Morgunblaðið - 22.05.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020
40 ára Gunnþórunn
ólst upp í Reykjavík en
býr á Patreksfirði. Hún
er með BS í ferða-
málafræði, BA í
spænsku og MS í al-
þjóðasamskiptum, allt
frá Háskóla Íslands.
Gunnþórunn er framkvæmdastjóri og
einn eigenda Westfjords Adventures.
Maki: Páll Heiðar Hauksson, f. 1976, eig-
andi Bílaverkstæðisins Smur og dekk.
Börn: Tómas, f. 2011, og Telma, f. 2014.
Foreldrar: Sólrún Andrésdóttir, f. 1954,
vinnur á Foldabæ, búsett í Reykjavík, og
Þorlákur Bender, f. 1956, prentari og
vinnur í sundlauginni á Patreksfirði, bú-
settur á Patreksfirði.
Gunnþórunn Bender
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu ekki deigan síga þótt menn
sýni hugmyndum þínum takmarkaðan
áhuga. Dekur er því miður ekki í boði í dag,
það er allt of mikið að gera.
20. apríl - 20. maí
Naut Það eru ýmsar breytingar sem þig
langar til að ná fram. Teldu upp að tíu áður
en þú segir eitthvað. Þér verður boðin
stöðuhækkun.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þig langar helst til þess að vera
heima í dag, kannski væri ekki vitlaust að
bjóða gestum í mat. Nú er ekki tíminn til
að efast um hvað þú vilt!
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú er tækifæri til þess að ná þeim
markmiðum sem þú settir þér um ára-
mótin. Minntu þig á það svona um það bil
hundrað sinnum á dag.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gættu þess að taka engu sem sjálf-
sögðum hlut. Ef þú leyfir þér að lofa öðrum
að ráða ferðinni stundum ertu í góðum
málum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Mundu að það geta orðið miklar og
góðar breytingar í vinnunni hjá þér á þessu
ári. Einhver þér eldri getur miðlað þér af
reynslu sinni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Rómantík, ástarævintýri og skemmt-
anir höfða til þín þessa dagana. Biddu ein-
hvern að kenna þér það sem þú vilt læra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að gefa þér tíma til
samskipta við vini þína og njóta lífsins
aðeins. Þér finnst sem allir vilji þekkja þig
og að þú sért umvafin/n ástúð.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér er alveg óhætt að njóta
þess því þér hefur tekist að ljúka við
vandasamt verkefni á tilsettum tíma. Fram
undan er góður tími vináttu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Geturðu ekki fundið þér ein-
hverja örlitla tilbreytingu, þótt ekki væri
nema nýja leið til og frá vinnu? Horfðu svo
bjartsýn/n fram á veginn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu ekki ummæli annarra í
þinn garð skemma fyrir þér daginn. Hvað
sem þú tekur þér fyrir hendur í dag mun
heppnast.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er erfitt að neita ef einhver bið-
ur mann sárlega um hjálp. Láttu hrakspár
lönd og leið og treystu eðlisávísun þinni.
kennsluréttindi í framhaldsskóla árið
2010 og hóf störf við Menntaskólann
á Tröllaskaga haustið 2011, þar sem
hún hefur kennt íslensku síðan.
Margrét hefur verið virk í Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg, hún var
kjörin í stjórn Slysavarnafélagsins
Landsbjargar vorið 2009 og hætti þar
2015, og var m.a. varaformaður fé-
lagsins í fjögur ár, fyrst kvenna. „Ég
gekk í Slysavarnadeildina hér á Dal-
vík 2001 og var strax gripin í stjórn-
ina þar. Ég gekk síðan í Björg-
unarsveitina Dalvík 2012 og er virk
þar enn þann dag í dag.“ Auk þessa
hefur Margrét starfað í ýmsum
nefndum á vegum Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar og tekið þátt í
margvíslegum verkefnum og er enn
að. Hún tók m.a. þátt í að stofna
Bakvarðasveit SL á vordögum 2013
og að setja upp tekjuskiptakerfi fyrir
slysavarnadeildir innan SL í takt við
björgunarsveitirnar vorið 2015.
„Sjálfboðaliðastarf hefur alltaf gefið
mér mikið og fólkið í Slysavarna-
félaginu Landsbjörg stendur mjög
nærri hjarta mínu.“
Göngur, útivist og almenn hreyfing
eru helstu áhugamál Margrétar. „Ís-
lensk tunga, orðaleikir og -grín höfða
og tók síðan við stöðu hennar við Dal-
víkurskóla um haustið.“
Margrét kenndi við Dalvíkurskóla
1995-2011 á unglingastigi, aðallega ís-
lensku en einnig náttúrufræði og lífs-
leikni. „Eftir langt og erfitt kenn-
araverkfall árið 2004 ákvað ég að fara
í meistaranám og verða mér úti um
kennsluréttindi í framhaldsskóla.“
M.Paed í íslensku var tekið samhliða
vinnu frá 2005-2009, Margrét fékk
M
argrét Líney Laxdal
Bjarnadóttir er
fædd 22. maí 1970 á
Akureyri og ólst þar
upp. „Ég átti fyrst
heima í Stórholti 6, í Þorpinu, á Akur-
eyri með stórfjölskyldunni, þ.e.
móðurafa mínum Theodóri, mömmu
og tveimur systkinum hennar, Lilju
og Svavari Páli, og síðar bætast við
fósturfaðir minn Pétur, sem ól mig
upp sem dóttur sína, og sonur Lilju,
Logi Þór Laxdal, sem ég leit á eins og
bróður minn þessi fyrstu ár. Þegar ég
var sex ára fluttum við mamma og
pabbi í nýbyggt einbýlishús þeirra í
Eikarlundi 16, á Brekkunni á Akur-
eyri, og ári síðar eignaðist ég systur
mína, Jóhönnu Helgu Laxdal, eða
Jóku Pé eins og flestir þekkja hana.“
Margrét æfði fótbolta með KA á
sínum yngri árum enda flutt á KA-
svæðið, þar sem hún starfaði einnig
eitt sumarið við gerð fótboltavallar á
svæðinu. Hún æfði einnig blak á sín-
um yngri árum og þá fyrst með KA
og ÍMA á menntaskólaárunum ásamt
því að vera í blakráði ÍMA 1987-1990.
Á háskólaárunum flutti Margrét suð-
ur, þar sem hún æfði blak með Vík-
ingi samhliða námi, en eftir að hún
flutti á Dalvík æfði hún öldungablak
með Rimum, sem er blakliðið þar í
bæ, en segist nú vera búin að leggja
blakhlífunum. Hún hefur þó stundum
látið yngsta soninn draga sig með í
strandblak svo hún er nú ekki alveg
hætt að leika sér með blakbolta.
Margrét gekk í Lundarskóla á
Akureyri og Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar og varð stúdent af málabraut
frá Menntaskólanum á Akureyri
1990. Hún fór í Kennaraháskóla Ís-
lands 1991 og útskrifaðist þaðan 1994
með B.Ed.-próf með íslensku og líf-
fræði sem aðalgreinar.
Margrét vann í Sporthúsinu á
Akureyri 1990-1991 áður en hún fór í
háskólanám og vann á sumrin sem
flokksstjóri við Vinnuskólann á Akur-
eyri og leysti einnig af við ýmis störf
hjá Búgarði samhliða kennaranám-
inu. Hún flutti til Dalvíkur 1994 og
eignaðist fyrsta barn sitt tveim vik-
um síðar. „Ég leysti síðan Svanfríði
Ingu Jónasdóttur af í kennslu þegar
hún datt inn á þing undir vorið 1995
líka mikið til mín og er ég þekkt fyrir
að snúa út úr og nýta mér margræðni
orða ef þess er einhver kostur enda
er ég ekki Laxdal fyrir ekki neitt.“
Það hefur líklega verið þessi áhugi
Margrétar á orðum og leikjum sem
fékk hana til að taka þátt í Útsvari
fyrir hönd Dalvíkurbyggðar veturinn
2017-2018 en aðspurð segist hún
elska að safna ævintýrum og þetta
hafi einmitt verið mikið og skemmti-
legt ævintýri. Þá telur hún að það
hafi líklega verið sams konar þörf
sem fékk hana til að segja já við því
að keppa í stafsetningu á Landsmóti
UMFÍ á Egilsstöðum 2011, þar sem
hún afrekaði að komast á verðlauna-
pall. „Af öllum verðlaunapeningum
mínum í gegnum tíðina þykir mér
þessi einna skemmtilegastur,“ segir
Margrét hlæjandi.
Fjölskylda
Eiginmaður Margrétar er Gísli
Bjarnason, f. 20.7. 1963, sviðsstjóri
fræðslu- og menningarmála í Dal-
víkurbyggð. Foreldrar hans: Hjónin
Bjarni Gíslason, f. 6.6. 1937, rafvirki
hjá Kassagerðinni, búsettur í Mos-
fellsbæ, og Þórey Jarþrúður Jóns-
dóttir, f. 14.6. 1940, d. 30.3. 2013,
starfsstúlka á Reykjalundi.
Börn: 1) Árni Theodór Gíslason,
stjúpsonur Margrétar, en móðir
hans er Ólafía Andrésdóttir, f. 25.11.
1985, matráður, búsettur í Moss í
Noregi. Maki: Ine Storstein Jønsson,
kennari; 2) Bjarni Þór Gíslason, f.
6.9. 1994, starfsmaður ÁTVR, búsett-
ur í Hveragerði. Maki: Ásthildur
María Árnadóttir, nemi í iðjuþjálfun
við Háskólann á Akureyri; 3) Pétur
Geir Gíslason, f. 27.7. 1998, starfs-
maður Íþróttamiðstöðvar Dalvík-
urbyggðar, búsettur á Dalvík; 4)
Oddur Freyr Gíslason, f. 6.12. 2005,
nemi.
Systir Margrétar sammæðra: Jó-
hanna Helga Laxdal Pétursdóttir, f.
1.4. 1977, kokkur, búsett í Kongsberg
í Noregi; systkini samfeðra: Ágúst
Þór Bjarnason, f. 16.7. 1974, kokkur,
búsettur á Akureyri; Þröstur Már
Bjarnason, f. 28.4. 1978, viðskipta-
fræðingur, búsettur í Kópavogi;
Oddný Elva Bjarnadóttir, f. 8.1.
1991, snyrtifræðingur, búsett í Kópa-
Margrét L. Laxdal, framhaldsskólakennari og íslenskufræðingur – 50 ára
Fjölskyldan Bjarni Þór, Ásthildur María, Gísli, Oddur Freyr, Margrét og
Pétur Geir.á Fiskideginum mikla á Dalvík árið 2018.
Sjálfboðaliðastarf er gefandi
Sjálfboðaliðinn Margrét á góðum
degi í Björgunarsveitinni Dalvík.
30 ára Agnar ólst upp
á Kópaskeri en býr í
Reykjavík. Hann er
vélfræðingur frá Vél-
skóla Íslands (Tækni-
skólanum) og er vél-
virki og lærði á
Vélaverkstæði Jó-
hanns Ólafs. Agnar hefur verið vélstjóri á
ýmsum skipum og er með smábáta-
útgerð. Hann situr í stjórn VM.
Börn: Arnar Þórarinn, f. 2015, og Eldey
Ida, f. 2018.
Foreldrar: Óli Björn Einarsson, f. 1963,
húsasmiður hjá SS Byggi/Tak innrétt-
ingum, og Kristbjörg Sigurðardóttir, f.
1968, ferðamálafræðingur og skrif-
stofumaður hjá Ferðafélagi Akureyrar.
Þau eru búsett á Akureyri.
Agnar Ólason
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is