Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 Fjarþjónusta fyrir betri heyrn ReSound Smart3D Afgreiðslutími 9:00-16:30 • Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Við bendum þeim á sem komast ekki í heyrnarþjónustu til okkar að nýta sér forritið ReSound Smart3D í snjalltækjum og fá þar heyrnartækin sín fínstillt og uppfærð. Með fjarþjónustunni er snjalltæki notað til að senda heyrnarfræðingum beiðni um að breyta stillingu ReSound Linx 3D og Quattro heyrnartækjanna. Við svörum eins fljótt og auðið er. Nánari upplýsingar er á finna á www.heyrn.is eða í síma 534 9600. Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Fánaprentun Kuðungurinn, umhverfisviðurkenn- ing umhverfis- og auðlindaráðuneyt- isins fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári, fór til verkfræðistofunnar Eflu. Guð- mundur Ingi Guðbrandsson ráð- herra afhenti viðurkenninguna í vik- unni. Í rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu kemur fram að Efla hafi frá upphafi leitast við að vera leiðandi í umhverfismálum, hvort sem er í eig- in rekstri eða í framboði á um- hverfisvænum lausnum. Umhverfis- ráðgjöf skipi stóran sess í þjónustu fyrirtækisins, en Efla hefur að- stoðað á þriðja tug fyrirtækja við innleiðingu umhverfisstjórnunar. Þá hafi fyrirtækið rutt brautina fyrir ný úrræði í umhverfismálum umfram lagalegar kröfur, s.s. við gerð vist- ferilsgreininga og ráðgjöf við vist- vænar vottanir bygginga auk ýmissa lausna sem snúi að umhverfisverk- fræði. „Hjá Eflu er umhverfisvinkillinn settur á öll verkefni en slík um- hverfistenging er gríðarlega mikil- væg hjá fyrirtæki sem sinnir margs- konar ráðgjöf og verkefnastjórnun,“ segir m.a í rökstuðningi dómnefnd- ar. Verðlaunagripinn, Kuðunginn, gerði að þessu sinni listhópurinn Fischer, sem er skipaður systk- inunum Lilju, Ingibjörgu og Jóni Þór Birgisbörnum. Viðurkenning Helga J. Bjarnadóttir, sviðsstjóri samfélagssviðs Eflu, og Guðmundur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Eflu, tóku við Kuðungnum úr hendi Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra. Framúrskarandi starf í umhverfismálum  Ráðherra veitti Eflu Kuðunginn Snorri Másson snorrim@mbl.is Nemendur á fornmálabraut í Menntaskólanum í Reykjavík þreyttu stúdentspróf í latínu á dögunum hjá Kolbrúnu Elfu Sigurðardóttur, lat- ínu- og grískukennara til áratuga og fagstjóra í faginu. Það væri ekki í frá- sögur færandi á þessari fornustu málabraut landsins nema að prófið þurfti að fara fram rafrænt og hver sat heima í sínu horni. Úr því að svo varð að vera kallaði það að mati Kol- brúnar á að samin yrðu ellefu ólík próf, eitt fyrir hvern nemanda. „Það var einfaldlega til að menn væru ekki að hneigjast til að bera saman bækur sínar um of,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið um ráð- stöfunina. Ekki aðeins fékk hver nemandi sérstakt próf með sér- stökum spurningum, heldur var les- inni þýðingu líka sleppt, sem sagt úr latnesku efni sem nemendur þekkja yfir á íslensku. Slíkar æfingar komu að sögn Kolbrúnar ekki til greina á heimaprófi, þar sem þar var einnig hætt við því að menn færu að hafa of ríka hliðsjón af þýðingum annarra seinni tíma manna. Þeim mun meira vægi fékk latneskur stíll, sem felst í þýðingu úr íslensku yfir á latínu. Lesna þýðingin færðist yfir í munn- lega prófið, þar sem nemendur fengu að spreyta sig á gömlu meisturunum. Kolbrún segir að sérsniðin próf hafi ekki orðið til þess að lækka meðaleinkunn nemendanna, né held- ur til þess sem alvarlegra væri, að slá á ánægju þeirra við próflesturinn. Einn sem hafi tekið sérstöku ástfóstri við Sesar þetta árið hafi ekki notið fé- lagsskapar hans síður þó að prófið væri tekið heima. Stúdentsprófunum lauk í vikunni en þau eru að líkindum einhver þau blíðlegustu sem sögur fara af í Latínuskólanum. Hver náms- braut þurfti aðeins að fara í þrjú loka- próf en þau eru í venjulegu árferði vön að telja nokkuð á annan tug. Aldrei þessu vant er annars eintóm góð tíðindi að segja af fornmálabraut- inni: Eftir kynningarátak sem blásið var til í vetur stefnir nú í að tveir nýir málabrautarbekkir verði skráðir til leiks næsta haust, eftir að aðeins einn 26 manna bekkur hóf nám við braut- ina síðasta haust. Eftir fyrsta árið velja nýnemarnir svo hvort þeir feta áfram braut fornmálanna og þá bíða þeirra tvö ár enn af þeirri mætu list latínu. Morgunblaðið/Sverrir Latínuskólinn Stúdentsprófin voru rafræn í ár en færri en verið hefur. Ellefu próf fyrir ellefu nemendur  Svo menn færu ekki að bera saman bækur sínar meira en góðu hófi gegnir Héðinn Unnsteinsson var kjörinn formaður Landssamtakanna Geð- hjálpar á aðalfundi sem haldinn var fyrir skömmu. Einar Þór Jónsson gaf ekki kost á sér til formennsku en verður áfram í stjórn. Á fund- inum var ákveðið að fela viðtakandi stjórn að stofna styrktarsjóð. Héðinn var einn í framboði til formanns og því sjálfkjörinn. Með honum og Einari Þór í stjórn eru Ágústa Karla Ísleifsdóttir, Elín Ebba Ásmundsdóttir, Einar Kvaran, Halldór Auðar Svansson, Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir, Silja Björk Björnsdóttir og Sigríður Gísla- dóttir. Styrktarsjóður Geðhjálpar á að taka til starfa að loknum aðalfundi á næsta ári, að því er fram kom í samþykkt aðal- fundar. Hlutverk styrktarsjóðs Geðhjálpar skal vera að styrkja verkefni sem snúa að framförum í geðheilbrigðismálum og eflingu geðheilbrigðis á Íslandi. Sjóðnum er meðal annars ætlað að bæta geðheilsu íbúa landsins með því að stuðla að framþróun nýrra lausna í þágu geðheilbrigðismála, auka for- varnir, efla geðrækt, takast á við fordóma og mismunun, stuðla að gerð fræðsluefnis og opna um- ræðu. Nýr formaður Geðhjálpar  Aðalfundur ákvað að stofna styrktarsjóð Geðhjálpar Héðinn Unnsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.