Morgunblaðið - 22.05.2020, Side 14

Morgunblaðið - 22.05.2020, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Spurningin erekki hvortheldur hve- nær næsta bylgja kórónuveirunnar skellur á Evrópu, segir dr. Andrea Ammon, stjórn- andi Sóttvarnastofnunar Evr- ópu. „Spurningin er hvenær og hve stór,“ sagði hún, og bætti við: „Nú er ekki tíminn til að slaka algerlega á.“ Þetta er fjarri því uppörvandi spádómur og full ástæða fyrir þá sem utan meginlands Evrópu standa að taka tillit til hans, líka þá sem búa á eyju í norðanverðu Atl- antshafi. Og ekki síst þá; þeir eiga meiri möguleika en flestir aðrir að haga málum þannig að næsta bylgja, geri hún vart við sig, skelli ekki á af óbærilegum þunga. Fyrir ríki Evrópusambands- ins og jafnvel sjálft sambandið og tilveru þess hlýtur spádómur- inn að vera gríðarlegt áhyggju- efni. Miklar umræður eiga sér nú stað í ríkjum Evrópusam- bandsins um stöðu þess og þróun og umræðurnar fara gjarnan út í það hvort sambandið kemst yf- irleitt í gegnum þau ósköp sem nú ganga á í efnahagsmálum og hafa komið mjög illa við mörg ríki þess og sambandið í heild. Meðal þeirra sem fjallað hafa um þetta er The Economist, sem að vanda er áhugasamt um sam- bandið en sér þá miklu erfiðleika sem það stendur nú frammi fyrir. Lausnin sem það tímarit sér, líkt og margir aðrir, er að þörf sé á meiri samruna, ekki minni. Ríkin sem haft hafi mest- ar efasemdir um að sambandið í heild sinni eigi að taka á sig ábyrgð á skuldum þeirra sem verst standa þurfi að skipta um skoðun. Þau þurfi að átta sig á að sjálf framtíð sambandsins bygg- ist á því að ganga lengra í sam- runaátt. Rímar þetta mjög við þau sjónarmið sem koma frá höfuðstöðvum sambandsins í Brussel. Merkel kanslari og Macron forseti náðu í byrjun vikunnar saman um tillögu um 500 millj- arða evra styrktarsjóð fyrir bág- stödd ríki sambandsins en fram að því hafði Þýskaland ekki verið tilbúið í slíkan leiðangur. Þetta er þess vegna töluvert skref en ekki endilega til marks um stefnubreytingu, hvorki Þýska- lands eða annarra ríkja sem hafa haft efasemdir um að dæla pen- ingum til þeirra ríkja sem verr standa. Merkel segir að þetta sé tillaga um einskiptisaðgerð vegna einstakra aðstæðna og ríkin sem almennt hafa staðið fastast gegn svona aðgerðum hafa ekki gefið eftir. Að minnsta kosti ekki enn sem komið er, en engin ástæða er til að útiloka að Merkel takist að snúa upp á nokkrar hendur til að koma þessu í gegn. Takist það er þó alls ekki svo að allir verði þar með ánægðir. Vilji þeirra sem áhugasamastir eru um að allir ábyrgist allt hjá öll- um, þar með talin framkvæmdastjórn ESB, er að gengið verði mun lengra og stuðningurinn verði upp á 1.000 til 1.500 milljarða en ekki 500 milljarða. Þetta verður tæpast útkljáð fyrr en í fyrsta lagi í næsta mánuði og þá ef til vill á fundi forystumanna ríkjanna, en gert er ráð fyrir að þeir hætti á að hittast innan fárra vikna í eig- in persónu til að freista þess að leysa vandann og bjarga sam- bandinu, sem margir þeirra trúa að hangi á bláþræði. Á meðan heldur umræðan um framtíð þess áfram og sömuleið- is umræðan um hvernig sam- bandið stóð sig í kórónuveiru- baráttunni og hvers virði það er þegar virkilega reynir á. Reynsl- an af kórónuveirufaraldrinum er sú að fólk leitar skjóls innan eig- in landamæra, sem lokuðust fljótt við útbreiðslu veirunnar. Þá sýndi sig að hver var sjálfum sér næstur hvað varðar búnað til sóttvarna og læknisþjónustu. „Evrópuhugsjónin“ mátti sín lítils. Dirk Schümer, sem ritar um evrópsk málefni í Die Welt og hefur gert um árabil, er einn þeirra sem vakið hafa athygli á þessu. Die Welt hefur, líkt og The Economist, stutt Evrópu- sambandið eindregið og eru skrif Schümers þeim mun at- hyglisverðari. Hann bendir á að sú eining sem hefur reynst áreiðanlegust og skilvirkust í baráttunni við kórónuveiruna er þjóðríkið, „líka í Evrópu, þar sem ESB átti fyrir löngu að hafa tekið þessi verkefni yfir“. Schümer nefnir að kórónu- veiran hafi valdið margvíslegum deilum þar sem fólk innan Evr- ópusambandsins líti enn fyrst og fremst á sig sem hluta þjóðar, ekki íbúa ESB, og að svo muni verða um langa hríð. „Ísinn sem evrópsk samstaða stendur á er þunnur,“ segir hann. Evrópusambandið rær nú líf- róður við að halda sambandinu saman efnahagslega. Evran hafði fyrir kórónuveiruna komið sumum ríkja þess í gríðarlegan efnahagsvanda og óvíst er hvort þau og Evrópusambandið kom- ast saman í einu lagi í gegnum núverandi ólgusjó. Og eins og Dirk Schümer bendir á er ekki víst að mikill vilji sé til þess með- al almennings í ríkjum sam- bandsins að leggja á sig auknar byrðar til að bjarga efnahag annarra landa. Áköfustu stuðningsmenn auk- ins samruna ríkja Evrópusam- bandsins segja að ástandið verði enn verra ef þau standi ekki saman og gangi lengra í sam- runaátt, en er líklegt að almenn- ingur innan ríkja sambandsins trúi þeirri hæpnu kenningu? Ekki síst eftir reynsluna af sam- bandinu í þessum faraldri. Um það má að minnsta kosti efast. ESB glímir við vanda af áður óþekktri stærðargráðu} Óviss framtíð U ndanfarna mánuði hafa komið hinir ýmsu björgunarpakkar frá stjórnvöldum og er von á einum enn á næstu dögum. Markmið pakkanna hefur aðallega verið að vernda fyrirtæki og störf. Langflestir millj- arðarnir fara þangað. Fyrst var áherslan á hlutastarfaleiðina en nú á að hætta henni og hjálpa fyrirtækjum að segja upp starfsfólki. Það þýðir að nú er tíminn til þess að koma með áætlun fyrir næstu mánuði og ár, að setja stefnu út úr ástandinu. Það er gert í fjármálastefnu og fjármála- áætlun. Þar setja stjórnvöld sér takmörk og markmið til næstu ára. Í fjármálastefnu er að finna loforð stjórnvalda um þróun skulda og af- komu, eða með öðrum orðum hversu miklar skuldir næstu kynslóðir þurfa að borga. Án fjármálastefnu erum við í vanda, vegna þess að vaninn í ís- lenskum stjórnmálum er að biðja um fjárheimildir eftir á, þegar búið er að taka lánin eða eyða peningnum. Svona svipað og ef ég stel af þér pening og spyrji svo hvort ég megi ekki eiga hann. Þegar stjórnvöld gera það er það brot á stjórnarskrá en „bara“ brot á hegningarlögum ef ég eða þú gerum svoleiðis. Það er ekki nóg að segja hvað við munum skulda mikið. Stjórnvöld verða líka að leggja línurnar fyrir framtíðina. Í óvissuástandi eins og nú er þá er það beinlínis hlutverk hins opinbera að eyða þeirri óvissu. Stjórnvöld eiga að setja grunninn sem aðrir geta svo byggt á og bætt. Sá grunnur er settur í fjármálaáætlun með áætlun stjórn- valda um skatta og útgjöld. Þar segja stjórn- völd á eins skýran hátt og þau geta „svona reddum við málunum og komumst út úr þessu ástandi“. Stjórnvöld eiga að brúa bilið og leggja veg- inn til framtíðar. Vandamálið er að það bólar hvorki á fjármálastefnu né fjármálaáætlun. Ekki einu sinni óformlegri stefnu eða áætlun. Tíminn til þess að segja hvað gerist næst er núna, en þar skila stjórnvöld auðu. Það er mjög undarlegt, þar sem næstu skref eru mjög augljós, sama hvernig ástandið þróast. Vandamálið er að það er fullt af störfum að hverfa og það er ekki von á að sömu störf verði til aftur í bráð. Lausnin er augljóslega að búa til fleiri störf. Besta leiðin til þess er átak í ný- sköpun og endurmenntun úti um allt land og meðal allra hópa. Nýsköpun í brothættum byggðum, í grænum lausnum, hjá hreyfihömluðum, öldr- uðum, nemendum, listamönnum og atvinnulausum. Tækifærin eru til staðar úti um allt land en það þarf að grípa þau. Nú er til dæmis besti tíminn til þess að afnema tekjuskerðingar og leyfa fólki að búa til vinnu. Hugsa til dæmis um atvinnuleysisbætur sem nýsköpunarstyrki á meðan ástandið varir. Hvetja fólk til þess að prófa að búa eitthvað til án þess að missa það lágmarksöryggi sem fæst með atvinnuleysisbótum. Nú er tíminn til þess að hugsa til framtíðar. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Nú er tíminn Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Enn er ekki öll nótt úti hvaðvarðar komu minniskemmtiferðaskipa síð-sumars, að mati forsvars- manna Cruise Iceland, en að þeim standa hafnir víða um land og fyrir- tæki í ferðaþjónustu. Hjá Faxaflóa- höfnum er nálgunin hins vegar þann- ig að í endurskoðaðri áætlun er ekki lengur gert ráð fyrir neinum komum skemmtiferðaskipa í sumar. Ef ræt- ist úr og einhver skip koma verður litið á það sem bónus. Ljóst er að verulegt tekjutap fylgir færri eða engum komum skemmtiferðaskipa, ekki aðeins fyrir hafnir víða um land, heldur einnig fyrir fjölmörg þjónustufyrirtæki. Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir að nú hafi borist rúmlega 60 formlegar afbókanir og vitað sé að nokkrar séu í pípunum. Búist var við um 190 skipum til Reykjavíkur í ár og reiknað var með metsumri. Fari allt á versta veg og ekkert skip komi verða Faxaflóa- hafnir af um 600 milljónum króna í brúttótekjur. Átak að koma rekstri af stað Gyða Guðmundsdóttir hefur fylgst vel með umræðu um siglingar með skemmtiferðaskipum síðustu mánuði. Hún er talsmaður Cruise Iceland og jafnframt framkvæmda- stjóri NAA, en að þeim samtökum standa nokkur umboðs- og þjónustu- fyrirtæki á Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Hún segir að útgerðir stærri skipa séu í ákveðnum erfið- leikum og þar verði mikið átak að koma rekstrinum af stað á nýjan leik. Meðal annars þurfi að fá svör við afstöðu stjórnvalda víða um heim, hvort hafnir verði opnaðar fyrir skip- um með kannski þrjú þúsund far- þega, hvernig gangi að snúa flókinni starfsemi í gang og síðast en ekki síst hvort farþegar treysti sér til að ferðast með skipum sem biðu tals- verðan álitshnekki fyrr í vetur og voru jafnvel kallaðir smitdósir í fjöl- miðlastormi. Gyða segir að misjafnlega gangi í baráttunni við kórónuveirufarald- urinn í löndum eins og Bandaríkj- unum, Bretlandi, Þýskalandi, Ítalíu og Spáni. Þaðan komi stór hluti far- þega skemmtiferðaskipa og spurning sé um reglur og fyrirmæli stjórn- valda í þessum löndum. Náttúran og fámennir hópar „Mörg stærri útgerðarfyrirtæki eiga í fjárhagserfiðleikum og mér finnst ólíklegt að hingað kom stór skipi í sumar. Ég útiloka þó ekki slík- ar heimsóknir seinni part sumars,“ segir Gyða. „Hins vegar finnst mér líklegt að hingað komi svokölluð leið- angursskip sem fara í minni og stærri bæi og sjávarpláss. Fjöldi far- þega yrði þá gjarnan 2-300, eða helmingur þess sem þau eru gerð fyrir. Slíkan fjölda er hægt að skanna áður en fólk fer um borð og hitamæla daglega og margir nota armbönd til að fylgjast nákvæmlega með ferðum fólks. Á Íslandi er auðveldara að tryggja ákveðna fjarlægð á milli fólks heldur en á fjölmennu torgi eða kirkju á Ítalíu. Með því að gera út á náttúru Ís- lands og fámenna hópa ættum við að geta laðað slík skip til landsins þar sem fólk upplifir eitthvað nýtt í öruggu skipi.“ Gyða segir að með breytingum á reglum 15. júní opnist möguleikar á að fá ferðamenn til landsins. Sam- tökin hafi skrifað sóttvarnalækni, m.a. varðandi farþegaskipti hér á landi og ferðir um landið. Hægt eigi að vera að halda slíkum farþegahóp- um aðskildum frá öðrum og til dæmis geti sama rúta og sami bílstjórinn séð um hópana í ferðum hér. Mikið högg fyrir marga víða um land Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sundahöfn Tvö farþegaskip af stærri gerðinni við Skarfabakka 2018, MSC Preziosa og Norwegian Getaway. Um borð voru alls um 10 þúsund manns. Pétur Ólafsson, hafnarstjóri á Akureyri og formaður Cruise Iceland, segir að enn sé góður möguleiki á að minni skip komi til landsins í ágúst og septem- ber. Ekki sé lengur von á neinu skemmtiferðaskipi í maí og júní en enn sé óvissa með júlí- mánuð. Útgerðir skipanna fylg- ist náið með því hvenær og hvernig yfirvöld opni landamæri víða um heim. Hann segist telja að þessi ferðamáti geti verið öruggari en margur annar og þá sérstaklega með minni skip- unum. Fari allt á versta veg og engin skip komi í sumar segir Pétur að það yrði mikið högg fyrir marga staði og nefnir sérstaklega Seyðisfjörð, Ísafjörð og Akur- eyri, með Hrísey og Grímsey. „Við áttum von á samtals 212 skipum til þessara þriggja hafna en fjöldinn er kominn nið- ur í 120 skip. Ef þetta fer niður í núll verður tekjutap hjá okkur 4-500 milljónir af um 800 millj- ónum króna,“ segir Pétur. Vonast eftir minni skipum MIKIL FÆKKUN BÓKANA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.