Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 1
GARÐAR
Hallur Gunnarsson og
Andrea Hjálmsdóttir
Guðmundur
Vernharðsson
Ýr Káradóttir og Anthony Bac
igalupo fundu hvort annað á K
affibarnum
en eiga nú einn fallegasta garði
nn í Hafnarfirði
Steyptu heitan pott í garði
num í
stað þess að kaupa sumarb
ústað
Aukinn áhugi á
garðrækt þegar enginn
kemst til útlanda
EINSTAKUR
ÆVINTÝRAGARÐUR
F Ö S T U D A G U R 2 2. M A Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 120. tölublað 108. árgangur
ÆVINTÝRAGARÐAR,
KÚLTÚRINN OG
HEITIR POTTAR
GARÐAR 40 SÍÐUR
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Gildi lífeyrissjóður, sem á 7,24% hlut í
Icelandair Group, hyggst með at-
kvæði sínu á hluthafafundi hjá félag-
inu í dag gefa
stjórninni heimild
til að ráðast í
hlutafjárútboð, að
sögn Davíðs Rúd-
ólfssonar, for-
stöðumanns
eignastýringar
hjá sjóðnum. Lík-
legt er að aðrir
núverandi hlut-
hafar geri slíkt hið
sama, sem flestir eru íslenskir líf-
eyrissjóðir utan stærsta hluthafans,
sem er bandarískur fjárfestingarsjóð-
ur sem á 12,5%. Fái stjórnin ekki
heimild til þess að ráðast í útboð og
takist ekki að afla í kjölfar þess nýs
hlutafjár stefnir félagið í þrot.
Niðurstöður hluthafafundarins í
dag ráða ekki úrslitum um afdrif fé-
lagsins, heldur munu þær aðeins
skapa forsendu fyrir því að ráðist
verði í útboðið. Þá á eftir að afla sjálfs
hlutafjárins, sem á að nema allt að 30
milljörðum íslenskra króna. Davíð
segir eitt að veita stjórninni heimild
til að fara í útboðið og annað hvað líf-
eyrissjóðurinn geri í sambandi við
mögulega þátttöku í því. „Það liggur
ekki fyrir enn þá. Við eigum eftir að fá
upplýsingar frá félaginu til að geta
lagt mat á það hversu góður fjárfest-
ingarkostur það er fyrir sjóðinn,“
segir hann og bætir við að hann vænti
þess að einhverjar slíkar upplýsingar
verði gefnar upp á fundinum.
Enda í 15% ef allt hlutaféð fæst
Útboðsheimildin sem greidd eru
atkvæði um er opin og fremur óvenju-
leg heimild fyrir stjórn félags að hafa.
Eins og kemur fram í tilkynningu um
hluthafafundinn gefa núverandi hlut-
hafar með henni frá sér forkaupsrétt
að nýjum bréfum í félaginu, þannig að
stjórnin getur selt nýju bréfin án þess
að bera söluna undir þá. Þá fær
stjórnin einnig heimild til þess að um-
breyta skuldum félagsins, eins og við
banka, í hlutafé og þar með gera
kröfuhafa að eigendum. Stjórnin fær í
raun heimild til að bjarga félaginu
með þeim ráðum sem hún metur
æskileg.
Hlutafjárútboðið gæti komið veru-
legum hlut í félaginu í nýjar hendur.
Eins og sakir standa er fjöldi útgef-
inna hluta í félaginu rúmir 5,4 millj-
arðar. Áætlað er að gefa út 30 millj-
arða nýrra hluta í útboðinu, sem
myndi minnka hlut núverandi eig-
enda í um 15%. Áður en nýir eigendur
stíga inn þurfa þeir þó ýmsar upplýs-
ingar sem þessa stundina liggja ekki
fyrir, eins og um afstöðu kröfuhafa til
félagsins, nýja kjarasamninga við
flugmenn og flugvirkja og efnahags-
reikninginn almennt.
Engin leið framhjá samningum
Enn er ósamið við flugfreyjur, sem
höfnuðu á miðvikudaginn því sem Ice-
landair kallaði lokatilboð sitt um
kjarasamning. Eins og ASÍ gagn-
rýndi á miðvikudagskvöld hefur Ice-
landair ekki útilokað það með óyggj-
andi hætti að það semji við nýtt
stéttarfélag annað en Flugfreyjufélag
Íslands. Ragnar Þór Ingólfsson, for-
maður VR, hefur sagst munu beita
sér af krafti fyrir björgun Icelandair
„þegar stjórnendur hafa tryggt fram-
tíð félagsmanna okkar án þess að
gengið verði á réttindi þeirra og
launakjör“. Þar vísar hann til ítaka
sinna innan stjórnar Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna, þar sem VR kýs
helming stjórnar. Lífeyrissjóðurinn
er annar stærsti eigandi Icelandair og
gæti skipt miklu í öflun nýs hlutafjár.
Spurður hvort þrýstingur frá
verkalýðsfélögum geti haft áhrif á
ákvörðun Gildis um að leggja félaginu
nýtt hlutafé til segir Davíð Rúd-
ólfsson að meginsjónarmiðið sé að
gæta að eðlilegum hagsmunum sjóðs-
félaga við ráðstöfun á lífeyrissparnaði
þeirra, í þessu máli sem öðrum. Það
sé hlutverk starfsmanna og stjórnar
sjóðsins að meta þessa mögulegu fjár-
festingu út frá því sjónarmiði. Í sam-
tali við Morgunblaðið í gær sagði
stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna að Icelandair ætti enga
leið framhjá samningum við flug-
freyjufélagið. Þeir virðast þó geta
komið til eftir að áform um útboð eru
samþykkt.
Úrslitin ráðast ekki í dag
Kosið um hlutafjárútboð án samnings við flugfreyjur Stjórn Icelandair fengi
víðtæka heimild til að athafna sig Hlutur núverandi eigenda þynnist í 15%
Davíð Rúdólfsson
Icelandair Group
» Stærsti hluthafinn er fjár-
festingahópurinn PAR Invest-
ment (12,5%). Annars eru það
íslenskir lífeyrissjóðir. Stærstan
hlut á Lífeyrissjóður verzlunar-
manna (11,81%), svo Lífeyris-
sjóður starfsmanna ríkisins
(8,25%), Gildi (7,24%), Birta
(7,07%) og Frjálsi lífeyrissjóð-
urinn (2,84%).
» Sjóðstýringarfélagið Stefnir
á þá samtals 10,56% hlut í fé-
laginu í gegnum tvo sjóði. Rest
eiga aðrir minni aðilar.
Ekki er full eining í Eyjafirði um
friðun fjarðarins fyrir sjókvíaeldi.
Meirihluti bæjarfulltrúa á Akureyri
samþykkti bókun þar sem skorað er
á sjávarútvegsráðherra að leyfa
ekki sjókvíar í firðinum. Í Fjalla-
byggð hefur aftur á móti verið
horft til uppbyggingar atvinnu við
sjókvíaeldi. Tvö fyrirtæki voru með
áform um uppbyggingu sjókvíaeld-
is en ferlið var stöðvað með laga-
breytingu á síðasta ári. »4
Ekki full eining um
friðun Eyjafjarðar
Hvalaskoðun Sumir telja að sjókvíaeldi
trufli ferðaþjónustu á Eyjafirði.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Guðný Árna-
dóttir er í stóru
hlutverki í Ís-
landsmeistaraliði
Vals í fótbolta þó
að hún sé aðeins
19 ára gömul en
segir að for-
eldrar sínir hafi
þurft að múta
henni með alls
kyns verðlaunum
til að fá hana til að byrja að æfa
íþróttina austur á Hornafirði. Eftir
það varð ekki aftur snúið og Guðný
var keyrð á æfingar hjá FH frá Vík
í Mýrdal um tveggja ára skeið. Nú
stefnir hún á atvinnumennsku. „Ég
er með háleit markmið og stefni á
að reyna fyrir mér erlendis eftir
eitt til tvö ár ef allt gengur að ósk-
um,“ segir Guðný í viðtali á íþrótta-
síðum blaðsins. »27
Mútað til að byrja
að æfa fótbolta
Guðný
Árnadóttir
Borgarvirki er gosstapi. Efst í virkinu er skeifu-
laga 5-6 metra djúp skeifulaga dæld, umgirt
hömrum nema hvað hún er opin til austurs. Þar
var hlaðinn grjótveggur frá fornu fari. Ýmsar
sögur hafa verið uppi um hverjir hlóðu virkið og
til hvers það var notað. Skemmtilegasta sagan er
af því þegar Húnvetningar vörðust Borgfirð-
ingum eftir átök á Tvídægru en líklegast er talið
að Borgarvirki sé héraðsvígi frá söguöld.
Morgunblaðið/Eggert
Héraðsvígi Húnvetninga frá söguöld
Borgarvirki er gosstapi á milli Vesturhóps og Víðidals í Húnaþingi
Þótt fræðin
segi að fyrirtæki
eigi að grípa
tækifærið í
niðursveiflu og
setja meiri kraft
í markaðsmálin
er það hægara
sagt en gert ef
félög hafa orðið
fyrir tekjufalli.
Stjórnendur
þurfa að hugsa sig tvisvar um áður
en þeir draga úr markaðsstarfi og
segir Kristinn Gústaf Bjarnason að
það geti skaðað undirstöður vöru-
merkja ef þau eru ekki sýnileg á
markaði í talsverðan tíma.
Þá þarf að gæta þess að útfæra
markaðsefnið rétt: „Þegar margir
eiga um sárt að binda vegna þreng-
inga í hagkerfinu getur verið vara-
samt að tefla fram herferðum með
mjög sjálfhverfum skilaboðum og
gæti almenningi jafnvel þótt eins
og fyrirtækið væri að reyna að not-
færa sér ástandið.“ »12
Skaðar vörumerki ef
þau eru ekki sýnileg
Kristinn Gústaf
Bjarnason