Morgunblaðið - 19.05.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 2020
DUKA.IS – SMÁRALIND – KRINGLAN
Stockholm
11 cm verð frá 3.590,-
17 cm verð frá 5.290,-
Salt & pipar kvarnir
Hægt að nota undir
alls kyns þurrkaðar
jurtir og krydd
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Viðar Már Matthíasson, fyrrverandi
dómari við Hæstarétt, var á meðal
50 stærstu hluthafa Landsbankans
þegar bankinn féll og hafði hann
keypt hlutabréf upp á tæplega eina
milljón króna í febrúar árið 2008,
sem ekki hafði verið greint frá áður.
Hafði hann því keypt í bankanum
fyrir samtals um 16 milljónir þegar
bréfin urðu verðlaus í október 2008.
Þetta kom fram í málflutningi fyr-
ir Hæstarétti í gær, en þar var tekist
á um hvort taka ætti upp tvö mál þar
sem stjórnendur Landsbankans
höfðu verið dæmdir fyrir umboðs-
svik og markaðsmisnotkun í aðdrag-
anda falls bankans.
Í fyrra málinu, svokölluðu Ímon-
máli, voru bæði Sigurjón Þ. Árna-
son, fyrrverandi bankastjóri Lands-
bankans, og Sigríður Elín Sigfús-
dóttir, fyrrverandi
framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
bankans, sakfelld fyrir umboðssvik
og markaðsmisnotkun. Fékk Sig-
urjón 3,5 ára dóm en Sigríður Elín
18 mánaða dóm. Í seinna málinu,
svokölluðu markaðsmisnotk-
unarmáli Landsbankans, var Sig-
urjón, ásamt þremur öðrum starfs-
mönnum deildar eigin fjárfestinga,
fundinn sekur um markaðs-
misnotkun. Hlaut Sigurjón þar 18
mánaða dóm í Hæstarétti og var þar
með kominn upp í fimm ára refsi-
hámark. Fram kom við málflutning-
inn að Sigurjón hefði ekki hafið af-
plánun dómanna.
Fallist á ósk um endurupptöku
Endurupptökunefnd féllst í maí á
síðasta ári á beiðni Sigurjóns um að
taka málin upp. Var í niðurstöðu
nefndarinnar byggt á því að einn þá-
verandi hæstaréttardómari, Viðar
Már, hefði keypt bréf í bankanum
fyrir 15 milljónir króna og að „telja
verður að þeir fjármunir sem fóru
forgörðum hjá dómaranum hafi ver-
ið slíkir að atvik eða aðstæður voru
til að draga óhlutdrægni dómstólsins
með réttu í efa,“ eins og sagði þar.
Fyrir réttinum í gær upplýsti
Helgi Magnús Gunnarsson vara-
ríkissaksóknari að hlutabréfaeign
Viðars væri í raun meiri en komið
hefði fram. Hefði þetta komið í ljós
eftir að Sigurjón benti á að útreikn-
ingar um hlutabréfaeign Viðars
gengju ekki upp. Var þá kafað dýpra
ofan í málið og kom í ljós að Viðar
hafði ekki bara keypt bréf árið 2007
eins og hann hafði áður greint frá,
heldur hafði hann keypt bréf fyrir
990 þúsund krónur í febrúar 2008.
Benti Sigurður G. Guðjónsson, verj-
andi Sigurjóns, á að með þessu hefði
Viðar keypt bréf í bankanum á sama
tímabili og ákært var fyrir markaðs-
misnotkun.
Þrátt fyrir hlutabréfaeignina tók
Viðar sæti í dóminum og taldi sig
ekki vanhæfan. Fyrr á þessu ári
komst svo Mannréttindadómstóll
Evrópu að þeirri niðurstöðu að brot-
ið hefði verið á Sigríði Elínu við
málsmeðferð Ímon-málsins. Féllst
Mannréttindadómstóllinn á að
hlutabréfaeign Viðars hefði verið
það mikil að hægt væri að taka undir
með Sigríði Elínu að seta hans í
dóminum hefði valdið hlutdrægni.
Átti Viðar samkvæmt dóminum 428
þúsund hluti í bankanum, sem nú
hefur komið í ljós að eru nær 462
þúsund hlutum, en verðmæti hlut-
anna 428 þúsund var um 8,5 millj-
ónir miðað við síðasta skráða gengi
bankans.
Tapaði árslaunum
Sigurður sagði í málflutningi sín-
um að til að setja upphæðina í sam-
hengi hefðu tekjur Viðars á því tíma-
bili sem hann tapaði hlutabréfunum
verið um 17 milljónir fyrir skatt og
11 milljónir eftir skatt. Starfaði hann
þá sem prófessor við Háskóla Ís-
lands. „Það var því um verulegt fjár-
hagstjón að ræða,“ sagði Sigurður
og spurði í kjölfarið hvort það væri
trúverðugt að dómari sem tapaði
árslaunum sínum sæti í dómi þar
sem því væri haldið fram að lánveit-
ingar Sigurjóns og Sigríðar Elínar
hefðu verið ólögmætar og valdið
hluthöfum, stórum og smáum, veru-
legu fjárhagstjóni.
Skúli Magnússon, héraðsdómari
og setudómari við Hæstarétt í þessu
máli, spurði Helga við málflutning-
inn út í gögnin sem ákæruvaldið
setti fram. Vakti hann athygli á því
að vísað væri í skjal sem heitir „50
stærstu“ þegar hlutabréfaeign Við-
ars var skoðuð. Spurði hann hvort
skilja mætti það sem svo að Viðar
hefði verið einn af 50 stærstu hlut-
höfum bankans.
Helgi svaraði því til að svo væri og
að Helgi hefði jafnframt verið í hópi
1% af stærstu hluthöfum bankans.
Staðfesti hann svo að hlutirnir væru
um 462 þúsund en ekki 428 þúsund
eins og áður hafði komið fram. Hefði
í greinargerð verjanda Sigurjóns til
endurupptökunefndar verið vakin
athygli á ónákvæmum útreikningum.
„Við fórum að gramsa í þessu og
þetta kom þá í ljós,“ sagði Helgi.
Tók hann fram að Viðari hefði ver-
ið boðið að skýra þetta misræmi, en
að hann ekki talið þess þurfa. Hann
hefði á sínum tíma verið að rifja upp
gömul mál.
Skúli spurði jafnframt hvort sak-
sóknari væri með nákvæma tölu um
hverjir hagsmunir dómara hefðu
verið þegar hann keypti hlutina og
svo þegar þeir töpuðust. Helgi sagði
svo ekki vera, en að Viðar hefði
keypt fyrir 990 þúsund í febrúar
2008. Kom síðar við málflutninginn
fram að við fall bankans hefði verð-
mæti hlutanna verið um 685 þúsund
krónur.
Ýtarlegri frásögn af málflutn-
ingum er að finna á mbl.is.
Tekist á um endurupptöku
Dómari við Hæstarétt var meðal 50 stærstu hluthafa Landsbankans áður en bankinn féll Málflutn-
ingur fór fram í gær um hvort taka ætti upp tvö dómsmál gegn fyrrverandi stjórnendum bankans
„Þetta hefur gengið rosalega vel,“
segir Sara Magnúsdóttir um verk-
efnið „Knús í kassa“ sem hún
hleypti af stokkunum í lok apríl,
þar sem yngri kynslóðin var hvött
til þess að teikna fallegar myndir
handa vistmönnum á hjúkrunar-
heimilum landsins. Alls söfnuðust
tæplega 800 myndir að hennar sögn
í verkefninu. „Þetta fór fram úr
okkar björtustu vonum, það var
mikið af knúsi og fallegum skila-
boðum til eldri kynslóðarinnar
okkar og mikil umhyggja í mynd-
unum,“ segir Sara, en stefnt er að
því að sýna teikningarnar á hjúkr-
unarheimilunum til að gleðja heim-
ilismenn sem hafa ekki getað feng-
ið heimsóknir með hefðbundnum
hætti síðustu vikur og mánuði
vegna kórónuveirufaraldursins. Er
nú unnið að því að flokka mynd-
irnar áður en þeim verður síðan
dreift á hjúkrunarheimili, þar sem
þær verða til sýnis fyrir heimilis-
fólkið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Knúsin tekin upp Systurnar Sara og Selma Rut Magnúsdætur tóku upp
myndirnar í verslun Pennans/Eymundssonar í Kringlunni í gær.
Knúsin í kössunum
líta dagsins ljós
Tæplega 800 teikningar söfnuðust
Hæstiréttur ætti að vísa frá
báðum endurupptökumálunum
þar sem réttaráhrif af ákvörð-
unum endurupptökunefndar
ganga í berhögg við lög um
meðferð sakamála og ekki er
hægt að endurupptaka mál að
nýju nema fyrri dómur hafi ver-
ið ógiltur. Þetta kom fram í máli
Helga Magnúsar Gunnarssonar
vararíkissaksóknara fyrir rétt-
inum í gær.
Sigurður G. Guðjónsson, lög-
maður Sigurjóns Þ. Árnasonar,
sagði hins vegar að endur-
upptökunefnd hefði metið hvort
skilyrði til að hefja nýja máls-
meðferð væru til staðar. „Og
hér kom fram að svo væri,“
sagði hann.
Vísa ætti
málunum frá
VARARÍKISSAKSÓKNARI
Morgunblaðið/Þorsteinn
Málsgögn skoðuð Sigurður G. Guðjónsson, Sigurjón Þ. Árnason og Helga Melkorka Óttarsdóttir í Hæstarétti.