í hönd- um, bauðst þeim á námskeið á hverju sumri í Heimilisiðnaðar- skólanum. Börnin búa að því að hafa tekið þátt í þessum sérstak- lega skapandi og skemmtilegu námskeiðum. Það er erfitt að kveðja þig og við fjölskyldan söknum þín sárt. Það verður heldur tómlegt hjá okkur í sunnudagsmatnum en góðu stundirnar munum við ávallt geyma í hjörtum okkar. Það er komið að leiðarlokum og ég veit að þið pabbi eruð sam- einuð á ný á fallegum stað þar sem þið munuð vaka yfir okkur. Hafðu þökk fyrir allt elsku hjart- ans mamma mín. Guð geymi þig. Hanna Tryggvadóttir. Tengdamóðir mín Kristín Björgvinsdóttir (Stína) kvaddi þennan heim aðfaranótt 5. maí nokkrum vikum eftir að móðir mín lést. Við fjölskyldan áttum ekki von á því að lífið tæki þessa stefnu svona fljótt aftur og þeytti okkur inn í minningardrauma. Ég var ekki há í aldri þegar ég kynntist Þórhalli mínum og síðan fjölskyldunni hans. Í fyrstu voru þau afar forvitin um þessa stúlku sem bar sama nafn og sonur þeirra en forvitnin breyttist fljótt í vinsemd og væntumþykju. Stína var mikil hannyrðakona og hafa ófáar peysur, sokkar og vettling- ar runnið í gegnum fingur henn- ar, sem börnin mín hafa klæðst. Eitt af þessum listaverkum, peysa sem hún prjónaði fyrir 36 árum, er vel varðveitt hjá mér og næsta barn sem klæðist henni verður Jökull, langömmubarnið hennar. Stína prjónaði eina af mínum uppáhaldspeysum sem ég nota mikið í útiveru eins og skíði og göngur. Núna í lokin var hún að bíða eftir að ég kæmi með garn til að byrja á næstu peysu fyrir mig. Stína og Tryggvi tengdapabbi ráku fyrirtæki sem Þórhallur minn fór snemma að reka með þeim og eru því ófáar stundirnar og minningarnar sem við eigum saman. Stína var hörkudugleg og útsjónarsöm og hélt utan um fjármál og bókhald fyrirtækisins í mörg herrans ár. Sjálfsagt ekki alltaf auðvelt að hafa sína tvo herramenn við hlið sér þegar stórar ákvarðanir voru teknar og vinna tilboðin fyrir stóru verkin sem komu á borð þeirra með miklum hraða. Eftir að Þór- hallur kom heim frá námi gat hann létt undir með móður sinni og foreldrarnir höfðu meira svig- rúm til að skoða sig um í okkar stóra heimi. Þau voru dugleg að ferðast bæði erlendis og innan- lands. Stínu þótti mjög gaman að ferðast og var hún dugleg að kynna sér staðhætti hvers lands og þeirra staða sem hún heim- sótti. Eftir að tengdapabbi veikt- ist af MND-sjúkdómnum og lést í byrjun árs 2015 hefur henni ekki liðið vel. Hún bar sjúkdóm sem oft á tíðum skyggði á björtu tímana og tók af henni völdin. Stína var stolt af barnahópnum sínum og nú á síðasta ári bættust tveir litlir herramenn í hópinn, Jökull Hrafn og Helgi. Hún var dugleg að sýna myndir og hlakk- aði virkilega til að hitta Kristínu og Helga litla sem búsett eru í Svíþjóð. Því miður setti Covid strik í reikninginn og þau kom- ust ekki í heimsókn yfir páskana. Elsku Stína mín, takk fyrir samferðina og alla hjálpina í gegnum tíðina. Við áttum okkar fíngerða og fallega þráð sem var á milli okkar. Nú ert þú komin til Tryggva þíns og systra þinna sem allar eru komnar til drauma- landsins. Í huganum sé ég fyrir mér syngjandi kátar og glaðar systur og Tryggva vappa í kring- um ykkur með bros á vör. Góða ferð, elsku Stína Vornótt Sól fer eldi um svanatjarnir og silfurvoga, rennir sér bak við reginhafið í rauðum loga. Söknuð vekja síðustu geislar sólarlagsins. En svefnveig dreypir í sálir jarðar systir dagsins. Fegurstu perlur fjaðra sinna hún foldinni gefur. Aldan niðar við unnarsteina, og Ísland sefur. (Davíð Stefánsson) Þín Þórhalla. Í dag er borin til grafar tengdamóðir mín, Kristín Björg- vinsdóttir. Kristínu kynntist ég árið 1983 og féll þá strax einstak- lega vel við þessa góðu og glað- lyndu konu. Á þeim tíma bjuggu þau Tryggvi í Vesturberginu, og þarna mætti mér líka stór og samheldinn systkinahópur, bræð- ur og systur þeirra hjóna og svo makar þeirra, en öllu þessu fólki átti ég eftir að kynnast betur í ár- anna rás, og marga var alltaf til- hlökkunarefni að hitta. Svo má auðvitað ekki gleyma systkinum Helgu konu minnar og fjölskyld- um þeirra sem allar hafa verið stór þáttur í lífi okkar. Tryggvi var hörkuduglegur rafvirkjameistari og kunnur frumkvöðull í sinni grein, og það var honum mikil gæfa að hafa Kristínu sér við hlið. Hún hjálpaði honum með ráðum og dáð, og eft- ir að hann hóf sjálfstæðan rekstur sá hún um bókhald fyrirtækjanna sem hann starfrækti, enda til þess menntuð, en hún hafði á sín- um tíma lokið prófi frá Verzlunar- skólanum. Þau voru einstaklega samhent hjón og nutu sín vel, jafnt í krefjandi fyrirtækjarekstri sem á skemmtilegum samveru- stundum með fjölskyldu og vin- um. Ég kynntist því fljótt hversu annt þau Kristín og Tryggvi létu sér um sína nánustu. Og það reyndist ekki lítilsvert fyrir okk- ur Helgu að eiga þau að á búskap- arárunum í Breiðholtinu og eftir að við fluttum í Kópavog, enda studdu þau ávallt vel og dyggi- lega við bakið á okkur. Örlæti þeirra og umhyggjusemi gleym- ist ekki. Þá var Kristín annáluð hannyrðakona, prjónaði á okkur fallegar peysur og fleiri flíkur og saumaði bútasaumsteppi af því mikla listfengi sem henni var í blóð borið. Það er í andstreymi lífsins sem skýrast kemur fram hverjum mannkostum fólk er búið, og aldr- ei þótti mér meira til tengdamóð- ur minnar koma en í erfiðleikun- um sem fylgdu veikindum Tryggva. Hann greindist með taugahrörnunarsjúkdóminn MND í október 2012 og í hönd fóru tvö þungbær ár þar sem allt líf Kristínar snerist um velferð eiginmannsins. Ekki kom til mála að fela öðrum hjúkrunina sem sí- fellt varð þó flóknari og erfiðari eftir því sem sjúkdómurinn ágerðist. Á hverjum degi biðu mörg úrlausnarefni sem Kristín mætti ávallt með dugnaði og æðruleysi, en eftir háttatíma á kvöldin hlýddu þau jafnan saman á hljóðbækur og tókst þannig að eiga sínar góðu næðisstundir fyr- ir svefninn. Tryggvi lést á nýársdag 2015 og með honum hvarf að nokkru gleðin úr lífi Kristínar. Það gerði svo árin sem fóru í hönd erfiðari að þau úr systkinahópnum sem enn lifðu týndu hratt tölunni. Systur hennar þrjár og maki einnar þeirra létust öll á árabilinu 2011-2019 og tveir bræður Tryggva 2016 og 2018. Sá þriðji hafði látist 2008. Sama árið og Tryggvi lést flutti Kristín sig um set, úr fallega einbýlishúsinu við náttúruparadísina Elliðaárdal, í þjónustuíbúð skammt þar frá, og urðu það einnig mikil viðbrigði. Þarna var hún þó áfram nálægt tveimur barna sinna sem höfðu búið í næsta nágrenni við þau Tryggva, en hin tvö voru svo sem ekki langt undan, og öll lögðust þau á eitt um að gera henni lífið léttara og ánægjulegra. Guð blessi minningu Kristínar Björgvinsdóttur. Sigurjón Magnússon. Elsku besta amma Stína mín kvaddi okkur 5. maí síðastliðinn. Ég sakna hennar á hverjum degi og veit að sunnudagsmaturinn verður frekar tómlegur án henn- ar. Við fjölskyldan kveikjum nú á fallegu kerti á hverjum degi til minningar um hana. Ég á svo margar góðar minn- ingar um ömmu. Við skemmtum okkur konunglega á Almería síð- asta sumar og tala nú ekki um á Tenerife og í Orlando 2017 og 2018. Hún var svo sannarlega skemmtilegur herbergisfélagi. Við hlógum mikið saman á kvöld- in þegar hún sagði mér sögur og við hlustuðum saman á bækur í iPadinum hennar. Við létum fara vel um okkur á hótelinu á kvöldin og sleiktum sólina á daginn. Þó hún hafi alltaf unnið tan-keppnina þá var það samveran sem stóð upp úr því hún var svo skemmti- leg. Minningarnar gleymast seint og ég er þakklát fyrir það hve mikinn tíma við fengum saman. Þú varst alltaf svo glaðlynd, al- gjör skvísa og leyfðir mér alltaf að dúllast með þér að sauma. Ég man svo vel þegar þú leyfðir mér að setja í þig rúllur fyrir þorra- blótsball í félagsmiðstöðinni þinni og farða þig. Þó ég hafi varla kunnað á Carmenrúllurnar varstu þolinmóð við mig og heppnaðist þetta bara nokkuð vel. Þegar ég var að keppa í Skrekk sýndir þú því eins og öllu öðru sem ég var að gera mikinn áhuga. Ég kom til þín og spurði þig hvort þú ættir nokkuð bláan kjól. Þú sýndir mér bláa kjólinn sem þú hafðir átt lengi og varst hætt að geta notað. Þar fengum við strax flotta hugmynd og kjóll- inn passaði fullkomlega þegar búið var að næla nokkrar nælur. Blái kjólinn þinn var áberandi á sjónvarpsskjánum á úrslita- kvöldinu þegar ég og vinir mínir í Árbæjarskóla bárum sigur úr býtum. Ég man hversu stolt þú varst og þú talaðir um að ég hefði verið svo fín. En það var ekki bara Skrekkur sem þú sýndir áhuga á heldur mættir þú á alla staði þar sem ég var að koma fram í söng og leik. Þú keyptir alla geisladiska sem ég söng inn á og mættir oftar en einu sinni á allar leiksýningarnar sem ég lék í. Þessi stuðningur þinn var ómetanlegur, ég kunni svo mikið að meta allt sem þú gerðir fyrir mig. Námskeiðin í heimilisiðnað- arskólanum voru líka eitt af því sem þú varst svo spennt fyrir að við systkinin tækjum þátt í. Það var þitt hjartans mál að við lærð- um skemmtilegt handverk og fyndum hversu mikil gleði það væri að geta gert hluti í hönd- unum. Það eru svona minningar sem manni þykir svo vænt um og þær verða bara dýrmætari með hverjum deginum sem líður. Mig langaði mikið til að feta í þín fótspor og fara í Verzlunar- skólann og því verður ekki annað hægt að segja en að þú hafir verið mér fyrirmynd í svo mörgu. Ég áttaði mig ekki einu sinni á því fyrr en eftir að þú kvaddir hvað sunnudagsmaturinn var mikið tilhlökkunarefni fyrir okk- ur þó það væri nú bara einn sunnudagur í viku, það þarf svo lítið til að gleðja. Hvíldu í friði, elsku besta amma Stína, minning þín lifir að eilífu. Kristín Lára Torfadóttir. Elsku amma mín. Nú ertu komin í draumalandið til afa og þín er og verður sárt saknað. Ég var ekki há í loftinu þegar ég var farin að sniglast með ömmu á skrifstofunni í Orkuvirki að stíga mín fyrstu skref á vinnu- markaðinum. Það sem mér fannst allt þetta bókhald og forláta rit- vélin í horninu spennandi. Ég eyddi tímunum saman að slá á takkana á vélinni í takt við tónlist eða umhverfishljóðin. Amma var ekki lengi að grípa áhuga minn og kenndi mér fingrasetninguna og fékk dyggan aðstoðarmann í bók- haldi að launum. Þetta voru góðir tímar. Það er mér svo minnisstætt þegar við elstu barnabörnin vor- um lítil hvað það var spennandi að leika sér í Ystabænum. Okkur fannst garðurinn eins og vett- vangur í ævintýramynd enda náði hann niður að Elliðaá. Felustað- irnir voru óendanlegir og fram- andi, hvað þá gróðurhúsið – að geta gætt sér á vínberjum og alls- kyns góðgæti meðan við svöml- uðum í pottinum. Amma var svo klár í höndunum og vippaði fram úr erminni alls- kyns hannyrðum eins og lopa- peysum, pottaleppum og rúm- teppum. Mikið þykir mér vænt um þessa hluti sem þú bjóst til. Elsku amma mín, góða ferð í draumalandið til systra þinna og afa. Ásdís Þórhallsdóttir. Kristín Ólöf Björgvinsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.