Morgunblaðið - 19.05.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.05.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 2020 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is COMPONIBILI Hirslur 3ja hæða – fleiri litir Verð frá 18.900,- BATTERY Borðlampi – fleiri litir Verð frá 21.900,- LOUIS GHOST Stóll – fleiri litir Verð 39.900,- stk. CINDY Borðlampi – fleiri litir Verð 32.900,- STONE STOOL Kollur – fleiri litir Verð 28.900,- stk. TAKE Borðlampi fleiri litir Verð 12.900,- Glæsileg gjafavara frá PLANET CRYSTAL Borðlampi – fleiri litir Verð 54.900,- BOURGIE Borðlampi – fleiri litir Verð frá 39.900,- KABUKI Borðlampi – fleiri litir Verð 52.900,- 50 ára Valur ólst upp á Ytri-Bakka í Hörgár- sveit en býr á Akureyri. Hann er rafmagns- hönnuður og bygginga- fræðingur að mennt frá HR og vinnur við rafmagnshönnun og lýsingahönnun hjá tæknideild Ljós- gjafans. Maki: Vilborg Mar, f. 1967, bókari hjá Þórði Stefánssyni bókhaldsstofu. Börn: Vaka Mar Valsdóttir, f. 1994, og Vikar Mar Valsson, f. 1999. Barnabarn er Hvannar Elí Mar Hjartarson, f. 2019. Foreldrar: Benedikt Alexandersson, f. 1931, búsettur á Akureyri, og Bára Magnúsdóttir, f. 1937, d. 1995. Þau voru bændur á Ytri-Bakka. Magnús Valur Benediktsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hlutir sem hafa legið lengi í þagn- argildi koma nú upp á yfirborðið. Reyndu að draga réttar ályktanir og þá ertu á grænni grein. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú átt að geta komið þínum málum fram með lagni. Leggðu þig fram um að vera góður vinur. Þér finnst viss manneskja eitthvað fjarlæg. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu þér ekki bregða þótt aðrir kunni ekki að meta frumleika þinn og nýj- ungagirni. Opnaðu hjarta þitt fyrir ástinni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú færð endalaust nýjar hug- myndir, svo margar að þú verður að reyna að setja þér mörk. Einhver vandræði munu koma upp sem tengjast húsnæði þínu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarfnast hvíldar um þessar mundir, á því leikur enginn vafi. Reyndu að vinna þér í haginn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú átt það til að rukka of lítið fyrir þjónustu þína, eða vinna fyrir ekkert til að reyna að festa stöðu þína. Ekki hafa áhyggj- ur þótt ekki gangi allt upp í fyrstu atrennu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Reyndu að umbera vissan aðila þótt það geti verið þreytandi á stundum. Leggðu þitt af mörkum til að bæta umhverfi þitt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Veltu því fyrir þér hverju þarf að breyta og hvað þarfnast endurbóta. Áhyggjur bæta ekkert, reyndu að ýta þeim frá þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú getur ekki lokað augunum fyrir því að margt af því sem þú segir mis- skilst af því að þú talar hvorki skýrt né skor- inort. Þig langar að geta um frjálst höfuð strokið. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú finnur löngun hjá þér til að gera eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til þess fyrr en þú heldur. Minnstu allra góðu stundanna sem þú hefur átt með makanum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þetta er ekki hentugur dagur til að ganga frá skiptingu eigna. Taktu þig nú á og gerðu að reglu að svara þeim símtölum og tölvupósti sem þér berst strax. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú verður beðinn að taka á þig aukna ábyrgð og leiða hópinn. Láttu ekkert hindra þig í að ná takmarki þínu. IEEE (Institute of Electrical and Electronics Engineers) 2004, heiðurs- félagi í SPIE (International Society for Photonics and Optices) 2013, kjör- inn meðlimur Academiae Europea 2019 og hlaut árið 2000 „Third Mil- lennium Medal“ hjá IEEE. Jón Atli hefur verið virkur í ritstjórnum vís- indatímarita og var t.d. aðalritstjóri IEEE Transactions on Geoscience and Remote Sensing 2003-2008. Jón Atli er mikill áhugamaður um tónlist og hefur safnað plötum frá því hann var 12 ára. „Ég hlusta aðallega á rokk, blús, djass og sálartónlist. Meðal uppáhaldstónlistarmanna má nefna Mark E. Smith og The Fall ásamt Bob Dylan, The Clash, Neil Young, Joni Mitchell og Frank Zappa. Við Stefanía árið 2002 ásamt Einari Stefánssyni prófessor og fleirum. Hann var fyrsti stjórnarformaður orkufyrirtækisins Metans hf. 1999-2004. Hann hefur ver- ið mjög virkur í alþjóðastarfi og kennt víða um lönd. Hann hefur leiðbeint meistara- og doktorsnemum við fjölda háskóla ásamt því að vera andmælandi víða og sitja í mörgum doktors- nefndum. Hann var gistiprófessor við Háskólann í Trento á Ítalíu 2002-2015 og gistiprófessor við Kingston-háskóla á Englandi 2000-2003. Jón Atli kenndi við Jilin-háskóla Í Changchun í Kína árið 2007. Jón Atli hefur hlotið fjölda viður- kenninga fyrir rannsóknir sínar, þ. á m. hvatningarverðlaun Rannsókn- arráðs Íslands 1997, er heiðursfélagi í J ón Atli Benediktsson er fæddur 19. maí 1960 í Reykjavík og bjó fyrstu 6 árin í vesturbæ Reykjavík- ur við Ránargötu, í húsi sem afi hans byggði, og síðan í Vatnsholti við Sjómannaskólann. „Við Stefanía hófum sambúð okkar 1982 í húsinu sem ég bjó í við Ránargötuna,“ segir Jón Atli. Jón Atli gekk í Ísaksskóla, Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraskóla Ís- lands, Hlíðarskóla, Vörðuskóla og varð stúdent frá MR 1980. Hann tók virkan þátt í starfi MR, var forseti Vísinda- félags Framtíðarinnar 1978-1979 og var í ræðuliði skólans. Hann lauk loka- prófi frá Háskóla Íslands 1984 í raf- magnsverkfræði og sat í Stúdentaráði HÍ 1981-1983. Jón Atli og Stefanía héldu til náms við Purdue-háskóla í Indíana, Bandaríkjunum, 1985 og lauk Jón Atli meistaraprófi 1987 og dokt- orsprófi 1990. Hann hlaut þar viður- kenningu fyrir að vera framúrskar- andi framhaldsnemi í fjarkönnun. Jón Atli var í Barnamúsíkskólanum 1969-1972 og stundaði síðan nám í gít- arleik hjá Símoni H. Ívarssyni í Tón- skóla Sigursveins um nokkurra ára skeið. „Ég söng í nokkrum kórum og tók m.a. þátt í flutningi Nóaflóðsins undir stjórn Garðars Cortes á Lista- hátíð 1972 sem altflautuleikari.“ Sumrin 1974-1980 starfaði Jón Atli í málningarvöruversluninni Litaveri. Hann var eitt sumar háseti á flutn- ingaskipinu Svaninum frá Grundar- firði. Hann var starfsmaður Verk- fræðistofnunar HÍ og stundakennari 1984-85. Jón Atli hefur starfað við HÍ samfellt frá 1991, fyrst sem lektor en hefur verið prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði frá 1996. Hann var kjörinn rektor HÍ til fimm ára árið 2015 og hefur verið endurskipaður í embættið til næstu fimm ára. Jón Atli er meðal áhrifamestu vís- indamanna í heimi samkvæmt lista Publons. Hann hefur birt yfir 400 vís- indagreinar á sviði fjarkönnunar, myndgreiningar, mynsturgreiningar, vélræns náms, gagnabræðslu, grein- ingar lífeðlisfræðilegra merkja og merkjafræði. Jón Atli hefur einnig verið virkur í nýsköpun og stofnaði m.a. nýsköpunarfyrirtækið Oxymap sóttum fjölmarga tónleika í Bandaríkj- unum þegar við vorum þar við nám. Meðal eftirminnilegra tónleika hér heima eru Stranglers 1978, og The Fall 1981, 1983 og 2004. Ég tók ásamt Kolbeini Árnasyni viðtal við Frank Zappa sem flutt var á Rás 2 árið 1992, en það var hluti af 6 klukkustunda langri þáttaröð okkar um Zappa.“ Jón Atli er ennfremur mikill áhuga- maður um íþróttir. „Ég er tryggur stuðningsmaður Manchester City í ensku úrvalsdeildinni, en við synirnir höfum gríðarlega gaman af að fylgjast með liðinu, helst í hverjum einasta leik. Fjölskyldan hefur nokkrum sinnum séð Manchester City spila á heimavelli og einnig í Bandaríkjunum. Ég hef verið stuðningsmaður Fram frá barns- aldri, en ég æfði knattspyrnu með lið- inu 1969-1974. Fjölskyldan er mjög samrýnd og hefur gaman af að ferðast.“ Fjölskylda Eiginkona Jóns Atla er Stefanía Óskarsdóttir, f. 7.8. 1962, dósent við Stjórnmálafræðideild HÍ. Þau eru bú- sett í Reykjavík. Foreldrar Stefaníu voru hjónin Guðlaug Þorleifsdóttir, f. 17.4. 1935, d. 24.6. 2013, starfsmaður Orkuveitu Reykjavíkur, og Óskar V. Friðriksson, f. 14.8. 1931, d. 21.8. 2008, fulltrúi. Þau bjuggu í Reykjavík. Börn Jóns Atla og Stefaníu eru 1) Benedikt Atli Jónsson, f. 19.12. 1991, rafmagns- og tölvuverkfræðingur hjá Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands – 60 ára Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Fjölskyldan Brautskráning eldri sonarins í meistaranámi í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2018. Frá vinstri: Jón Atli, Friðrik, Katrín, móðir Jóns Atla, Benedikt Atli og Stefanía. Meðal áhrifamestu vísindamanna Feðgarnir Á góðri stund í San Francisco á síðasta ári. Hjónin Stefanía og Jón Atli í heim- sókn hjá gamla háskólanum sínum. 40 ára Halla er Reyk- víkingur, ólst upp á Teigunum en býr í El- liðaárdalnum. Hún er grafískur hönnuður að mennt frá Listahá- skóla Íslands og Lo- renzo dé Medici í Flór- ens. Halla er grafískur hönnuður hjá Forlaginu. Maki. Jón Hjörtur Þrastarson, f. 1977, umsjónarmaður fasteigna hjá MR. Börn: Þröstur Þór Jónsson, f. 2009, og Margrét Anna Jónsdóttir, f. 2013. Foreldrar: Margrét Arnljótsdóttir, f. 1954, sálfræðingur, og Anni Guðný Haugen, f. 1950, fyrrverandi kennari við Háskóla Íslands. Þær eru búsettar í Elliðaárdalnum. Halla Sigríður Mar- grétardóttir Haugen Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.