Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Um árabil hafa félagasamtökin Junior Achievement á Íslandi efnt til fyrirtækjasmiðju fyrir unga frumkvöðla. Er um að ræða sam- starfsverkefni atvinnulífs og menntakerfis þar sem framhalds- skólanemendur fá að spreyta sig á að stofna fyrirtæki, þróa viðskipta- hugmynd, vöru eða þjónustu, og kynna á veglegri uppskeruhátíð, Vörumessu, sem alla jafna hefur verið haldin í Smáralind um þetta leyti árs. Að þessu sinni tóku um 600 nemendur frá fimmtán fram- haldsskólum þátt í verkefninu. Stofnuð voru 113 fyrirtæki og skil- uðu 109 þeirra sér í mark. Petra Bragadóttir, framkvæmda- stjóri JA á Íslandi, segir að því mið- ur hafi þurft að aflýsa vörumess- unni vegna veirufaraldursins. „En ég tek ofan fyrir kennurum fram- haldsskólanna sem hafa haldið nem- endum við efnið í fjarnámi síðan um miðjan mars. Nemendunum tókst líka að finna nýstárlegar leiðir til að koma vörum sínum á framfæri,“ segir hún og þakkar árangurinn m.a. því hve öflugt bakland verk- efnið eigi í atvinnulífinu og hjá mennta- og menningarmála- ráðuneytinu. Netið hefur ýmsa kosti Eins og gefur að skilja eru við- skiptahugmyndir þátttakenda af öll- um mögulegum toga og voru all- mörg verkefni með sterka tengingu við sjávarútveginn. Stóð nemendum m.a. til boða að heimsækja Sjávar- klasann til að fræðast um haftengda nýsköpun og kviknuðu ýmsar snið- ugar hugmyndir í framhaldinu. Þannig skoðaði einn hópur nem- enda hvernig nýta mætti þorskroð í dýrafóður, búa til varasalva úr þara og breyta netakúlum í falleg inniljós og blómapotta. Eitt af þeim sjávarútvegstengdu nemendaverkefnum sem vöktu sér- staka athygli í ár spratt úr kolli þeirra Benedikts Franks Pálma- sonar, Baldvins Freys Björgvins- sonar og Brynjars Guðmundssonar, en þeir stunda nám í Borgarholts- skóla. Þeim hugkvæmdist ný og betri leið til að vefja inn vörur á bretti og gáfu verkefninu nafnið Netbretti, en lausnin gengur út á að skipta hefðbundinni plastfilmu út fyrir endurnýtanlegt net úr um- hverfisvænu efni. Hugmyndin byggir m.a. á reynslu Benedikts af því að vinna sem sum- arstarfsmaður á vörulager mat- vælafyrirtækis. „Þar gerðum við mikið af því að færa vörur til á milli lagers og framleiðslu og í hvert skipti þurfti að plasta vörurnar á brettinu. Ég hugsa að almenningur geri sér ekki grein fyrir því hversu mikill plastúrgangur verður til í vöruflutningum og þó að því plasti sem notað er til að vefja inn eitt bretti megi vöðla saman í lítinn bolta gerir margt smátt eitt stórt. Hjá þessu eina fyrirtæki mátti finna heilan ruslagám fullan af plastpokum sem voru allir sneisa- fullir af notuðu brettaplasti.“ Verði augljós valkostur Úr varð að leita til Hampiðj- unnar og gera tilraunir með að nota net í staðinn fyrir plast. Bene- dikt segir ýmis efni hafa komið til skoðunar en net hafi m.a. þann kost að hylja ekki vöruna á brettinu. Vöruþróunin hefur gengið vel en Benedikt Baldvin og Brynjar sjá fram á að fínpússa lausnina á kom- andi vikum og mánuðum. „Við vilj- um ná því marki að netið verði aug- ljós valkostur og að fyrirtæki sjái að Netbretti hjálpi þeim að spara tíma og peninga og draga úr plast- notkun.“ Þykir Benedikt mesta furða að hvergi virðist sambærileg lausn í notkun, enda virðist Netbretti hafa rambað niður á tiltölulega augljósa lausn á útbreiddum vanda. „Nota má net sem eru létt en sterkbyggð, auðvelt að vefja þau utan um bretti og skorða vel, og þau fullnægja kröfum um öryggi og hreinlæti. Takmarkast notkun Netbretta aðallega af því að þau henta best til notkunar innan sama fyrirtækis, s.s. þegar vörur eru fluttar til og frá lager, eða frá miðlægum lager til verslana, þar sem auðvelt er að endurheimta netin eftir notkun, en aftur á móti er skynsamlegra að nota plastfilmu þegar senda þarf bretti um langan veg og meira er fyrir því haft að endurheimta netin.“ Frumkvöðlar Benedikt Frank Pálmason, Brynjar Guðmundsson og Baldvin Freyr Björgvinsson við prufuútgáfu. Hugmyndin er einföld en snjöll. Skipti plastfilmu út fyrir net  Framhaldsskólanemendur sem tóku þátt í keppni JA á Íslandi hafa unnið með Hampiðjunni að þróun umhverfisvænni lausnar fyrir vöruflutninga Petra Bragadóttir Aðalfundur ADHD- samtakanna fór fram í vikunni. Í ályktun fundarins er aukinni áherslu stjórn- valda á geðheil- brigðismál fagn- að og „þeirri vitundarvakningu sem orðin er um mikilvægi geðheilbrigðis og and- legrar heilsu. Stóraukin þjónusta á þessu sviði er eitt brýnasta lýð- heilsuverkefni samfélagsins næstu misserin“. Samtökin segja afleiðingar kórónuveirufaraldursins einnig kalla á viðamiklar aðgerðir til að koma til móts við þá hópa samfélagsins sem hafa orðið illa fyrir barðinu á far- aldrinum, ekki bara efnahagslega heldur einnig vegna röskunar á námi, einangrunar eða andlegra áfalla ýmiss konar. Stóraukið fjár- magn þurfi að setja í greiningar og meðferðarúrræði vegna ADHD, bæði hjá fullorðnum og börnum, og eyða núverandi biðlistum eftir grein- ingum, en tveggja til þriggja ára bið eftir greiningu og meðferð er óvið- unandi að mati samtakanna. Faraldur kallar á aðgerðir  ADHD-samtökin álykta á aðalfundi Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sinnti 74 útköllum fyrstu fjóra mán- uði ársins, en það er rúmlega 20% aukning frá sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í færslu Gæslunnar á Facebook. Þar segir að þegar mikið sé flogið er viðhaldið í samræmi við það, en allar þrjár þyrlur gæslunnar voru í viðhaldi fyrr í vikunni vegna fjölda verkefna. Í færslunni segir að TF-EIR sé komin aftur í gagnið og að viðhaldi á TF-GRO muni ljúka mjög fljótlega. 74 útköll frá janúar til apríl Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Gerið verðsamanburð Full búð af nýjum og fallegum vörum 6.990 kr. Túnika - kjóll Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar myndó.isljósmyndastofa NJÓTUMMINNINGANNA Veistu um góðan rafvirkja? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.